SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Μέγεθος: px
Εμφάνιση ξεκινά από τη σελίδα:

Download "SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS"

Transcript

1 SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Sobril 10 mg, 15 mg og 25 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur oxazepam 10 mg, 15 mg og 25 mg. Hjálparefni með þekkta verkun Hveitisterkja Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla LYFJAFORM Tafla. 10 mg: Hvítar, kringlóttar, tvíkúptar töflur, merktar SB á annarri hliðinni, 8 mm í þvermál. Með deilistriki. 15 mg: Hvítar, kringlóttar, tvíkúptar töflur, merktar SL á annarri hliðinni, 6 mm í þvermál. 25 mg: Hvítar, kringlóttar, tvíkúptar töflur, merktar SR á annarri hliðinni, 6 mm í þvermál. 4. KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR 4.1 Ábendingar Taugaveiklun og geðvefrænt ástand (psychosomatic conditions) með eftirfarandi einkennum: Kvíði, órói og spenna. Svefnörðugleikar. Lyfjaforgjöf fyrir skurðaðgerðir eða tannlækningar. Titurvilla (delerium tremens) og bráð fráhvarfseinkenni. Sem samsett meðferð með þríhringlaga geðdeyfðarlyfjum við geðdeyfð með kvíða/æsingi. 4.2 Skammtar og lyfjagjöf Ávísa skal minnsta virka skammti í eins stuttan meðferðartíma og mögulegt er. Skammtar Vægur óróleiki: 10 mg 3-4 sinnum á dag. Venjulegir skammtar: 15 mg 3-4 sinnum á dag, sem auka má eftir þörfum í 25 mg 3-4 sinnum á dag. Aldraðir og veikburða sjúklingar: 10 mg 2-3 sinnum á dag og gerist þess þörf má með varúð auka skammtinn í 15 mg 3-4 sinnum á dag. Kvíði og óróleiki við geðdeyfð: 25 mg 3-4 sinnum á dag. Svefnörðugleikar: mg 1-2 klst. fyrir svefn. Lyfjaforgjöf fyrir skurðaðgerðir: mg að kvöldi, daginn fyrir aðgerð. Lyfjaforgjöf fyrir tannlækningar: 15 mg að kvöldi, daginn áður og 1 klst. áður en meðferð hefst. Titurvilla (delerium tremens) og bráð fráhvarfseinkenni: mg 3-4 sinnum á dag. Í kjölfar langtímameðferðar skal minnka stóra skammta smám saman til að forðast fráhvarfseinkenni. Sé notkun benzódíazepína hætt snögglega getur það leitt til breytinga í húðskyni (paresthesia), breytinga á upplifun eða skynjun (perception changes) og persónuleikabreytingum. Þetta ástand getur varað frá einni upp í nokkrar vikur. 1

2 Séu of stórir skammtar gefnir öldruðum getur það leitt til ruglunar (eða ruglástands). Lyfjameðferð við kvíða á alltaf að vera viðbótarmeðferð. Sé þess nokkur kostur á sami læknirinn að hefja meðferðina, fylgjast með henni og ljúka henni. 4.3 Frábendingar Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna sem talin eru upp í kafla 6.1. Vöðvaslensfár (myasthenia gravis). Kæfisvefn. Lost og dauðadá eftir vímu með áfengi og lyfjum. 4.4 Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun Ekki er mælt með benzódíazepínlyfjum sem aðalmeðferðarúrræði við geðrofi og ekki skal nota það (vegna hættu á að valda sjálfvígstilraunum) eingöngu sem meðferð við geðdeyfð eða kvíða í tengslum við geðdeyfð. Meðferðarlengd skal venjulega ekki vera lengri en 4 vikur þegar lyfið er notað sem svefnlyf, og 2-3 mánuðir þegar lyfið er notað við kvíða. Ekki skal láta meðferð vara lengur án þess að endurskoða ástandið. Oftast myndast þol gegn róandi verkun lyfsins eftir 1-2 vikur. Vegna hættu á ávanabindingu skal lyfið gefið í takmarkaðan tíma. Hættan á ávanabindingu eykst með skammtastærð og meðferðarlengd. Hættan er einnig meiri hjá einstaklingum sem eru með áfengissýki og/eða fíknivanda eða eiga á hættu að fram komi fíknivandi. Því þarf að ávísa lyfinu með varkárni til einstaklinga sem eru með eða eiga á hættu að þróa með sér fíknivanda. Ef ávanabinding kemur fram geta fráhvarfseinkenni komið fram ef meðferð er hætt skyndilega. Það geta verið höfuðverkur, vöðvaverkir, mikil hræðsla, spenna, óróleiki og pirringur. Í alvarlegum tilfellum geta eftirfarandi einkenni komið fram: Tapaðar áttir og skilningur á sjálfum sér, tilfinningaleysi og náladofi í útlimum, ofurnæmi fyrir hljóði, ljósi og snertingu, ofskynjanir eða flogaveikisköst. Afturkast (rebound effect): Tímabundið ástand þar sem einkennin sem meðhöndla átti með benzódíazepíni koma aftur í meiri mæli þegar meðferð er hætt. Þessi einkenni getur verið erfitt að skilja frá upprunalegu einkennunum sem lyfið var ætlað til meðferðar á. Fráhvarfseinkenni, einkum þau alvarlegu, koma oftar fram hjá sjúklingum sem fengið hafa stóra skammta yfir lengri tíma. Fráhvarfseinkenni hafa hins vegar einnig komið fram eftir að meðferð með benzódíazepínum í ráðlögðum skömmtum hefur verið hætt. Þar sem hættan á fráhvarfseinkennum og afturkasti er meiri eftir að meðferð er hætt skyndilega, er ráðlagt að minnka skammta smám saman. Þverstæðukennd viðbrögð: Viðbrögð eins og eirðarleysi, æsingur, pirringur, árasarhneigð, ranghugmyndir, ofsareiði, geðrof, óviðeigandi hegðun og aðrar aukaverkanir sem tengjast hegðun geta komið fram við meðferð með benzódíazepíni. Þessar aukaverkanir koma oftar fram hjá börnum og öldruðum. Notkun benzódíazepína getur orsakað heilakvilla hjá sjúklingum með alvarlega skerðingu á lifrarstarfsemi. Gæta skal varúðar þegar lyfið er gefið börnum, öldruðum, heilasködduðum, sjúklingum með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og sjúklingum með hjarta- lungnasjúkdóm. Benzódíazepín, þ.m.t. oxazepam, auka slævandi áhrif á miðtaugakefið, þ.m.t. öndunarbælingu, meiri slævingu, rugláastand og undarleg viðbrögð, þegar þau eru tekin samhliða öðrum lyfjum sem bæla miðtraugakerfið, t.d. ópíóíðum, áfengi, geðrofslyfjum, róandi (slævandi) lyfjum, svefnlyfjum, sefandi lyfjum, svæfingarlyfjum og slævandi andhistamínum. 2

3 Áhætta við samhliðanotkun ópíóíða Samhliðanotkun benzódíazepína og ópíóíða getur leitt til djúprar slævingar, öndunarbælingar, dás og dauða. Slíka samhliðanotkun á því eingöngu að nota hjá sjúklingum sem ekki hafa aðra meðferðarkosti. Ef benzódíazepínum er ávísað samhliða ópíóíðum skal halda skömmtum og meðferðarlengd í lágmarki. Fylgjast skal náið með sjúklingum m.t.t. einkenna öndunarbælingar og slævingar (sjá kafla 4.5). Ef öldruðum eru gefnir of stórir skammtar getur það leitt til ruglástands. Í Sobril töflum er hveitisterkja en hveitisterkja inniheldur glúten í snefilmagni. Lyfið hentar því sjúklingum með glútenóþol (coeliac disease). Sjúklingar með hveitiofnæmi (ekki það sama og glútenóþol) ættu ekki að taka lyfið. 4.5 Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir Samhliðanotkun með áfengi og öðrum efnum sem deyfa miðtaugakerfið (sjá kafla 4.4). Samhliðanotkun benzódíazepína og ópíóíða eykur hættu á slævingu, öndunarbælingu, dái og dauða vegna samverkandi slævandi áhrifa á miðtaugakerfið. Við samhliðanotkun skal því takmarka skammta og lengd meðferðar (sjá kafla 4.4). Samhliðanotkun með suxametóni getur valdið minnkuðum vöðvaslakandi áhrifum, en vöðvaslakandi lyf sem eru curareafleiður geta aukið og lengt vöðvaslakandi áhrif. Getnaðarvarnratöflur geta haft áhrif á umbrot sumra bensódíazepína. Virkjun glúkúrontengingar oxazepams hefur komið fram en hefur líklega ekki klíníska þýðingu. 4.6 Frjósemi, meðganga og brjóstagjöf Meðganga Oxazepam fer yfir fylgju og berst til fósturs og getur við samfellda notkun í langan tíma á meðgöngu valdið slekju (hypotonia), haft áhrif á öndun og valdið lágum líkamshita hjá nýburum (floppy infant syndrome). Einnig hefur verið greint frá ávanabindingu og fráhvarfseinkennum hjá nýburum. Í dýrarannsóknum hefur notkun benzódíazepína hjá dýrum með fangi leitt til klofins góms, skemmda á miðtaugakerfinu og varanlegra starfrænna truflana hjá afkvæmunum. Því skal einungis nota benzódíazepín á meðgöngu ef brýn nauðsyn er fyrir hendi og að undangengnu mati á ávinningi fyrir móðurina á móti áhættu fyrir fóstrið. Brjóstagjöf Oxazepam skilst út í brjóstamjólk þannig að þéttnin í brjóstamjólk er ca. 10% af plasmaþéttni. Sobril má ekki nota samhliða brjóstagjöf. 4.7 Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla Sobril getur haft áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. 4.8 Aukaverkanir Aukaverkanir eru flokkaðar eftir MedDRA líffæraflokkum og eftirtöldum tíðniflokkum: Mjög algengar (>10%), algengar (>1%, 10%), sjaldgæfar (>0,1%, 1%), mjög sjaldgæfar (>0,01%, 0,1%) og tíðni ekki þekkt (ekki hægt að áætla tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum). Aukaverkanir eru skammtaháðar og aldraðir sjúklingar finna frekar fyrir þeim. Algengasta aukaverkunin er sljóleiki, 10-15%, sem venjulega hverfur eftir nokkurra daga meðferð. 3

4 List yfir aukaverkanir í töflu Líffæraflokkur Geðræn vandamál Mjög algengar 1/10 Algengar 1/10 til <1/10 Sjaldgæfar 1/1.000 til <1/100 Taugakerfi Syfja Ósamhæfðar vöðvahreyfingar, sundl, höfuðverkur, framvirkt minnisleysi við stóra skammta Öndunarfæri, brjósthol og miðmæti Húð og undirhúð Mjög sjaldgæfar 1/ til <1/1000 Þverstæðukennd viðbrögð svo sem æsingur, árásarhneigð og ofskynjanir (sjá kafla 4.4), svefnleysi, martraðir Öndunarbæling β Ofnæmisviðbrögð í húð Tíðni ekki þekkt (ekki hægt að áætla tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum) Stoðkerfi og Máttleysi í stoðvefur vöðvum β Umfang öndunarbælingar af völdum benzódíazepína er skammtaháð, alvarleg öndunarbæling kemur fram við stóra skammta. Tilkynning aukaverkana sem grunur er um að tengist lyfinu Eftir að lyf hefur fengið markaðsleyfi er mikilvægt að tilkynna aukaverkanir sem grunur er um að tengist því. Þannig er hægt að fylgjast stöðugt með sambandinu milli ávinnings og áhættu af notkun lyfsins. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu til Lyfjastofnunar, Ofskömmtun Oxazepam er benzódíazepínafleiða sem efnafræðilega séð er frábrugðin diazepami og nitrazepami vegna virks OH-hóps sem leiðir til skjótrar glúkúrontengingar og þar með til verulega minnkaðrar hættu á eiturverkunum. LD 50 hjá oxazepami eftir inntöku hjá músum og rottum er hærra en mg/kg líkamsþyngd. Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif oxazepam á blóðmynd, lifrar- eða nýrnastarfsemi. Eins og hjá öðrum benzódíazepínum er ofskömmtun ekki undir venjulegum kringumstæðum lífshættuleg nema það sé gefið samhliða öðrum miðtaugadeyfilyfjum þ.á m. áfengi. Einkenni ofskömmtunar eru mjög einstaklingsbundin og skammtaháð og geta verið frá sleni, rugli, ósamhæfingu vöðvahreyfinga (ataxia) og lágþrýstingi til öndunarlömunar og meðvitundarleysis. Meðferð: Magaskolun. Lyfjakol. Meðhöndla skal eftir einkennum. Flumazenil getur verið gagnlegt sem mótefni. 4

5 5. LYFJAFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR 5.1 Lyfhrif Flokkun eftir verkun: Róandi og kvíðastillandi lyf. Benzódíazepínafleiður, ATC-flokkur: N 05 B A 04. Verkunarháttur Oxazepam verkar á viðtaka í miðtaugakerfinu sem tengdir eru GABA-fléttunni. Oxazepam er talið auka á GABA áhrif. Oxazepam virðist ekki hafa áhrif á REM svefn, hvorki meðan á meðferð stendur né að henni lokinni. Lyfhrif Kvíðastillandi verkun og með vægari vöðvaslakandi áhrif en t.d. díazepam. 5.2 Lyfjahvörf Frásog Oxazepam frásogast hægar en diazepam eftir inntöku, með minni tilhneigingu til hærri upphafsþéttni. Hámarksþéttni í plasma næst eftir um það bil 2-4 klst. Frásog er óháð fæðuinntöku. Dreifing Dreifingarrúmmál: 0,6-2,0 l/kg líkamsþunga. Binding við plasmaprótein er 94-97% og á lægri talan við um sjúklinga með skerta nýrnastarfsemi. Umbrot Fábrotin/einföld efnaskipti án virkra lífefna. Brotthvarf Helmingunartími er á venjulega klst, sem gerir að uppsöfnun í líkamanum við endurtekna skömmtun hefur verulega minni þýðingu en hjá öðrum benzódíazepínafleiðum. U.þ.b. 80% skilst út um nýru, aðallega sem glúkúroníð. Úthreinsun 0,9-2,0 ml/mín/kg líkamsþunga. Úthreinsun er að fullu lokið eftir 2-3 daga. Hvorki aldur né lifrarsjúkdómar hafa áhrif á lyfjahvörf oxazepams, en nýrnasjúkdómar geta leitt til lengri helmingunartíma og aukins dreifingarrúmmáls. 5.3 Forklínískar upplýsingar Rannsóknir á krabbameinsvaldandi áhrifum hjá rottum sýndu fram á framvindu kirtilæxlis og krabbameins í lifur ásamt eggbúsfrumuæxlis í skjaldkirtli. Hjá karlkyns rottum kom fram millifrumuæxli í eistum og kirtilsæxli í blöðruhálskirtli. Rannsóknir á krabbameinsvaldandi áhrifum hjá músum hafa sýnt fram á krabbameinsvaldandi áhrif í lifur. 6. LYFJAGERÐARFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR 6.1 Hjálparefni Örkristölluð sellulósa, tvíbasískt kalsíumfosfat, hveitisterkja, natríumglýkólatsterkja, magnesíumsterat, vatnsfrítt kísiltvíoxíð, póvídón, natríumlárýlsúlfat. 6.2 Ósamrýmanleiki Á ekki við. 5

6 6.3 Geymsluþol Sobril töflur 10 mg: 18 mánuðir Sobril töflur 15 mg og 25 mg: 3 ár. 6.4 Sérstakar varúðarreglur við geymslu Geymið við lægri hita en 25 C. 6.5 Gerð íláts og innihald 25 og 100 töflur í PVC/PVDC þynnupakkningum. 250 töflur í plastglösum. 6.6 Sérstakar varúðarráðstafanir við förgun og önnur meðhöndlun Farga skal öllum lyfjaleifum og/eða úrgangi í samræmi við gildandi reglur. 7. MARKAÐSLEYFISHAFI Pfizer ApS Lautrupvang Ballerup K Danmörk. 8. MARKAÐSLEYFISNÚMER 10 mg: MTnr (IS). 15 mg: MTnr (IS). 25 mg: MTnr (IS). 9. DAGSETNING FYRSTU ÚTGÁFU MARKAÐSLEYFIS/ENDURNÝJUNAR MARKAÐSLEYFIS Dagsetning fyrstu útgáfu markaðsleyfis: 1. janúar 1985 Nýjasta dagsetning endurnýjunar markaðsleyfis: 21. ágúst DAGSETNING ENDURSKOÐUNAR TEXTANS 24. október

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Lexotan 3 mg töflur. Lexotan 6 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Brómazepam 3 mg og 6 mg. Hjálparefni: Lexotan 3 mg inniheldur laktósaeinhýdrat sem jafngildir 89,7

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Kodein Meda 25 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur kódeinfosfathemihýdrat 25 mg. Hjálparefni með þekkta verkun: Laktósaeinhýdrat 100 mg, natríummetabisulfit

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Alprazolam Mylan 0,25 mg töflur. Alprazolam Mylan 0,5 mg töflur. Alprazolam Mylan 1 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 0,25 mg, 0,5 mg eða 1

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Peratsin 2 mg húðaðar töflur Peratsin 4 mg húðaðar töflur Peratsin 8 mg húðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING 2 mg tafla: Hver tafla inniheldur 2 mg af perphenazíni.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Metadon Abcur 40 mg töflur 2. INNIHALDSLÝSING 40 mg: 1 tafla inniheldur 40 mg metadónhýdróklóríð. Hjálparefni með þekkta verkun: 40 mg: 1 tafla inniheldur 180

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEKUM LYFS 1. HEITI LYFS Tradolan 50 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 50 mg af tramadólhýdróklóríði. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3. LYFJAFORM

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI DÝRALYFS PHENOLEPTIL 25 mg töflur handa hundum 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur Virk innihaldsefni mg Fenóbarbital 25 Hjálparefni: Sjá lista yfir öll hjálparefni

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Tramadol Actavis 50 mg hylki, hörð. 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hylki inniheldur virka efnið tramadólhýdróklóríð, 50 mg. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEKUM LYFS 1. HEITI LYFS Tradolan 50 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 50 mg af tramadólhýdróklóríði. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3. LYFJAFORM

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 500 mg af parasetamóli 30 mg af kódeinfosfathemihýdrati.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 500 mg af parasetamóli 30 mg af kódeinfosfathemihýdrati. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Parkódín forte 500 mg/30 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 500 mg af parasetamóli 30 mg af kódeinfosfathemihýdrati. Hjálparefni

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Metadon Abcur 10 mg töflur 2. INNIHALDSLÝSING 10 mg: 1 tafla inniheldur 10 mg metadónhýdróklóríð. Hjálparefni með þekkta verkun: 10 mg: 1 tafla inniheldur 158,4

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver ml af lausn inniheldur 2,0 mg af Brimonidintartrati, sem jafngildir 1,3 mg af brimonidini.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver ml af lausn inniheldur 2,0 mg af Brimonidintartrati, sem jafngildir 1,3 mg af brimonidini. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Brimonidin Bluefish 2 mg/ml augndropar, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hver ml af lausn inniheldur 2,0 mg af Brimonidintartrati, sem jafngildir 1,3 mg af brimonidini.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hýdroxýklórókínsúlfat 200 mg (sem jafngildir 155 mg af hýdroxýklórókínbasa).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hýdroxýklórókínsúlfat 200 mg (sem jafngildir 155 mg af hýdroxýklórókínbasa). SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Plaquenil 200 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hýdroxýklórókínsúlfat 200 mg (sem jafngildir 155 mg af hýdroxýklórókínbasa). Hjálparefni með þekkta verkun:

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Methergin 0,2 mg/ml stungulyf, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hver lykja inniheldur methylergometrinmaleat 0,2 mg/ml. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Tramól-L 100 mg forðatöflur Tramól-L 150 mg forðatöflur Tramól-L 200 mg forðatöflur 2. INNIHALDSLÝSING Tramól-L 100 mg forðatöflur Hver tafla inniheldur 100 mg

Διαβάστε περισσότερα

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda FYLGISEÐILL FYRIR PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda 1. HEITI OG HEIMILISFANG MARKAÐSLEYFISHAFA OG ÞESS FRAMLEIÐANDA SEM BER ÁBYRGÐ Á LOKASAMÞYKKT, EF ANNAR Markaðsleyfishafi: Nafn: Le Vet B.V. Heimilisfang:

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Cisordinol Depot 200 mg/ml stungulyf, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Zúklópentixóldekanóat 200 mg/ml Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3. LYFJAFORM Stungulyf,

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Canesten 1% krem 2. INNIHALDSLÝSING 1 g af kremi inniheldur 10 mg af klótrímazóli. Hjálparefni með þekkta verkun: 1 g af lyfinu inniheldur 10 mg af cetosterýlalkóhóli.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Parkódín 500/10 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING 500 mg og kódeinfosfathemihýdrat 10 mg. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3. LYFJAFORM Tafla. Hvítar,

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Tramól-L 100 mg forðatöflur Tramól-L 150 mg forðatöflur Tramól-L 200 mg forðatöflur 2. INNIHALDSLÝSING Tramól-L 100 mg forðatöflur Hver tafla inniheldur 100 mg

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Terbinafin Bluefish 250 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 250 mg af terbinafini (sem terbinafinhýdróklóríð). Sjá lista yfir öll hjálparefni

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI DÝRALYFS Aniketam vet. 100 mg/ml stungulyf, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Virk innihaldsefni: Ketamín 100 mg (Jafngildir 115,33 mg ketamínhýdróklóríð) Hjálparefni: Klórókresól

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Klorokinfosfat Recip 160 mg filmuhúðaðar töflur. Klorokinfosfat Recip 250 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Klorokinfosfat 160 mg eða 250 mg. Sjá lista

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 forðatafla inniheldur 5 mg felodipin og metoprololsúkkínat 47,5 mg (samsvarandi 50 mg metoprololtartrat).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 forðatafla inniheldur 5 mg felodipin og metoprololsúkkínat 47,5 mg (samsvarandi 50 mg metoprololtartrat). SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Logimax 5 mg/47,5 mg forðatöflur. 2. INNIHALDSLÝSING 1 forðatafla inniheldur 5 mg felodipin og metoprololsúkkínat 47,5 mg (samsvarandi 50 mg metoprololtartrat).

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Quinine Sulfate Actavis 200 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 200 mg af kínín súlfati. Sjá lista yfir öll hjálparefni

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Fenemal Meda 15 mg töflur. Fenemal Meda 50 mg töflur. Fenemal Meda 100 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur phenobarbital 15 mg, 50 mg eða 100

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Quinine Sulfate Actavis 200 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 200 mg af kínín súlfati. Sjá lista yfir öll hjálparefni

Διαβάστε περισσότερα

FYLGISEÐILL FYRIR: Aniketam vet. 100 mg/ml stungulyf, lausn

FYLGISEÐILL FYRIR: Aniketam vet. 100 mg/ml stungulyf, lausn FYLGISEÐILL FYRIR: Aniketam vet. 100 mg/ml stungulyf, lausn 1. HEITI OG HEIMILISFANG MARKAÐSLEYFISHAFA OG ÞESS FRAMLEIÐANDA SEM BER ÁBYRGÐ Á LOKASAMÞYKKT, EF ANNAR Markaðsleyfishafi og framleiðandi sem

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Spiron 25 mg töflur Spiron 50 mg töflur Spiron 100 mg töflur 2. INNIHALDSLÝSING Ein tafla inniheldur 25 mg, 50 mg eða 100 mg af spírónólaktóni. Hjálparefni með

Διαβάστε περισσότερα

Hvítar eða næstum hvítar filmuhúðaðar, kringlóttar, tvíkúptar töflur, ígreyptar GX EH3 á annarri hliðinni og A á hinni hliðinni.

Hvítar eða næstum hvítar filmuhúðaðar, kringlóttar, tvíkúptar töflur, ígreyptar GX EH3 á annarri hliðinni og A á hinni hliðinni. 1. HEITI LYFS Alkeran 2 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 2 mg af melfalani. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3. LYFJAFORM Filmuhúðuð tafla Hvítar eða næstum hvítar

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Oracea 40 mg hörð hylki með breyttan losunarhraða 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hylki inniheldur 40 mg doxýcýklín (sem einhýdrat). Hjálparefni með þekkta verkun: Hvert

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS AMMONAPS 500 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Í hverri töflu eru 500 mg af natríumfenýlbútýrati. Í hverri töflu eru 62 mg af natríum. Sjá lista yfir

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 23,75 mg, 47,5 mg, 95 mg eða 190 mg af metoprololsuccinati.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 23,75 mg, 47,5 mg, 95 mg eða 190 mg af metoprololsuccinati. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Seloken ZOC 23,75 mg forðatöflur. Seloken ZOC 47,5 mg forðatöflur. Seloken ZOC 95 mg forðatöflur. Seloken ZOC 190 mg forðatöflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla

Διαβάστε περισσότερα

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti.

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti. FYLGISEÐILL Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti 1. HEITI OG HEIMILISFANG HANDHAFA MARKAÐSLEYFIS OG ÞESS FRAMLEIÐANDA SEM BER ÁBYRGÐ Á LOKASAMÞYKKT, EF ANNAR Laboratorios SYVA S.A.U.,

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Cystadane 1 g duft til inntöku 2. INNIHALDSLÝSING 1 g af dufti inniheldur 1 g af vatnsfríu betaíni. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Finasteride Alvogen 5 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 5 mg af fínasteríði Hjálparefni með þekkta verkun Hver filmuhúðuð tafla

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af esomeprazoli (sem magnesíumtvíhýdrat).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af esomeprazoli (sem magnesíumtvíhýdrat). SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Eradizol 20 mg magasýruþolnar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af esomeprazoli (sem magnesíumtvíhýdrat). Hjálparefni með þekkta

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Travoprost Alvogen 40 míkrógrömm/ml, augndropar, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hver ml af lausn inniheldur 40 míkrógrömm af travóprosti. Meðaltal virks efnis/dropa:

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Monoprost 50 míkróg/ml augndropar, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING 1 ml af augndropum, lausn inniheldur 50 míkróg af latanóprosti. Einn dropi inniheldur um það bil

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS TAFLOTAN 15 míkrógrömm/ml augndropar, lausn í stakskammtaíláti 2. VIRK INNIHALDSEFNI OG STYRKLEIKAR Einn ml af augndropum, lausn, inniheldur 15 míkrógrömm af

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver sýruþolin tafla inniheldur 400 mg (Asacol 400 mg) eða 800 mg (Asacol 800 mg) af mesalazíni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver sýruþolin tafla inniheldur 400 mg (Asacol 400 mg) eða 800 mg (Asacol 800 mg) af mesalazíni. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Asacol 400 mg og 800 mg sýruþolnar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver sýruþolin tafla inniheldur 400 mg (Asacol 400 mg) eða 800 mg (Asacol 800 mg) af mesalazíni.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Esopram 5 mg filmuhúðaðar töflur Esopram 10 mg filmuhúðaðar töflur Esopram 15 mg filmuhúðaðar töflur Esopram 20 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Esopram

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS CIPRALEX 5 mg filmuhúðaðar töflur CIPRALEX 10 mg filmuhúðaðar töflur CIPRALEX 15 mg filmuhúðaðar töflur CIPRALEX 20 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Lopid 300 mg, hart hylki Lopid 600 mg, filmuhúðuð tafla 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hart hylki inniheldur gemfíbrózíl 300 mg. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur gemfíbrózíl

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Seloken 1 mg/ml stungulyf, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING 1 ml af stungulyfi inniheldur 1 mg af metoprololtartrati. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3.

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS RILUTEK 50 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 50 mg af rílúzóli. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Padviram 600 mg/200 mg/245 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 600 mg af efavírenzi, 200 mg af emtrícítabíni og 245 mg

Διαβάστε περισσότερα

Venofer 20 mg járn/ml stungulyf, lausn og innrennslisþykkni, lausn.

Venofer 20 mg járn/ml stungulyf, lausn og innrennslisþykkni, lausn. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Fentanyl ratiopharm 12 míkrógrömm/klst. forðaplástur. Fentanyl ratiopharm 25 míkrógrömm/klst. forðaplástur. Fentanyl ratiopharm 50 míkrógrömm/klst. forðaplástur.

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Relistor 12 mg/0,6 ml stungulyf, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hettuglas með 0,6 ml inniheldur 12 mg af metýlnaltrexónbrómíði. Einn ml af lausn

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Fontex 20 mg dreifitafla. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 20 mg flúoxetín (sem flúoxetínhýdróklóríð). Hjálparefni með þekkta verkun: hver tafla inniheldur

Διαβάστε περισσότερα

Meðalmánaðardagsumferð 2009

Meðalmánaðardagsumferð 2009 Meðalmánaðardagsumferð 2009 Almennt Á meðfylgjandi stöplaritum gefur að líta, hvernig umferð um 74 staði/snið dreifist hlutfallslega eftir mánuðum yfir árið 2009. Í upphafi var ákveðið að velja alla talningarstaði,

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Ein tuggutafla inniheldur natríummontelúkast, sem jafngildir 4 mg af montelúkasti.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Ein tuggutafla inniheldur natríummontelúkast, sem jafngildir 4 mg af montelúkasti. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Singulair 4 mg tuggutöflur. 2. INNIHALDSLÝSING Ein tuggutafla inniheldur natríummontelúkast, sem jafngildir 4 mg af montelúkasti. Hjálparefni með þekkta verkun:

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Nexium Control 20 mg magasýruþolnar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af esomeprazoli (sem magnesíumþríhýdrat).

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Sporanox 100 mg hörð hylki. 2. INNIHALDSLÝSING Eitt hylki inniheldur 100 mg af itraconazoli. Hjálparefni: Súkrósi. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Senokot (Icepharma), töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur mulin aldin (fræbelgi) Senna plantna, bæði Alexandrian Senna (Cassia senna L. (C. acutifolia

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Lamictal 2 mg tuggu-/dreifitöflur. Lamictal 5 mg tuggu-/dreifitöflur. Lamictal 25 mg tuggu-/dreifitöflur. Lamictal 50 mg tuggu-/dreifitöflur. Lamictal 100 mg

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Dexdor 100 míkrógrömm/ml innrennslisþykkni, lausn 2. INNIHALDSLÝSING Hver ml af þykkni inniheldur dexmedetomidín hýdróklóríð sem jafngildir 100 míkrógrömmum

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tuggutafla inniheldur montelukastnatríum (4,16 mg), sem jafngildir 4 mg af montelukasti.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tuggutafla inniheldur montelukastnatríum (4,16 mg), sem jafngildir 4 mg af montelukasti. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Montelukast Teva 4 mg tuggutöflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tuggutafla inniheldur montelukastnatríum (4,16 mg), sem jafngildir 4 mg af montelukasti. Hjálparefni

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI DÝRALYFS Amoxibactin vet 250 mg töflur fyrir hunda 2. INNIHALDSLÝSING 1 tafla inniheldur: Virkt innihaldsefni: Amoxicillín 250 mg (jafngildir 287,50 mg af amoxicillínþríhýdrati)

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS S-ketamin Pfizer 5 mg/ml stungulyf, lausn. S-ketamin Pfizer 25 mg/ml stungulyf, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING S-ketamin Pfizer 5 mg/ml Hver ml af stungulyfi inniheldur

Διαβάστε περισσότερα

Viðauki III. Samantekt á eiginleikum lyfs, áletranir og fylgiseðill

Viðauki III. Samantekt á eiginleikum lyfs, áletranir og fylgiseðill Viðauki III Samantekt á eiginleikum lyfs, áletranir og fylgiseðill Athugasemd: Þessi samantekt á eiginleikum lyfsins, áletranir og fylgiseðill er niðurstaða málskotsferilsins sem þessi ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Cinacalcet Mylan 30 mg filmuhúðaðar töflur. Cinacalcet Mylan 60 mg filmuhúðaðar töflur. Cinacalcet Mylan 90 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI DÝRALYFS Eficur vet. 50 mg/ml stungulyf, dreifa handa svínum og nautgripum. 2. INNIHALDSLÝSING 1 ml inniheldur: Ceftiofur 50 mg (sem ceftiofurhýdróklóríð) Sjá lista

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS STARLIX 60 mg filmuhúðaðar töflur STARLIX 120 mg filmuhúðaðar töflur STARLIX 180 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING STARLIX 60 mg filmuhúðaðar

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Solu-Medrol 40 mg, 125 mg og 500 mg stungulyfsstofn og leysir, lausn.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Solu-Medrol 40 mg, 125 mg og 500 mg stungulyfsstofn og leysir, lausn. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Solu-Medrol 40 mg, 125 mg og 500 mg stungulyfsstofn og leysir, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Metýlprednisólon 40 mg, 125 mg og 500 mg sem metýlprednisólonnatríumsúkkínat.

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Siklos 100 mg filmuhúðaðar töflur. Siklos 1000 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Siklos 100 mg filmuhúðaðar töflur Hver filmuhúðuð tafla

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver húðuð tafla inniheldur 2 mg af cyproteronacetati og 0,035 mg (35 míkrógrömm) af etinylestradioli sem virk efni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver húðuð tafla inniheldur 2 mg af cyproteronacetati og 0,035 mg (35 míkrógrömm) af etinylestradioli sem virk efni. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Cypretyl 2 mg/35 míkrógrömm húðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver húðuð tafla inniheldur 2 mg af cyproteronacetati og 0,035 mg (35 míkrógrömm) af etinylestradioli

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Emla 25 mg/g + 25 mg/g krem 2. INNIHALDSLÝSING 1 g af kremi inniheldur 25 mg af lidocaini og 25 mg af prilocaini. Hjálparefni með þekkta verkun: Macrogolglýserólhýdroxýsterat

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Plenadren 5 mg töflur með breyttan losunarhraða Plenadren 20 mg töflur með breyttan losunarhraða 2. INNIHALDSLÝSING Plenadren 5 mg töflur með breyttan

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft Budesonid/formoterolfumarattvíhýdrat Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Quetiapin Hexal 50 mg inniheldur 50 mg af quetiapini (sem quetiapinfúmarat)

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Quetiapin Hexal 50 mg inniheldur 50 mg af quetiapini (sem quetiapinfúmarat) SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Quetiapin Hexal 50 mg forðatöflur Quetiapin Hexal 150 mg forðatöflur Quetiapin Hexal 200 mg forðatöflur Quetiapin Hexal 300 mg forðatöflur Quetiapin Hexal 400

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Targin 5 mg/2,5 mg forðatöflur Targin 10 mg/5 mg forðatöflur Targin 20 mg/10 mg forðatöflur Targin 40 mg/20 mg forðatöflur 2. INNIHALDSLÝSING Targin 5 mg/2,5

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Διαβάστε περισσότερα

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014 Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014 Nýtt kjarnfóður frá Bústólpa PREMIUM PRO-FIT 17 PREMIUM PRO-FIT 13 Nýtt kjarnfóður frá Bústólpa PREMIUM PRO-FIT 17 Kjarnfóður sem ætlað er að hámarka fitu,

Διαβάστε περισσότερα

Symbicort forte Turbuhaler, 320 míkrógrömm/9 míkrógrömm /skammt, innöndunarduft.

Symbicort forte Turbuhaler, 320 míkrógrömm/9 míkrógrömm /skammt, innöndunarduft. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Symbicort forte Turbuhaler, 320 míkrógrömm/9 míkrógrömm /skammt, innöndunarduft. 2. INNIHALDSLÝSING Hver gefinn skammtur (skammturinn sem berst úr munnstykkinu)

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI DÝRALYFS Semintra 4 mg/ml mixtúra, lausn handa köttum. 2. INNIHALDSLÝSING Einn ml inniheldur: Virk innihaldsefni: Telmisartan Hjálparefni: Benzalkónklóríð

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Cefotaxim Villerton stungulyfsstofn, lausn 2. INNIHALDSLÝSING Cefotaxím natríum sem samsvarar 0,5 g af cefotaxími Cefotaxím natríum sem samsvarar 1 g af cefotaxími

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Lamotrigin ratiopharm 25 mg dreifitöflur. Lamotrigin ratiopharm 50 mg dreifitöflur. Lamotrigin ratiopharm 100 mg dreifitöflur. Lamotrigin ratiopharm 200 mg dreifitöflur.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 50 mg/ml: 1 ml af fullbúinni mixtúru, dreifu inniheldur amoxicillin þríhýdrat, samsvarandi 50 mg af amoxicillini.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 50 mg/ml: 1 ml af fullbúinni mixtúru, dreifu inniheldur amoxicillin þríhýdrat, samsvarandi 50 mg af amoxicillini. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Amoxin 50 mg/ml mixtúruduft, dreifa. Amoxin 100 mg/ml mixtúruduft, dreifa. 2. INNIHALDSLÝSING 50 mg/ml: 1 ml af fullbúinni mixtúru, dreifu inniheldur amoxicillin

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS ADASUVE 4,5 mg innöndunarduft, afmældir skammtar 2. INNIHALDSLÝSING Hvert stakskammta innöndunartæki inniheldur 5 mg af loxapíni og gefur 4,5 mg af

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS TRIZIVIR 300 mg/150 mg/300 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur abacavír 300 mg (sem súlfat), lamivúdín 150

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli 2. INNIHALDSLÝSING Eitt gramm af smyrsli inniheldur 50 míkrógrömm af kalsípótríóli (sem einhýdrat), og 0,5 mg af betametasóni

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Fluconazol Krka 50 mg hörð hylki. Fluconazol Krka 100 mg hörð hylki. Fluconazol Krka 150 mg hörð hylki. Fluconazol Krka 200 mg hörð hylki. 2. INNIHALDSLÝSING

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Duloxetine Mylan 30 mg hörð sýruþolin hylki Duloxetine Mylan 60 mg hörð sýruþolin hylki 2. INNIHALDSLÝSING 30 mg hylki Hvert hylki inniheldur 30 mg

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Quetiapin Krka 50 mg forðatöflur. Quetiapin Krka 150 mg forðatöflur. Quetiapin Krka 200 mg forðatöflur. Quetiapin Krka 300 mg forðatöflur. 2. INNIHALDSLÝSING

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Diane mite filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli. Hver tafla inniheldur

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur amoxicillinþríhýdrat sem jafngildir750 mg af amoxicillíni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur amoxicillinþríhýdrat sem jafngildir750 mg af amoxicillíni. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Amoxicillin Mylan 750 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur amoxicillinþríhýdrat sem jafngildir750 mg af amoxicillíni. Sjá lista yfir

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Rabeprazol Medical Valley 10 mg magasýruþolnar töflur Rabeprazol Medical Valley 20 mg magasýruþolnar töflur rabeprazolnatríum Lesið allan fylgiseðilinn vandlega

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Olanzapine Teva 2,5 mg filmuhúðaðar töflur 2. VIRK INNIHALDSEFNI OG STYRKLElKAR Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 2,5 mg olanzapín. Hjálparefni með

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI DÝRALYFS Veraflox 15 mg töflur handa hundum og köttum. Veraflox 60 mg töflur handa hundum. Veraflox 120 mg töflur handa hundum. 2. INNIHALDSLÝSING Hver

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Valsartan ratiopharm 40 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 40 mg af valsartani. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir)

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir) Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir) Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en þú eða barnið eruð bólusett.

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Norditropin SimpleXx 5 mg/1,5 ml, stungulyf, lausn í rörlykju Norditropin SimpleXx 10 mg/1,5 ml, stungulyf, lausn í rörlykju Norditropin SimpleXx 15 mg/1,5 ml,

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS PROCYSBI 25 mg magasýruþolin hörð hylki. PROCYSBI 75 mg magasýruþolin hörð hylki. 2. INNIHALDSLÝSING PROCYSBI 25 mg hart hylki. Hvert hart hylki inniheldur

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Matever 250 mg filmuhúðaðar töflur Matever 500 mg filmuhúðaðar töflur Matever 750 mg filmuhúðaðar töflur Matever 1.000 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING

Διαβάστε περισσότερα

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hvert hettuglas inniheldur 3,5 mg af bortezomibi (sem mannitólbórester).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hvert hettuglas inniheldur 3,5 mg af bortezomibi (sem mannitólbórester). SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS VORTEMYEL 3,5 mg stungulyfsstofn, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hettuglas inniheldur 3,5 mg af bortezomibi (sem mannitólbórester). Eftir blöndun inniheldur

Διαβάστε περισσότερα