SKRIFLEGT PRÓF. Númer og heiti prófgreinar: LÆK210G Lífefna- og sameindalíffræði B Prófdagur og tími: 23. mars 2009, kl.

Σχετικά έγγραφα
Meðalmánaðardagsumferð 2009

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

16 kafli stjórn efnaskipta

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir

Inniheldur mjög hreint og öflugt (1-3), (1-6) betaglúkan. Eykur magn EPA og DHA í líkamanum á öruggan og skilvirkan hátt.

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T

Þriggja fasa útreikningar.

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda

LeanShake. Helstu kostir: ZINZINO

LeanShake. Helstu kostir: ZINZINO

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

Menntaskólinn í Reykjavík

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 1228/2014. frá 17. nóvember 2014

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g hlaup. kalsípótríól/betametasón

Hvað er astmi? Hvað gerist við astma?

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli. kalsípótríól/betametasón

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti.

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3)

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Bisbetol plus 10 mg/25 mg filmuhúðaðar töflur. Bísóprólól fúmarat og hýdróklórótíazíð

Líkindi Skilgreining

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2014

Skilaverkefni 1. Skil á þriðjudaginn

RAF301G Merki og kerfi Miðmisserispróf, lausn

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Solu-Medrol 40 mg, 125 mg og 500 mg stungulyfsstofn og leysir, lausn.

Mataræði á meðgöngu. Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 forðatafla inniheldur 5 mg felodipin og metoprololsúkkínat 47,5 mg (samsvarandi 50 mg metoprololtartrat).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Skrifað út ; 18:59 gk. 6. kafli, dæmi og svör með útreikningum

Almenn Efnafræði V, EFN301G ******************************************* 2. Hlutapróf haustannar 2014 Þriðjudagur 21. Október 2014

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hýdroxýklórókínsúlfat 200 mg (sem jafngildir 155 mg af hýdroxýklórókínbasa).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af esomeprazoli (sem magnesíumtvíhýdrat).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

PRÓF Í VERÐBRÉFAVIÐSKIPTUM III. HLUTI

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

CHEMISTRY. Eðli orkunnar. Kafli 5 Varmaefnafræði. Hiti-varmi. MR efnafræði í 4. bekk. The Central Science 9th Edition. David P.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Quetiapin Hexal 50 mg inniheldur 50 mg af quetiapini (sem quetiapinfúmarat)

Ráðleggingar. um mataræði. fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri

Kafli 1: Tímastuðull RC liður. Dæmi 1.1 A: 3,3ms B: 7,56V Dæmi 1.2 A: 425µF B: 1s Dæmi 1.3 A: 34,38V B: 48,1V Dæmi 1.4 A: 59,38s

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Venofer 20 mg járn/ml stungulyf, lausn og innrennslisþykkni, lausn.

24 sem x stendur fyrir hluta í ppm og M er mólmassi efnisins. Skrifað út ; 19:01 gk. Skrifað út ; 19:01 gk

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver húðuð tafla inniheldur 2 mg af cyproteronacetati og 0,035 mg (35 míkrógrömm) af etinylestradioli sem virk efni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir)

Rit LbhÍ nr Áhrif aldurs áa, þunga, holda og framleiðsluára. á gagnasafni Hestbúsins

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Greinargerð Trausti Jónsson. Sveiflur IV. Árstíðasveiflur í háloftunum yfir Keflavík

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur

FYLGISEÐILL FYRIR: Aniketam vet. 100 mg/ml stungulyf, lausn

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

4.01 Maður ekur 700 km. Meðalhraðinn er 60 km/klst fyrstu 250 km og 75 km/klst síðustu 450 km. Hver er meðalhraðinn?

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

Ósjálfráða taugakerfið - Autonomic Nervous System Kafli. ( Sjálfvirka taugakerfið - Dultaugakerfið )

Um flokkun sorps og spilliefna gilda ýmsar innlendar og alþjóðlegar reglur sem Háskóli Íslands hlítir. Í sérhverri bygg-

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Ráðleggingar. um mataræði. fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri

Skýrsla nefndar um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna. í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 4. júní 1996

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver ml af lausn inniheldur 2,0 mg af Brimonidintartrati, sem jafngildir 1,3 mg af brimonidini.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tuggutafla inniheldur montelukastnatríum (4,16 mg), sem jafngildir 4 mg af montelukasti.

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Transcript:

Prófstaður Eintakafjöldi: SKRIFLEGT PRÓF Deild: Læknadeild Kennarar: Ingibjörg Harðardóttir (s. 898-7655), Guðrún V. Skúladóttir (s. 695-8301), Jón Jóhannes Jónsson (s. 824-5917), Ísleifur Ólafsson (824-5332). Númer og heiti prófgreinar: LÆK210G Lífefna- og sameindalíffræði B Prófdagur og tími: 23. mars 2009, kl. 9:00-12:00 Úrlausnir skulu merktar: Með nafni: EÐA með nemendanúmeri: x x Línustrikuð prófbók Rúðustrikuð prófbók Prófbók óþörf x Tölvutæk svarblöð Hjálpargögn: x Engin Vasareiknir Tölva með textaminni Bækur, greinar, gögn, tæki: Önnur fyrirmæli: Aðgangur að prófverkefni að loknu prófi: x Kennari veitir aðgang að prófverkefni Kennslusvið setur eintak í prófasafn (sjálfgefið ef annað er ekki tilgreint) (Prófasafnið opnast undir vefkerfi H.Í. Aðgangi að prófverkefnum er stýrt eftir skráningu nemenda.) Samkvæmt 60. grein Reglna um Háskóla Íslands skulu einkunnir birtar í síðasta lagi þremur vikum eftir hvert próf, nema eftir desemberpróf, þá eftir fjórar vikur. Einkunnum skal skilað til skrifstofu viðkomandi deildar.

Háskóli Íslands, Læknadeild Læknisfræði Ingibjörg Harðardóttir 23. mars, 2009 Jón Jóhannes Jónsson 09:00-12:00 Guðrún V. Skúladóttir Nemendanúmer: Ísleifur Ólafsson LÆK210G Lífefna- og sameindalíffræði B Prófið er ÞRJÁR klukkustundir: A. 60 krossaspurningar. MERKTU SVÖRIN Á TÖLVUTÆK SVARBLÖÐ. Áætlaður tími 90 mín. Vægi krossaspurninga er jafnt. Merktu aðeins við eitt atriði sem er réttast fyrir hverja spurningu. 1/5 verður dreginn frá fyrir rangt svar. Hættirðu við að svara spurningu eftir að hafa áður krossað við svarlið skaltu strika yfir alla svarliði spurningarinnar B. 14 textaspurningar. Áætlaður tími 90 mín. Vægi hverrar textaspurningar er tilgreint með tíma. Þér er eindregið ráðlagt að skipuleggja tíma til svars í samræmi við vægi spurninganna. Svaraðu textaspurningum í línustrikaða prófbók. Svör við textaspurningum skulu vera skýr og skorinorð. Prófinu má svara á íslensku, ensku eða norðurlandamáli. Mundu að merkja öll prófgögn með nemendanúmeri. Farsímar eru óheimilir á prófstað. Vinsamlegast afhentu farsíma prófgæslufólki. Engin hjálpargögn eru leyfð. Skila þarf öllum prófgögnum, þ.á.m. spurningum. Gangi þér vel! 1 af 16

Krossaspurningar Merktu við réttasta svarið í spurningum 1-60 á tölvutæk svarblöð. 1. AMP er hluti af eftirfarandi kóensímum nema: 1) NAD 2) NADP 3) Kóensím A 4) Vítamín A 5) FAD 2. Hvað af eftirfarandi á við um þvagsýru? 1) Mynduð við hvarf xantíns og súrefnis 2) Er niðurbrotsefni cýtidíns 3) Vantar í þvagsýrugigt 4) Er samkeppnishindri (inhibitor) á xanthín oxidasa 5) Er oxuð í mönnum áður en hún er skilin út í þvagi 3. Hem oxýgenasi: 1) notar súrefni sem hvarfefni 2) breytir pyrról hópum í vínýlhópa 3) myndar bílírúbín 4) myndar CO 2 5) getur notað bæði hem og prótóporfýrín IX sem hvarfefni 4. Helsta flutningsprótein járns í plasma er: 1) ferritín 2) transferrín 3) laktóferrín 4) hem 5) hemósiderín 5. Hvað af eftirfarandi próteinum færist hægast og er staðsett næst katóðu (neikvæðu skauti) eftir rafdrátt á sermi? 1) Haptóglóbúlín 2) Immúnóglóbúlín G 3) Transferrín 4) Alpha-2-makróglóbúlín 5) Albúmín 2 af 16

6. Thrombín sker öll eftirfarandi prótein nema: 1) storkuþátt V 2) storkuþátt VIII 3) storkuþátt XIII 4) fíbrínógen 5) hemópexín 7. Allar eftirfarandi fullyrðingar eiga við um starfsemi öndunarkeðjunnar nema: 1) kóensím Q10 hefur eiginleika andoxunarefnis 2) kóensím Q10 tekur við rafeindum frá komplex I 3) hindri fyrir komplex I kemur í veg fyrir súrefnisháða fosfórun 4) súrefni tekur við rafeind frá afoxaða kóensíminu Q10 (QH) 5) súrefni tekur við rafeindum frá komplex IV 8. Frátengilsprótein (UCP): 1) örvar súrefnisháða fosfórun 2) hemur súrefnisháða fosfórun 3) hemur súrefnisháða oxun orkuefna 4) dregur úr notkun súrefnis 5) kemur í veg fyrir afoxun súrefnis í öndunarkeðjunni 9. Hvaða af eftirfarandi er ekki hvarfgjarnt sindurefni? 1) HO. 2) NO. 3) Semiquinone (QH) 4) Súperoxíð anjón 5) H 2 O 2 10. Hvað af eftirfarandi á við um glýkólýsu? 1) Í lifur er hexókínasi aðeins virkur eftir neyslu kolvetnaríkrar fæðu 2) Myndun mjólkursýru úr glúkósa krefst súrefnis 3) Myndun mjólkursýru úr glúkósa gefur 2 ATP og 2 NADH 4) Frúktósi 1,6-bisfosfat örvar virkni fosfófrúktókínasa (PFK1) 5) Fosfófrúktókínasi (PFK1) er stýrilensím 3 af 16

11. Hver af eftirfarandi efnaskiptaferlum eru virkir þegar styrkur blóðsykurs er lágur? a) Glýkólýsa í beinagridarvöðva b) Glýkólýsa í lifur c) Glýkógenólýsa í lifur d) Glýkógenólýsa í beinagridarvöðva e) Glúkóneógenesa í lifur 1) a og b eru rétt 2) Aðeins c er rétt 3) Aðeins d er rétt 4) c og d eru rétt 5) c og e eru rétt 12. Við efnaskipti etanóls í lifur myndast acetat og kóensímið NADH í hvatbera. Uppsöfnunin á NADH eykur: 1) virkni TCA hringsins 2) súrefnisháða fosfórun 3) virkni glúkóneógenesu 4) loftfirrða öndun 5) oxun fitusýra 13. Hvað af eftirfarandi á ekki við um efnaferli og tilheyrandi stýrilensím þess? 1) Pentósafosfatferill- glúkósa-6-fosfat dehýdrógenasi 2) Glýkógenólýsa-glýkógen fosfórylasi 3) Glýkólýsa-frúktósa-2,6-bisfosfatasi 4) Glýkólýsa-fosfófruktókínasi 5) Glýkógenesis-glýkógen synþasi 14. Einstaklingur sem skortir vítamínið B1 (þíamín) er með vöðvakrampa og þreytu (fatigue). Vöðvakrampinn er talinn orsakast af uppsöfnun á einni af eftirtöldum sýrum: 1) Oxalóacetat 2) Succínat 3) Ísócítrat 4) Malat 5) Pýrúvat 4 af 16

15. Cori-hringrás tengist: 1) losun glúkósa í vöðva 2) losun mjólkursýru í vöðva 3) nýmyndun glúkósa í vöðva 4) nýmyndun mjólkursýru í lifur 5) ATP myndun í lifur 16. Allar eftirfarandi fullyrðingar eiga við um pýrúvat dehýdrógenasa (PDH) nema: 1) Virknin í lifur er örvuð eftir kolvetnaríka máltíð 2) Virknin í vöðva er örvuð í áreynslu 3) Virknin í lifur er örvuð í áreynslu 4) Virknin í lifur er hindruð í föstu 5) Virknin í lifur stjórnast af orkuástandi 17. Allar eftirfarandi fullyrðingar eiga við um efnaskipti niturs (amínósýra) nema: 1) Oxalóacetat getur myndast úr glúkógenískri amínósýru 2) Glútamat leggur til milliefni í TCA hringinn 3) Ketógenísk amínósýra getur lagt til kolefni í myndun fitusýru 4) Nitur flyst frá vöðva til lifrar á formi þvagefnis 5) Þvagefni er myndað í frymisvökva 18. Kreatín í háorkusambandinu kreatínfosfati er afleiða amínósýranna: 1) Arginín og orniþín 2) Arginín og glýsín 3) Arginín og týrósín 4) Arginín og þreónín 5) Arginín og tryptófan 19. Allar eftirfarandi fullyrðingar eiga við um glútamat nema: 1) Glútamat er flutningsform niturs úr vöðva 2) Glútamat dehýdrógenasi (GDH) örvar losun niturs frá glútamati 3) Glútamat er forveri taugaboðefnisins GABA 4) Glútamat er boðefni 5) Glútamat er ekki lífsnauðsynleg amínósýra 5 af 16

20. Hvað af eftirfarandi er rétt varðandi hormónastjórn efnaskipta (niðurbrotnýmyndun) glýkógens? 1) Glúkagon og adrenalín hafa gagnstæð áhrif á efnaskipti glýkógens 2) Glúkagon örvar niðurbrot glýkógens í lifur 3) Insúlín hemur nýmyndun glýkógens í lifur 4) Glúkagon örvar innra boðkerfið (camp) í vöðva 5) Adrenalín örvar glýkógenesu í vöðva 21. Hvað af eftirfarandi á við varðandi sjúkdóminn fenýlketónúrea (PKU)? 1) Styrkur fenýlpýrúvats er hár í þvagi 2) Styrkur mjólkursýru er hár í þvagi 3) Meðhöndlun er ráðlögð um eins árs aldur 4) Týrósín er ekki lífsnauðsynleg amínósýra 5) Fæðið á að innihalda fenýlalanín 22. Í einstaklingi með ómeðhöndlaða insúlínháða sykursýki (gerð 1) á eftirfarandi sér stað eftir venjulega máltíð: a) Glúkóneógenesan er örvuð í lifur b) Styrkur glúkagons eykst í blóði c) Myndun glýkógens eykst í lifur d) GLUT flutningspróteinum fjölgar í frumuhimnum lifrar e) Áhrifa glúkagons gætir í lifur 1) a, b og c eru rétt 2) b, c og d eru rétt 3) a, b og d eru rétt 4) a, b og e eru rétt 5) c, d og e eru rétt 23. Hver eftirtalinna fullyrðinga á við þegar einstaklingur fær hjartaáfall? 1) Styrkur súrefnis eykst inni í hjartavöðvafrumu 2) Súrefnisháð myndun ATP eykst 3) Myndun mjólkursýru eykst 4) Myndun glúkósa eykst 5) Myndun sindurefna minnkar 24. Í vöðva í langvarandi áreynslu við lága ákefð: 1) er fosfókreatín eina orkuefnið 2) er glúkósi aðalorkuefnið 3) eru fitusýrur aðalorkuefnið 4) eru ketónkroppar eina orkuefnið 5) eru glýkógen og fosfókreatín aðalorkuefnin 6 af 16

25. Hvað af eftirfarandi er rétt varðandi myndun fitusýra? 1) Fer fram í hvatbera 2) Öll kolefnin koma úr acetýl CoA 3) NADH er nauðsynlegt til myndunar fitusýra 4) Karnitínferjan er nauðsynleg til að flytja acetýl CoA á réttan stað í frumunni 5) Kolvetnaríkt fæði letur myndun fitusýra 26. Hormón næmur lípasi (HSL): 1) klýfur fitusýrur af tríacýlglyceróli í fituvef 2) klýfur fitusýrur af tríacýlglyceróli í lifur 3) er örvaður af insúlíni 4) er hindraður af epinefríni (adrenalíni) 5) er óvirkjaður þegar perilipin er fosfórað (phosphorylated) 27. Við hvaða af eftirtöldum aðstæðum eru ketónkroppar (ketone bodies) ekki myndaðir? 1) Í föstu 2) Í insúlínskorti 3) Þegar mikið framboð er af fitusýrum 4) Þegar oxun fitusýra er virk 5) Þegar virkni sítórónusýruhrings er mikil 28. Hvað af eftirtöldu er líklegast til að minnka styrk kólesteróls í blóði? 1) Aukin myndun ketónkroppa 2) Hindrun á virkni HMG-CoA redúktasa 3) Virkjun enteróhepatískrar hringrásar gallsýra 4) Minnkuð losun galls úr líkamanum 5) Örvun á myndun VLDL í lifur 29. Myndun gallsýra er stjórnað af: 1) styrk kólesteróls í blóði 2) magni gallsýra sem kemur aftur til lifrar frá þörmum 3) hlutfalli fitu í fæðinu 4) gallblöðruhreyfli (cholecystokinin) 5) hlutfalli milli styrks glúkagons og styrks insúlíns í blóði 7 af 16

30. Þegar styrkur kólesteróls í frumu eykst leiðir það til eins af eftirfarandi: 1) Minnkaðrar virkni HMG-CoA redúktasa 2) Aukins fjölda LDL viðtaka á yfirborði frumunnar 3) Aukinnar virkni lesitín:kólesteról acýltransferasa (LCAT) 4) Minni virkni acýl-coa:kólesteról acýltransferasa (ACAT) 5) Minni myndunar á VLDL í lifur 31. Einstaklingur er með mjög mikið af tríacýlglyseróli (þríglyceríðum) í blóði og fituútfellingar undir húð. Hvert eftirtalinna atriða gæti skýrt ástand einstaklingsins? 1) Skortur á myndun apób í lifur 2) Of mikil myndun á apóe 3) Skortur á virkni hormónnæma lípasans (HSL) 4) Skortur á virkni lípóprótein lípasa (LPL) 5) Aukin myndun tríacýlglyceróls í lifur 32. Hvaða fosfólípasi leiðir til myndunar díacýlglyceróls og fosfattengds basa? 1) Fosfólípasi A1 2) Fosfólípasi A2 3) Fosfólípasi A3 4) Fosfólípasi C 5) Fosfólípasi D 33. Sjúklingur er með stækkað milta og stækkaðar frumur í beinmerg. Útdráttur úr hvítfrumum, sem voru einangraðar úr blóði sjúklingsins, sýnir að virkni glúkócerebrosidasa er minna en 10% af viðmiðunarvirkni. Stækkað milta og stækkaðar frumur í beinmerg stafa af uppsöfnun á: 1) glýkógeni 2) kólesteróli 3) fosfólípíðum 4) sfingólípíðum 5) glýkópróteinum 34. Lyf sem hindra cýklóoxýgenasa (COX) leiða til: 1) minni myndunar lípoxína 2) minni myndunar prostaglandína 3) minni myndunar leukotríena 4) minni myndunar á "platelet activating factor" 5) minni myndunar glóbósíða 8 af 16

35. Hvaða tvær eftirtalinna staðreynda um sykur eru réttar? a) Veldur ofvirkni b) Er orkugjafi án næringarefna c) Veldur sykursýki d) Hefur áhrif á blóðfitu til lengri tíma e) Veldur tannskemmdum 1) a og b eru rétt 2) b og d eru rétt 3) c og d eru rétt 4) d og e eru rétt 5) b og e eru rétt 36. Hver eftirfarandi fullyrðinga um trefjar er ekki rétt? 1) Æskilegt er að fá að minnsta kosti 25 g af trefjum á dag ef neytt er fæðis sem inniheldur 2500 hitaeiningar 2) Trefjar geta komið í veg fyrir hægðatregðu 3) Pektín úr ávöxtum geta aukið hraða á upptöku sykra 4) Trefjar úr ávöxtum geta lækkað styrk kólesteróls í blóði 5) Trefjar úr grófu korni og klíði geta aukið umfang hægða 37. Hvað af eftirtöldu er líklegt til að vera áhrifaríkast við að lækka styrk kólesteróls í blóði? 1) Minni inntaka fitu 2) Minni inntaka mettaðrar fitu 3) Minni inntaka ómega-6 fjölómettaðra fitusýra 4) Minna magn kólesteróls í fæðunni 5) Minni inntaka kolvetna 38. Hvað af eftirtöldu er ekki rétt varðandi trans-fitusýrur? 1) Þær innihalda eitt eða fleiri tvítengi 2) Neysla þeirra eykur styrk kólesteróls í blóði 3) Þær eru helst að finna í smjörlíki, kleinum og kexi 4) Þær verða eingöngu til við vinnslu matvæla 5) Þær eru í meira magni í fæði Íslendinga en æskilegt er talið 9 af 16

39. Áfengissjúklingur sýnir uppsöfnun laktats og pýrúvats í líkamsvökvum sem bendir til hindrunar á myndun acetýl CoA úr pýrúvati. Hann er ruglaður og sýnir smávægilega skertar augnhreyfingar. Hvað af eftirfarandi vítamínum er líklegast að hann skorti? 1) Þíamín (B1) 2) Ríbóflavín (B2) 3) Níacín (B3) 4) Pýridoxín (B6) 5) C vítamín 40. Hvert eftirtalinna næringarefna er mikilvægt fyrir oxun fitusýra? 1) Kólín 2) β-karóten 3) Karnitín 4) Bíótín 5) Pantóþensýra 41. Tíu ára barn kvartar um eymsli í öllum líkamanum. Það er með dílablæðingar (örsmáar blæðingar undir húð), nokkra óreglulega purpuralita bletti á fótleggjum og viðkvæmt tannhold. Skortur á hvaða vítamini er líklegt til að valda svona einkennum? 1) A-vítamíni 2) Þíamíni (B 1 ) 3) Ríbóflavíni (B 2 ) 4) C-vítamíni 5) D-vítamíni 42. Þegar styrkur kalsíums í blóði fer niður fyrir ákveðin mörk: 1) eykst myndun á 1,25 díhýdroxý vítamíni D 3 2) eykst endurupptaka kalsíums í nýrum 3) eykst upptaka kalsíums í þörmum 4) eykst losun á paratýróid hormóni 5) Allt að ofan er rétt 10 af 16

43. Hvað af eftirfarandi á helst við um fæði fólks sem ekki neytir kjöts og mjólkurvara? 1) Það getur ekki uppfyllt þörf fyrir allar lífsnauðsynlegar amínósýrur 2) Það uppfyllir þörf fyrir allar amínósýrur svo framarlega sem tvær tegundir grænmetis eru í hverri máltíð 3) Er líklegt til að vera snautt af B12 vítamíni 4) Er líklegt til að vera snautt af fólati 5) Er líklegt til að vera snautt af A og D vítamíni 44. Hvert eftirtalinna næringarefna er sérstaklega erfitt fyrir konur á barneignaraldri (umfram aðra hópa fólks) að fá nóg af? 1) A vítamín 2) D vítamín 3) Kalk 4) Járn 5) Selen 45. Hvað af eftirtöldum heiladingulshormónum er ekki undir stjórn próteins/peptíðs frá undirstúku? 1) TSH 2) ACTH 3) FSH 4) GH 5) Prolactin 46. Hvað af eftirtöldum hormónum kemur frá geni sem skráir nokkur önnur hormón? 1) Prolactin 2) ACTH 3) Aldósterón 4) CRH 5) PTH 47. Hvað af eftirtöldu á ekki við um G-prótein? 1) Margir sýklar framleiða toxín sem hafa áhrif á G-prótein 2) G-prótein mynda trímer 3) Gα er með GDP í bindistað í óvirku ástandi 4) Insúlín viðtakinn víxlverkar við G-prótein 5) TSH viðtakinn víxlverkar bæði við Gq og Gs prótein 11 af 16

48. Hver af eftirtöldum sterum er með arómatískan A-hring? 1) Estradíól 2) Prógesterón 3) Kortsól 4) Testósterón 5) D-vítamín 49. Hvað af eftirtöldu á ekki við um GH (vaxtarhormón)? 1) GH er losað í gusum og helst á nóttunni 2) GH örvar myndun og losun IGF-I (Insúlin-like growth factor-i) í lifur 3) Hjá fullorðnum veldur GH í ofgnótt heilkenninu acromegaly 4) Somatóstatín letur losun á GH 5) GH hefur áhrif á efnaskipti á svipaðan hátt og insúlín 50. Hvað af eftirtöldu á ekki við um skjaldkirtilshormón? 1) Í blóði eru meira en 99% af skjaldkirtilshormónum (T3 og T4) bundin próteinum 2) Lágt TSH í blóði bendir til ofstarfsemi í skjaldkirtli (hyperthyroidism) 3) T3 viðtakinn er tengdur G-próteini og veldur hækkun á camp inni í frumum 4) rt3 er óvirkt form skjaldkirtilshormóns 5) Truflanir í skjaldkirtilsbúskap eru algengari hjá konum er körlum 12 af 16

Valmöguleikar Í spurningum 51-60 á að tengja saman valmöguleika (1-5) við ákveðnar spurningar. Valmöguleikarnir koma á eftir viðkomandi spurningum. Aðeins eitt svar er rétt fyrir hverja spurningu. Hvert val getur átt við enga, eina eða fleiri spurningar. 51. Hvert eftirtalinna líffæra er háðast oxun (bruna) glúkósa? 52. Hvert eftirtalinna líffæra gegnir því mikilvæga hlutverki að viðhalda glúkósavægi? 53. Í einu af eftirfarandi líffæri er eingöngu súrefnisháð öndun? 1) Hjarta 2) Lifur 3) Beinagrindarvöðvi 4) Heili 5) Fituvefur 54. Boðefnið frúktósi 2,6-bisfosfat letur eitt af eftirtöldum efnaferlum. 55. Hvaða eftirfarandi efnaskiptaferill fer eingöngu fram í hvatbera? 56. Hjá einstaklingi með mitochondrial myopathies getur starfsemi eins af eftirfarandi efnaskiptaferlum verið skert. 1) Glýkólýsa 2) Glúkóneógenesa 3) Glýkógenesa 4) TCA hringurinn 5) Sítrónsýruhringurinn 13 af 16

57. Eitt eftirtalinna næringarefna hindrar myndun á oxuðu LDL? 58. Hvert eftirtalinna næringarefna er hætta á að barnshafandi konur fái of mikið af taki þær bæði fjölvítamín og mikið af lýsi? 59. Eitt af eftirtöldum næringarefnum er myndað af bakteríum í þörmum? 60. Hvert eftirtalinna næringarefna er ekki líklegt að valdi eituráhrifum þó einstaklingur fái mjög mikið af því úr fæðu? 1) A- vítamín 2) D-vítamín 3) E-vítamín 4) K-vítamín 5) β-karóten 14 af 16

Textaspurningar 1. Hvaða efnahvarf hvatar glutamín PRPP amídótransferasi, í hvaða efnaskiptaferli er það hvarf og hvernig er stýringu á virkni ensímsins háttað? (6 mín.) 2. Hver er munurinn á bílírúbíni sem skilst út í þvag við stíflugulu og því bílírúbíni sem retikúlóendóthel frumur gefa frá sér eftir niðurbrot hem hóps? (3 mín.) 3. Innri himna hvatbera er ógegndræp fyrir NADH. Gerðu grein fyrir hvernig komið er í veg fyrir að NADH sem myndast í glýkólýsu í lifur safnist upp í frymisvökva þegar nægilegt súrefni er til staðar í frumu. Nefndu ensím sem gegnir mikilvægu hlutverki í þessu sambandi. (8 mín.) 4. Gerðu grein fyrir megin starfsemi pentósafosfatferilsins í frumum líffæra (ekki rauðum blóðkornum). Nefndu 2 myndefni og dæmi um mikilvægi þeirra fyrir frumu. (8 mín.) 5. Oxalóacetat er myndefni eða hvarfefni efnaskiptaferla. Segðu í stuttu máli frá hlutverkum tveggja efnaskiptaferla sem tengjast oxalóacetati. (8 mín.) 6. Gerðu grein fyrir hlutverki forðafitunnar í fituvef í að viðhalda blóðsykurvæginu. (9 mín.) 7. Í hverju felst munurinn á ómega-3 og ómega-6 fitusýrum annars vegar og trans og cis tvítengjum hins vegar? (6 mín.) 8. Lýstu því hvað verður um kýlómíkrón í líkamanum eftir að þau hafa verið mynduð í frumum þarma. (6 mín). 9. Lýstu meltingu kolvetna frá því að fæða kemur í munn og þar til sykrur eru komnar í blóð. (7 mín.) 10. Lýstu hvernig offita hefur áhrif á blóðfitu. (7 mín.) 11. Lýstu tengslum fólasíns og B12 vítamíns, hvernig skortur á öðru getur leitt til skorts á virka forminu af hinu og hvernig hægt er að greina á milli skorts á þessum tveimur vítamínum. (7 mín.) 15 af 16

12. Gerðu grein fyrir þremur meginflokkum hafta (e. constraints) sem hafa ber í huga þegar líkan af efnaskiptum lífveru er búið til. Nefndu auk þess eitt dæmi úr hverjum flokki. Unnt er að breyta höftum úr tveimur meginflokkanna og kanna áhrif breytinganna á hegðun líkansins. Hvaða meginflokkar eru það? (6 mín.) 13. Segðu í suttu máli frá helstu þáttum í stjórn og virkni saltvirkra barkstera (gjarna með skýringamynd). (6 mín). 14. Segðu í stuttu máli frá áhrifum FSH og LH á fullþroska eistu. (3 mín.) 16 af 16