Ársskýrsla. Skólaárið Skólaskrifstofa Austurlands

Σχετικά έγγραφα
Meðalmánaðardagsumferð 2009

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

Þriggja fasa útreikningar.

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun

H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS

FRAMHALDSSKÓLI MOSFELLSBÆJAR SETTUR Í FYRSTA SINN

11979 H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum aðild Lýðveldisins Grikklands (Stjtíð. EB L 291, , bls. 17),

Borgarbyggð og Bifröst Sambúð háskóla og byggðarlags

HEILSUSTEFNA HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK. - greinargerð vinnuhóps

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ

FRÉTTABRÉF LANDMÆLINGA ÍSLANDS. Nr tbl., 18. árg., maí 2016

Niðurstöður aurburðarmælinga í Jökulsá í Fljótsdal árið 2003

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Ein tuggutafla inniheldur natríummontelúkast, sem jafngildir 4 mg af montelúkasti.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tuggutafla inniheldur montelukastnatríum (4,16 mg), sem jafngildir 4 mg af montelukasti.

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T

ÞÁTTTAKA Í FRÆÐSLU Á ÍSLANDI

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands

VINNUMENNING OG KYNJATENGSL

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009

Ólöf S. Björnsdóttir, Sólveig Friðriksdóttir Dr. Sigurlína Davíðsdóttir. Nám og UT-færni. Niðurstöður úr könnunum um upplýsingatækni og tölvunotkun

Skýrsla LV nr: LV Dags: desember Titill: Landbrot á bökkum Hálslóns í Kringilsárrana úttekt 2017

Grunnvatnsrannsóknir í Norðurþingi

SÉRKENNI NÁMSFERILS STARFSNÁMSNEMENDA Í FRAMHALDSSKÓLA.

Menntaskólinn í Reykjavík

Rit LbhÍ nr Áhrif aldurs áa, þunga, holda og framleiðsluára. á gagnasafni Hestbúsins

REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 1228/2014. frá 17. nóvember 2014

14, Íslenskir bændur: Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári

Vor 2017 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

Greinargerð Trausti Jónsson. Sveiflur IV. Árstíðasveiflur í háloftunum yfir Keflavík

FOUCAULT þrír textar 2014

Líkindi Skilgreining

Grænt bókhald Sorpurðun Vesturlands hf. Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes. S: Vefpóstur:

Lesskilningur og íslenskukunnátta 15 ára nemenda: Sérstaða Íslands og forspárþættir Niðurstöður PISA 2000 og samræmdra prófa

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

barnatennurnar BÓKIN UM Bókin um barnatennurnar

ára Vor 2016 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Efnisyfirlit INNGANGUR MARKAÐSSETNING / MARKAÐSFÆRSLA, STUTT YFIRLIT Markaðsáherslan... 8

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

20. tölublað 2017 Fimmtudagur 19. október Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver ml af lausn inniheldur 2,0 mg af Brimonidintartrati, sem jafngildir 1,3 mg af brimonidini.

11. tölublað 2017 Fimmtudagur 8. júní Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

HAUST 2014 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

KÍSILMÁLMVERKSMIÐJA THORSIL Í HELGUVÍK, REYKJANESBÆ

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver húðuð tafla inniheldur 2 mg af cyproteronacetati og 0,035 mg (35 míkrógrömm) af etinylestradioli sem virk efni.

Formaður Bændasamtaka Íslands afar ósáttur við blekkingarleik við sölu búvara:

Það vantaði ævisögu Snorra. 20. tölublað 2009 Fimmtudagur 19. nóvember Blað nr. 315 Upplag

Meistararitgerð. Verðlagning langlífisáhættu

Fagið 02/08 SÝKINGAR TENGDAR HEILBRIGÐIS ÞJÓNUSTU OG SMITLEIÐIR. Ásdís Elfarsdóttir Jelle, MPH, deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur

Meðalvigt dilka talsvert hærri en í fyrra

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

Eftirlit með vinnslu úr holum HR-10 og HR-11 í Hrísey árið 2001

Grænt bókhald Sorpurðun Vesturlands hf. Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes. S: Vefpóstur:

HAUST 2015 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Aðskilnaður breytistærða í rúmi

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3)

SKIPULAGNING ÚRRÆÐA VEGNA STUÐNINGS VIÐ NÁM ÁN AÐGREININGAR

Samstaða um ráðningu sviðsstjóra en Sjálfstæðismenn vilja endurskoða skerðingu á yfirvinnu og bifreiðastyrkjum

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hvert hart hylki inniheldur 0,5 mg dútasteríð og 0,4 mg tamsúlósínhýdróklóríð (sem jafngildir 0,367 mg af tamsúlósíni).

Grunnvatnsrannsóknir í Norðurþingi 2010

GPS-mælingar á Hengilssvæði í apríl og maí 2003

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Það tekur enginn fiskur fluguna í boxinu. 8. tölublað 2017 Fimmtudagur 27. apríl Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

VAÐLAHEIÐARGÖNG SAMFÉLAGSÁHRIF

ára Haust 2016 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

TILSKIPUN EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS 2004/17/EB frá 31. mars 2004

Span og orka í einfaldri segulrás

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Langan tíma tekur að rækta skóg og krefst mikillar þolinmæði

S t æ r ð f r æ ð i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN. 7. september 2006

11. tölublað 2012 Fimmtudagur 14. júní Blað nr árg. Upplag

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 500 mg af parasetamóli 30 mg af kódeinfosfathemihýdrati.

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Hæðarkerfi og hæðir Þórarinn Sigurðsson Landmælingar Íslands

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Hvað er astmi? Hvað gerist við astma?

Grænt bókhald Sorpurðun Vesturlands hf. Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes. S: Vefpóstur:

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af esomeprazoli (sem magnesíumtvíhýdrat).

C Q T. þessu blaði. 5. tbl. 23. árg. des. 2005

Um flokkun sorps og spilliefna gilda ýmsar innlendar og alþjóðlegar reglur sem Háskóli Íslands hlítir. Í sérhverri bygg-

1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út:

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Transcript:

Ársskýrsla Skólaárið 2008 2009 Skólaskrifstofa Austurlands

Ársskýrsla Skólaárið 2008 2009 Skólaskrifstofa Austurlands Aðalfundur, Reyðarfirði í október, 2009. 2

Efnisyfirlit Inngangur... 4 Starfmannahald... 5 Þjónustusvæði... 6 Sálfræðiþjónusta... 8 Kennsluráðgjöf talmeinaþjónusta... 11 Endurmenntun, ráðstefnur og fræðslufundir... 14 Lokaorð... 17 3

Inngangur Þetta er 13. ársskýrsla Skólaskrifstofu Austurlands en skrifstofan tók formlega til starfa 1. ágúst 1996 og hefur því starfað í þrettán skólaár. Skrifstofan er byggðasamlag 8 sveitarfélaga á Austurlandi (voru 22) frá Djúpavogshreppi í suðri til Vopnafjarðarhrepps í norðri. Grunnskólanemendur á svæði skrifstofunnar voru 1448 (sbr. íbúatölur Hagstofu Íslands frá 1. desember 2008) í 15 grunnskólum skólaárið 2008-9. Æðsta vald byggðasamlagsins er í höndum aðalfundar. Aðalfundur kýs fimm manna stjórn og jafnmarga til vara. Stjórnin veitir stofnuninni faglega forstöðu og hefur eftirlit með starfsemi hennar. Starfsemi skrifstofunnar byggir á samningi byggðasamlagsins, lögum um grunn og leikskóla og reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla. Skólaskrifstofa Austurlands er þjónustustofnun fyrir eigendur sína, þ.e. sveitarfélögin, og hefur fyrir þeirra hönd yfirumsjón með ýmsum þáttum í starfi grunn- og leikskóla, sbr. lög og reglur, þ.e. greiningu, ráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Skrifstofan hefur einnig skyldur gagnvart öllum þeim sem tengjast starfi grunnskólanna á svæðinu eins og skólastjórnendum, kennurum, forráðamönnum nemenda og nemendum. Upplýsingagjöf til þessara aðila er því mikilvægur þáttur í starfi þeirra sem vinna hjá skrifstofunni. Á skólaárinu var framhaldið ýmsum verkefnum sem unnið hefur verið að undanfarin ár. Skýrslan byggir á starfseminni skólaárið 2008 2009. Í stjórn Skólaskrifstofu Austurlands sem kosin var á aðalfundi á Reyðarfirði þann 24. október 2008 hafa setið: Formaður: Varaformaður: Ritari: Svanhvít Aradóttir, Fjarðabyggð Þráinn Lárusson, Fljótsdalshéraði Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, Djúpavogshreppi Einar Björn Kristbergsson, Vopnafirði Elfa Rúnarsdóttir, Seyðisfirði Til vara: Jósef Friðriksson, Fjarðabyggð Þorbjörn Rúnarsson, Fljótsdalshéraði Páll Baldursson, Breiðdalshreppi Gunnþórunn Ingólfsdóttir, Fljótsdalshreppi Margrét Hjarðar, Borgarfjarðarhreppi Stjórnin hélt fjóra fundi á starfsárinu. 4

Starfsmannahald 2008-2009 Nokkrar breytingar urðu á starfsliði Skólaskrifstofu Austurlands á skólaárinu 2008-9. Starfsmenn voru: Aðalheiður Jónsdóttir sálfræðingur, 100% starfshlutfall. Hún hefur umsjón með sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofunnar. Ásta María Hjaltadóttir kennsluráðgjafi, 20% stöðuhlutfall. Hún sinnti almennri kennsluráðgjöf og greiningu í lestri og stærðfræði. Hún lét af störfum í lok skólaársins. Halldóra Baldursdóttir talmeinafræðingur, 50% starfshlutfall. Jarþrúður Ólafsdóttir kennsluráðgjafi, 100% starfshlutfall. Hún sinnti almennri kennsluráðgjöf, greiningu í stærðfræði, verkefnastjórn með Olweusarverkefninu í þremur skólum í Fjarðabyggð og í Egilsstaðaskóla, auk þess að hafa umsjón með Stóru upplestrarkeppninni. Kristín Óskarsdóttir skrifstofumaður, 60% starfshlutfall. Hún hefur umsjón með kennslugagnasafni og ýmsum skrifstofustörfum. Magdalena Gunnarsdóttir sálfræðingur, var í 50% starfshlutfalli. Magdalena lét af störfum á vordögum. María Huld Ingólfsdóttir sálfræðingur, 100% starfshlutfall. María Huld hóf störf í september. Sigurbjörn Marinósson forstöðumaður. Hann sinnti stjórnun, ráðgjöf, fjárreiðum, launaútreikningum og ýmsum upplýsingum um skólastarf. Aðrir: Skólaskrifstofa Austurlands kaupir 10% starfshlutfall af HSA vegna iðjuþjálfunar í grunn og leikskólum. Skólaskrifstofan hefur selt Félagsþjónustu Fjarðabyggðar 1 / 2 stöðu sálfræðings. Þá keypti Skólaskrifstofan þjónustu af Helgu Magneu Steinsson, námsráðgjafa á skólaárinu og Björgu Þorvaldsdóttur sérkennara við Nesskóla. 5

Þjónustusvæði Á þjónustusvæði skrifstofunnar voru 10.772 íbúar 1. desember 2008. Af þeim voru 1.448 á grunnskólaaldri miðað við tölur Hagstofunnar. Íbúafjöldi skv. upplýsingu Hagstofu 1. desember 2008 3707 717 Seyðisfjörður Fjarðabyggð Vopnafjarðarhreppur 4736 Fljótsdalshreppur Borgarfjarðarhreppur 456 197 142 143 674 Breiðdalshreppur Djúpavogshreppur Fljótsdalshérað Þróun íbúa og nem.fj. 1995-2008 Nemendafj Íbúafj 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 1995 19961997 1998 19992000 20012002 2003 20042005 2006 2007 2008 Fjöldi 6

Nemendafjöldi 1.desember 2008 eftir sveitarfélögum skv. tölum Hagstofu 18 43 23 10 83 80 676 Fjarðabyggð Fljótsdalshérað Vopnafjarðarhr. Seyðisfjörður 515 Djúpavogshreppur Breiðdalshreppur Borgarfjarðarhreppur Fljótsdalshreppur Nemendafjödi 1995-2008 1.700 1.650 1.600 1.550 1.500 1.450 Nemendafj 1.400 1.350 1.300 1.250 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 7

Sálfræðiþjónusta Starfsmannahald og stöðugildi sálfræðinga Á skólaárinu 2008-9 voru sálfræðingar í u.þ.b. 2½ stöðugildum við Skólaskrifstofuna ef litið er til 12 mánaða tímabils. Þar af var u.þ.b. ½ starfshlutfall selt til Félagsþjónustu Fjarðabyggðar eins og undanfarin ár. Magdalena Gunnarsdóttir sálfræðingur hætti störfum við Skólaskrifstofuna 1. maí, 2009 og þá var endir bundinn á samstarf við Félagsþjónustu um sálfræðiþjónustu. Áfram munu mál nemenda sem eru sameiginlegir skjólstæðingar verða unnin í góðri samvinnu þessara stofnana. Magdalena Gunnarsdóttir var í fyrstu í 70% stöðu sálfræðings við Skólaskrifstofuna á árinu, en frá áramótum var hún í 50% starfi. María Huld Ingólfsdóttir kom í fullt starf í september. Aðalheiður Jónsdóttir hefur nú verið sálfræðingur í fullu starfi við Skólaskrifstofuna í 6 ár. Hún hefur umsjón með sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofunnar. Yfirlit yfir fjölda mála í skólum Í ár bárust sálfræðingum 154 beiðnir frá skólum á skólaárinu. Eins og sjá má í meðfylgjandi töflum hefur fjöldi beiðna sem berast ár hvert verið nokkuð stöðugur undanfarin ár, þ.e. á bilinu 131-154. Auk fjölda beðina til sálfræðinga Skólaskrifstofu bárust sálfræðingi Heilbrigðisstofnunar 87 beiðnir frá apríl til desember, 2008. Því má með sanni segja að eftirsókn eftir sálfræðiaðstoð fyrir börn og ungmenni sé mikil á Austurlandi. (Skjólstæðingar sálfræðings Heilbrigðisstofnunar eru nokkuð eldri en skjólstæðingar Skólaskrifstofu. Meðalaldur þeirra er rúm 15 ár. Ekki eru til tölur um meðalaldur skjólstæðinga Skólaskrifstofu, en aldursdreifingin er frá 3 ára upp í 16 ára). Á skólaárinu komu sálfræðingar að málefnum 182 barna (þar af var 27 málum enn ólokið) í sumarbyrjun. Undanfarin ár hefur sálfræðingum gengið nokkuð vel að halda í við þær beiðnir sem berast árlega, hins vegar ætlar að reynast erfiðlega að saxa á biðlista eftir þjónustu sálfræðinga. Að meðaltali hafa 42 börn beðið eftir aðstoð að vori undanfarin 5 ár og í vor (1. júní, 2009) voru 55 börn á biðlista. Þetta segir ekki alla söguna því í sumarbyrjun og við upphaf haustannar berst stundum mikill fjöldi beiðna þannig að biðlistinn getur verið umtalsvert lengri að hausti en þessar tölur segja til um. Í septemberbyrjun 2009 (þegar vinna einstaklingsmála hefst fyrir alvöru að nýju eftir sumarfrí og námskeiðahald) verða börn sem nú þegar eru á biðlista að meðaltali búin að bíða í 7 mánuði á biðlista. Þar af eru 20 börn sem verða búin að bíða lengur en 7 mánuði, sum þeirra í meira en eitt ár. Sálfræðingum, eins og flestum sem bíða eftir aðstoð, þykir þetta óásættanlega langur biðtími. Á undanförnum árum hafa sálfræðingar einungis að litlu leyti nýtt sér þann samningsbundna rétt sinn að sækja sér handleiðslu, sem þó er sérstaklega mikilvægt vegna þess hve faglega einangraðir sálfræðingar á Skólaskrifstofu Austurlands eru. Aðalheiður hefur veitt Magdalenu og Maríu Huld leiðsögn. Önnur verkefni sálfræðinga Á vegum ABG-verkefnisins var hópmeðferðarnámskeið fyrir börn með kvíða (Klókir krakkar) haldið í fyrsta skipti á Austurlandi sl. vetur. María Huld tók þátt í verkefninu ásamt Orra Smárasyni og sálfræðingum frá BUGL. Öflun, miðlun og gerð fræðsluefnis á sálfræðisviði, þ.á.m. ráðabanki Aðalheiðar og pistlar á heimasíðu Skóla- 8

skrifstofunnar. Á árinu birtust eftirfarandi pistlar eftir sálfræðinga: ο ο ο ο Skrift og ritun eftir Aðalheiði Samræður við börn á erfiðum tímum eftir Aðalheiði Foreldrahæfni og sjálfstraust eftir Maríu Huld Atferlistilraunir eftir Magdalenu Samstarf við félagsþjónustur á svæðinu, einkum Félagsþjónustu Fjarðabyggðar vegna samnings milli stofnanna. Ýmsir fundir og önnur samskipti vegna ABG verkefnisins. Um ABG verkefnið má lesa í skýrslu verkefnastjóra; Orra Smárasonar. Hafinn var undirbúningur að þátttöku í þróunarverkefni á vegum GRR sem snýr að því að byggja upp ráðgjafa teymi á Austurlandi vegna raskana á einhverfurófi. Aðalheiður og Sigurbjörn sátu fundi og áttu tölvusamskipti við GRR og Saust vegna verkefnisins. Horft til næsta vetrar Undirrituð (AJ) hefur áður lýst þeirri skoðun sinni sem byggð er á reynslu undanfarinna ára að miðað við að um algera lágmarksþjónustu sé að ræða megi... segja raunhæft að gera ráð fyrir að sálfræðingur í fullri vinnu og með töluverða starfsreynslu geti náð að sinna um 80 einstaklingum árlega. Ljóst er að biðlistar með yfir 50 börnum (sem sum bíða í u.þ.b. 1 ár eftir aðstoð) verði viðvarandi ástand á Skólaskrifstofunni miðað við sama mannafla og sama fjölda beiðna sem berast. Á næsta skólaári munu verkefni sálfræðinga Skólaskrifstofu snúast í auknu mæli um ýmiskonar námskeiðahald eða þátttöku í námskeiðum. Hugsanlega munu færri börn njóta einstaklingsaðstoðar vegna annarra verkefna sálfræðinga á komandi mánuðum. Fyrirliggjandi verkefni næsta haust og vetur eru m.a.: Kynningar á ýmiskonar uppeldisstefnum (SOS, PMT/SMT, PBS og MST: Aðalheiður og María Huld) fyrir starfsfólk Skólaskrifstofu, fræðslustjóra og annað starfsfólk sem tengist menntamálum í Fjarðabyggð. Haldið af starfsmönnum Skólaskrifstofu í júní. Bekkjarstjórnunarnámskeið í ágúst. Haldið af Aðalheiði og Maríu Huld. 9 ke.st. Kennsla um uppeldishætti fyrir ófaglært starfsfólk leikskóla í Fjarðabyggð á vegum ÞNA. Kennt af Maríu Huld. 6 ke.st. Kennsla um aga og reiðistjórnun fyrir ófaglært starfsfólk leikskóla í Fjarðabyggð á vegum ÞNA. Kennt af Aðalheiði. 7 ke.st. Fræðsluerindi á skólabyrjunarnámskeiði fyrir foreldra allra nemenda í 1. bekk í Fjarðabyggð auk foreldra 1. bekkinga í Egilsstaðaskóla. Samtals 5 kvöld. Haldið af Maríu Huld. Til stendur að haldnir verði 2 teymisfundir á 6 vikna fresti á vegum ABG verkefnisins næsta vetur. Samtals ½ dagur í hvert skipti. María Huld mun, ásamt sálfræðingi Heilbrigðisstofnunar, vera með hópmeðferðarnámskeiðið Klókir krakkar fyrir börn með kvíða. Kennt er í 10 skipti, auk ýmiskonar undirbúnings. Áætlað er að sálfræðingar Skólaskrifstofu munu funda 2 klst. vikulega allan næsta vetur auk ýmissa annarra verkefna sem tengjast þróunarverkefni um ráðgjafarteymi vegna einhverfurófsraskana. Samskipti/fræðsla mun einkum fara fram gegnum fjarfundarbúnað. Engar vísbendingar eru um að eftirspurn eftir einstaklingsaðstoð minnki á komandi mánuðum og því er ljóst að sálfræðingar Skólaskrifstofu munu ekki skorta verkefni næsta vetur. 9

Lokið/í gangi Í skólum Á biðlista í skólum ( í lok skólaárs) Samtals lokið, í gangi, Fjöldi beiðna sem barst á skólaárinu á biðlista 2008-9 AJ, MG & MH 178 + 8 í hópmeðferð = 186 53 231 + 8 í hópmeðferð = 239 154 2007-8 135 54 189 133 AJ & MG (20.7.2008: 86 á biðlista) 2006-7 206 34 240 152 AJ, MG & HS 2005-6 158 40 198 131 AJ & KJS 2004-5 183 33 216 106 AJ & HS/KJS 2003-4 162 31 193 68 (+beiðnir frá fyrra ári) AJ & KJS 2002-3 95 ca. 60 ca. 155 ÍB 2001-2002 158 ÍB & MK 2000-2001 135 1999-2000 146 1998-1999 92 Mál sem unnin voru vegna samnings við Félagsþjónustu Fjarðabyggðar koma ekki fram í þessum tölum. Sálfræðingar voru samtals í u.þ.b. 2½ stöðugildi á skólaárinu 2008-9. Þar af var ½ stöðugildi selt til Félagsþ. Fjarðab. Samningi við fél.þj. lauk 1.maí, 2009. Eftir það eru sálfræðingar í 2 stöðugildum í skólum að vinna við Skólaskrifstofu. Sálfræðingar voru í 1,7 stöðugildum samtals (u.þ.b. 1,2 stöðugildum fyrir skóla). Þessar tölur eru frá 31.5.2008. Þann 20.7. 2008 höfðu 27 beiðnir bæst við sem skráðar eru á næsta skólaár. Þessar tölur eru frá 31.5.2008. Þann 20.7. 2008 höfðu 27 beiðnir bæst við sem skráðar eru á næsta skólaár. Sálfræðingar voru í 2,3 stöðugildum, samtals. ÍB ein að mestu (+AJ +MK) 10

Kennsluráðgjöf talmeinaþjónusta Starfssvið Starfssvið kennsluráðgjafa felst m.a í almennri og sérhæfðri kennsluráðgjöf við leik og grunnskóla. Talmeinafræðingur sinnir greiningum og ráðgjöf, aðallega málþroskagreiningum og mat á framburði. Stöðugildi kennsluráðgjafar og talmeinafræðings er 1,5 stöðugildi. Greiningar stærðfræðiörðugleika með Talnalykli Alls gerðar 9 skimanir á hópum einstaklinga og 23 einstaklingsgreiningar með Talnalykli. Greiningunum var öllum skilað á fundum með foreldrum og kennurum í viðkomandi skólum. Lestrarskimanir Grp14h og lestrargreiningar Alls var unnið við 10 lestrarskimanir Grp14h í bekkjum (9. bekk). Þá voru 42 einstaklingsgreiningar unnar vegna lestrarerfiðleika og var þeim öllum skilað á sérstökum fundum með kennurum og foreldrum. Læsisskimanir LÆSI í 1. og 2. bekk Unnið var að yfirlitum fyrir læsisskimanir úr fimmtán skólum. Ráðgjöf vegna líðanar og hegðunarerfiðleika nemenda Unnið var að 13 málum vegna einstakra nemenda og nemaendahópa í 7 skólum. Almenn kennsluráðgjöf Á starfsárinu sinntu kennsluráðgjafar ráðgjöf við kennara vegna einstaklinga og bekkja og þá einkum samskiptaerfiðleika nemenda og/eða eineltis en einnig kennslufræðilega ráðgjöf. Vegna nokkurra málanna var farið í bekki og fylgst með samskiptum nemenda og kennslu kennaranna. Alls voru mál vegna ráðgjafar við kennara 12. Teymisfundir Á starfsárinu átti kennsluráðgjafi setu í 7 teymum ásamt foreldrum og kennurum vegna einstaklinga í grunnskólum og sótti alls 13 teymisfundi vegna þeirra. Þá var unnið í 2 teymum vegna námshópa og voru 4 fundir vegna þeirra. Talmeinafræðingur kom að 40 málum einstaklinga í 14 leikskólum og 48 málum einstaklinga í 11 grunnskólum. Tekið var saman og yfirfarið Hljóm próf frá 10 leikskólum. Umsjón með verkefnum og verkefnastjórnun Skólaskrifstofan hefur haft umsjón með skipulagningu og framkvæmd Stóru Upplestrarkeppninnar á starfssvæði skrifstofunnar. Í því felst m.a. formennska í héraðsnefnd keppninnar, samskipti við undirbúningsnefnd keppninnar, skipulagning og framkvæmd lokahátíða í fjórðungnum. Þá hefur skrifstofan farið með verkefnisstjórn Olweusarverkefnisins (eineltisáætlanir) í Grunnskóla Reyðarfjarðar, Grunnskóla Eskifjarðar, Nesskóla og Egilsstaðaskóla.. Í því hefur falist seta á fjórum námskeiðum í Reykjavík,kynningarfundir fyrir starfsfólk skólanna og foreldra og einn fræðslufundur fyrir lykilmenn í skólunum. Verkefnastjóri er Jarþrúður Ólafsdóttir. Olweusaráætlun gegn einelti er forvarnarverkefni sem hefur að markmiði að bæta líðan nemenda í skólum, stuðla að bættum samskiptum og góðum skólaanda. Undirbúningur námskeiðs 14. 15. ágúst 2008. Skapandi og árangursríkt skólastarf. Undirbúningur á námskeiðinu Hlutverkaleikir og leiklist í skólastarfi, 11. ágúst 2008. Aðstoð vegna námskeiðshalds Rannveigar Lund, maí 2009. Aðstoð vegna námskeiðs Logos lestrargreiningar okt nóv 2008. Undirbúningur vegna námskeiðsins Skapandi og árangursríkt skólastarf, 12. 13. ágúst 2009. Undirbúningur vegna námskeiðs Ingileifar Ástvaldsdóttur:Bekkjarfundir, 10. ágúst 2009. 11

Námsráðgjöf Námsráðgjöf stóð þeim skólum til boða sem ekki hafa námsráðgjafa innan skólanna. Ráðgjöfin sem veitt var í skólunum var bæði einstaklings og hópráðgjöf fyrir nemendur og foreldra. Helga Magnea Steinsson námsráðgjafi sinnti þessari ráðgjöf á skólaárinu. Samanburður fjölda verkefna hjá kennsluráðgjöfum 2003-2008 2008 300 250 200 230 195 255 245 214 2003-4 150 2004-5 2005-6 100 138 2006-7 2007-8 50 0 4 35 29 15 3 8 2008-9 Grsk.+ leiksk, lokið bið 12

Fjöldi sérfræðimála alls 600 500 417 584 562 453 1996-1997 1997-1998 1998-1999 400 490 444 450 433 1999-2000 2000-2001 300 2001-2002 2002-2003 372 2003-2004 200 100 0 155 183 198 333 Tímabil 2004-2005 2005-2006 2006-2007 2007-2008 2008-2009 Vakin er athygli á því að ofangreindar tölulegar upplýsingar eiga við einstaklingsmál í flestum tilvikum. En teymisvinna, námskeiðahald, vinna við almennar fyrirspurnir (t.d. í síma og tölvupósti) og önnur vinna svo sem vinna við Olweusarverkefnið er ekki inni í þessum tölum. 13

Endurmenntun, ráðstefnur og fræðslufundir Á svæði Skólaskrifstofu Austurlands hefur Skólaskrifstofan haft frumkvæði að námskeiðahaldi í samvinnu við skólastjórnendur og aðra aðila líkt og undanfarin ár. Þátttaka á námskeiðum hefur verið mjög góð Endurmenntunarsjóður grunnskóla auglýsti styrki til úthlutunar eins og áður. Nú hefur sjóðurinn verið færður til Sambands íslenskra sveitarfélaga frá Menntamálaráðuneytinu. Í ár hlaut Skólaskrifstofa Austurlands kr. 850.500,- í styrki til að halda eftirfarandi fimm námskeið, haustið 2009: Bekkjarfundir Ingileif Ástvaldsdóttir Hegðunarmyndun og agastjórnun Aðalheiður Jónsdóttir og María Huld Ingólfsdóttir, sálfræðingar. Árangursríkt og skapandi skólastarf ýmsir Numicon Kristín Wallis Þessi fjögur námskeið sóttu rúmlega 200 starfsmenn skóla. Jafnréttisfræðsla í skólum - haldið í samstarfi við Fjarðabyggð. Þetta námskeið sóttu um 120 þátttakendur. Sérfræðingar skrifstofunnar héldu ýmiss konar fræðslufundi fyrir foreldra og kennara á síðastliðnu skólaári. Námskeið og fræðslufundir haldnir af starfsfólki Skólaskrifstofu Sálfræðingar Bekkjarstjórnun á dögum einstaklingsmiðunar Endurmenntunarnámskeið Skólaskrifstofu fyrir kennara Reyðarfirði (AJ). Erindi um sjálfsmat á skólafærninámskeiði fyrir foreldra í Nesskóla (AJ). Erindi um sjálfsmat á skólafærninámskeiði fyrir foreldra á Egilsstöðum(AJ). Erindi um hegðunarstjórnun á starfmannafundi í Dalborg á Eskifirði(AJ). Fræðslufundur um hegðunarstjórnun á Tjarnarlandi (AJ). Fræðsluerindi um ADHD hjá fullorðnum fyrir StarfA Reyðarfirði (AJ). Fræðsluerindi um ADHD hjá fullorðnum fyrir StarfA Egilsstöðum (AJ). Erindi um uppeldi fyrir foreldrafélag leikskólans Sólvellir á Seyðisfirði (MHI). Kennsluráðgjafar Skólafærninámskeið Nesskóla, stærðfræði ungra barna. Skólafærninámskeið í Egilsstaðaskóla, stærðfræði ungra barna. Samskipti og einelti. Leikskólinn Tjarnarlandi og Skógarlandi Egilsstöðum. Samskipti einelti Námskeið á Reyðarfirði 25. 26. maí, fyrir starfsfólk leikskóla á vegum Þekkingarnets Austurlands. Námskeið um lestur og lesskilning, Grunnskóli Vopnafjarðar 10. nóvember og 11. desember. 14

Skólaskrifstofan stóð fyrir eftirfarandi námskeiðum í samvinnu við aðra: Ráðagóðir kennarar Haldið í samvinnu við Greiningar- og rágjafastöð ríkisins, föstudaginn 19. september. Námskeiðið var ætlað grunnskólakennurum og öðrum starfsmönnum grunnskóla sem hafa umsjón barna með röskun á einhverfurófi. Markmið námskeiðsins var að efla sjálfstraust kennara og annarra starfsmanna skóla til að takast á við hegðun nemenda. Logos Í nóvember 2008, luku ellefu sérkennarar á Austurlandi námskeiði í notkun Logos lestrargreiningarprófsins. Námskeiðið var haldið í samvinnu við fyrirtækið Lexometrica og komu tveir leiðbeinendur austur í október og nóvember. Logos er tölvutækt greiningarpróf sem grundvallað er á nýlegum rannsóknum á lestrarfærni. Það hefur að geyma tvo prófaflokka sem ætlaðir eru fyrir nemendur í 3. 5. bekk annars vegar og hinsvegar fyrir 6. 10. bekk og fullorðið fólk. Rannsóknir hafa sýnt fram á að því fyrr sem lestrarvandi greinist því betra því þá er unnt að grípa inní með viðeigandi úrræðum. Logos greiningatækið er norskt að uppruna en höfundur þess er prófessor Torleiv Høien sem kunnur er fyrir rannsóknir sínar á lestri. Dreifmenntun Í mars var haldinn fjarfundur um Dreifmenntun, í samstarfi við ÞNA. Edda Kjartansdóttir verkefnisstjóri kynnti skipulag dreifmenntarverkefnis á Vestfjörðum og Snæfellsnesi og möguleika á því að nýta svipað verkefni í sinni heimabyggð. Með dreifmenntun er átt við blöndu af staðbundinni kennslu/námi og fjarkennslu/námi þar sem upplýsingatækni er nýtt til samskipta og miðlunar námsefnis, án tillits til fjarlægða. Fimm vinir í leik og lestri Rannveig Lund kynnti þjálfunarverkefni og kennsluaðferðir sem tengjast hljóð- og ritháttarkerfi íslenskunnar. Verkefnin eru fléttuð inn í nýja lestrarbók og vinnubók fyrir 1. bekk. Heiti bókarinnar er Fimm vinir í leik og lestri. Kennslubókin er afsprengi rannsóknar sem Rannveig tók þátt í árabilið 2002 2006. Sú rannsóknin gaf til kynna hvar skóinn kreppir oftast hjá íslenskum börnum við að ná tökum á undirstöðuatriðum lestrarnáms. Rannveig kynnti greiningaraðferðir sprottnar úr sömu rannsókn á námskeiðunum,,frá mati til kennslu. 15

Fræðslufundir og námskeið vegna Olweusar á árinu: Fræðslufundur um Olweus fyrir starfsfólk Grunnskóla Eskifjarðar 17. ágúst. Fræðslufundur um Olweus fyrir starfsfólk Grunnskóla Reyðarfjarðar 20. ágúst. Fræðslufundur um Olweus fyrir allt starfsfólk Grunnskóla Egilsstaða og Eiða um Olweusaráætlun 18.08. Fræðslufundur um Olweus fyrir allt starfsfólk Nesskóla 26. ágúst. Fræðslufundur fyrir nýtt starfsfólk í Nesskóla. Námskeið Olweus fyrir nýtt starfsfólk í Grunnskóla Egilsstaða og Eiða 19. ágúst. Lykilmannanámskeið fyrir lykilmenn og oddvita í Olweusarverkefninu í Fjarðarbyggð og á Fljótsdalshéraði 23. september. Fræðslufundur um Olweusarverkefni fyrir starfsfólk íþróttamiðstöðvar, þjálfara og annarra sem að tómstundastarfi barna og unglinga koma á Egilsstöðum 21. október. Kynningarfundur um Olweusarverkefni fyrir foreldra í Egilsstaðaskóla 26. nóvember. Foreldrafundur vegna Olweusaráætlunar 17. janúar í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Foreldrafundur vegna Olweusaráætlunar 4. maí í Nesskóla. Foreldrafundur vegna Olweusaráætlunar 26. nóv. Í Grunnskóla Egilsstaða og Eiða. Kynningarfundur um Olweusaráætlun fyrir starfsfólk Seyðisfjarðarskóla maí 2009. Fundir vegna Olweusarverkefnis. Fundur stýrihóps Olweusarverkefnis í Grunnskóla Egilsstaða og Eiða 2. febrúar 2009. Fundur stýrihóps Olweusarverkefnis í Grunnskóla Egilsstaða og Eiða 28. maí 2009. Fundur vegna Olweusarverkefnis með skólastjórum og fræðslustjóra Fjarðabyggðar 18. sept. Fundur skólastjóra, lykilmanna og oddvita í Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði á Reyðarfirði 20. maí 2009. Fundir með lykilmönnum Olweusarverkefnis í Grunnskóla Egilsstaða og Eiða, 27.ág., 1. okt., 15. okt, 29. okt, 12. nóv., 26. nóv., 10. des.,., 4.febr, 25. febr.,15. apríl.,13. maí. Fundir með lykilmönnum Grunnskóla Reyðarfjarðar 21.ág., 15. okt., 19., nóv., 3.des., 28.jan., 6. febr., 4.mars., 15. apríl. Fundir með lykilmönnum Grunnskóla Eskifjarðar 2. sept., 17.sept., 8.okt., 12., nóv., 3.des., 14. jan., 11. febr., 17.mars, 15.apríl. Fundir með lykilmönnum Nesskóla 24. sept., 13. okt., 5. nóv., 10., des., 23., febr.,23. mars, 27.apríl., Fundir vegna Olweusar með skólastjórum Grsk. Rfd. Grsk. Esk. og Nesskóla 18. sept og 5. febr. Seta á dagslöngum fundum í Reykjavík vegna Olweusarverkefnis Fundur 7. nóvember í KHí Reykjavík. Fundur 13. mars í KHí Reykjavík. Fundur 18. maí í Neskirkju Reykjavík. Seta á námskeiðum og ráðstefnum Starfsfólk skrifstofunnar sótti ýmsa fræðslufundi, ráðstefnur og málþing á starfsárinu Tök á tilverunni. Ráðstefna ADHD samtakanna. Reykjavík. Sálfræðiþing Sálfræðingafélags Íslands. Reykjavík. Þjóð gegn þunglyndi. Reyðarfriði. Landlæknisembættið og Fjarðabyggð. Sálræn Skyndihjálp. Neskaupstað. Rauði krossinn og Björgunarsveitin Gerpir. Logos lestrargreining á Egilsstöðum 14. okt. og 28. nóv. 2008. Numicon stærðfræði í Fellaskóla 28. ágúst 2008. Ráðagóðir kennarar- einhverfa GRR á Reyðarfirði 1. sept. 2008. Ráðagóðir kennarar. Um kennslu barna á einhverfurófi. Egilsstöðum. Haldið af GRR og Skólaskrifstofu. 16

Lokaorð Þegar litið er yfir starfsárið er kemur í ljós að þetta starfsár hefur verið annríkt eins og undanfarin starfsár. Ekki verður séð að dregið hafi úr eftirspurn á þjónustu á neinu sviði. Ýmis fræðsla og námskeiðahald hefur aukist frá ári til árs en vonir eru um að það skili sér í betra skólastarfi. Þetta á bæði við um fræðslu og námskeiða sem starfsfólk Skólaskrifstofunnar hefur staðið fyrir að öllu leyti eða utanaðkomandi aðilar hafa sinnt á vegum Skólaskrifstofunnar eins og kemur fram í þessari skýrslu. Á komandi skólaári og árum er viðbúið að skólastarf finni fyrir erfiðleikum vegna efnahagserfiðleika á Íslandi og víðar. Ýmis teikn eru um að fjölskyldur þurfi að takast á við meiri erfiðleika en áður og þurfi styrk og hvatningu til. Þá er mikilvægt að skólinn og sveitarfélög standi sína vakt og hlúi vel að börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra. Hlutverk Skólaskrifstofunnar og annarra sem koma að þjónustu barna og unglinga verður áfram mikilvægt í því efni. Þrátt fyrir að horfur séu ekki góðar í augnablikinu hvað fjármál varðar höfum við svo margt annað sem við þurfum að horfa til og vera ánægð með. Eitt af því er skólinn og menntunarmöguleikar barna. Þetta á við öll skólastigin. Innan skólanna er vel menntað starfsfólk sem leggur sig fram af alúð. Foreldrar eru virkari þátttakendur í skólagöngu barna sinna en áður, sem er mjög jákvætt. Umgjörð skólastarfs hefur líka miðað að því að foreldrum verði gert kleift að taka þátt í því í ríkara mæli en áður. Í þeim efnum má nefna ný lög og reglugerðir sem hafa aukið möguleika foreldra til þátttöku og til að hafa áhrif á skólagöngu barna sinna. Þar má nefna Skólaráð og rétt foreldra til að veita umsögn um áætlanir skóla og koma með tillögur. Í þessu ljósi verðum við líka að líta á skólastarfið, sem sameiginlegt verkefni, skóla, foreldra og samfélagsins alls. Þrátt fyrir þrengingar í samfélaginu um stundarsakir lítum við framtíðina björtum augum og tökumst á við komandi verkefni með jákvæðni. Að lokum vill undirritaður þakka öllum, fyrir hönd stjórnar- og starfsfólks Skólaskrifstofu Austurlands, ánægjulegt samstarf á liðnu starfsári. Jafnframt þakkar undirritaður starfsfólki vel unnin störf og stjórn ánægjulegt samstarf. Reyðarfirði, í október 2009 Sigurbjörn Marinósson 17

Skólaskrifstofa Austurlands Búðareyri 4 730 Reyðarfjörður 474 1211 7474 1311 skolaust@skolaust.is www.skolaust.is 18