Meðgöngusykursýki mataræði og mælingar

Σχετικά έγγραφα
Mataræði á meðgöngu. Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri

Ráðleggingar. um mataræði. fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

Ráðleggingar. um mataræði. fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri

Meðalmánaðardagsumferð 2009

Hvað borða íslensk börn og unglingar?

Námskeið fyrir starfsfólk mötuneyta sem elda fyrir aldraða

Handbók fyrir. leikskólaeldhús

Þriggja fasa útreikningar.

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS

LeanShake. Helstu kostir: ZINZINO

LeanShake. Helstu kostir: ZINZINO

Inniheldur mjög hreint og öflugt (1-3), (1-6) betaglúkan. Eykur magn EPA og DHA í líkamanum á öruggan og skilvirkan hátt.

Nr ágúst 2009 REGLUGERÐ. um barnamat fyrir ungbörn og smábörn.

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins Nr. 49/191 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) 2017/2470

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 23,75 mg, 47,5 mg, 95 mg eða 190 mg af metoprololsuccinati.

REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 1228/2014. frá 17. nóvember 2014

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli. kalsípótríól/betametasón

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Menntaskólinn í Reykjavík

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti.

HEILSA MIÐVIKUDAGUR 13. MARS eldunarleiðbeiningar auk þess sem hægt er að skoða myndir af öllum réttunum.

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g hlaup. kalsípótríól/betametasón

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver húðuð tafla inniheldur 2 mg af cyproteronacetati og 0,035 mg (35 míkrógrömm) af etinylestradioli sem virk efni.

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

FYLGISEÐILL FYRIR: Aniketam vet. 100 mg/ml stungulyf, lausn

Kennsla í barnalæknisfræði v/ læknadeild Háskóla Íslands Þórður Þórkelsson Barnaspítala Hringsins

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Kennsla í barnalæknisfræði v/ læknadeild Háskóla Íslands Þórður Þórkelsson Barnaspítala Hringsins

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

16 kafli stjórn efnaskipta

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 forðatafla inniheldur 5 mg felodipin og metoprololsúkkínat 47,5 mg (samsvarandi 50 mg metoprololtartrat).

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Bisbetol plus 10 mg/25 mg filmuhúðaðar töflur. Bísóprólól fúmarat og hýdróklórótíazíð

Næring, heilsa og lífsstíll

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.

Symbicort forte Turbuhaler, 320 míkrógrömm/9 míkrógrömm /skammt, innöndunarduft.

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

Hvað er astmi? Hvað gerist við astma?

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 500 mg af parasetamóli 30 mg af kódeinfosfathemihýdrati.

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3)

11979 H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum aðild Lýðveldisins Grikklands (Stjtíð. EB L 291, , bls. 17),

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Solu-Medrol 40 mg, 125 mg og 500 mg stungulyfsstofn og leysir, lausn.

Hæðarkerfi og hæðir Þórarinn Sigurðsson Landmælingar Íslands

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli

LYFLÆKNINGASVIÐ. Samfallsbrot í hrygg. Upplýsingar fyrir einstaklinga með samfallsbrot í hrygg vegna beinþynningar.

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir)

1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út:

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Ending og geymsla afskorinna blóma...2 Flokkun og mat...2 Afskorin blóm...2 Staðlar...2 Ræktunarskilyrði og ending...3 Afskorin blóm...3 Birta...

barnatennurnar BÓKIN UM Bókin um barnatennurnar

Um flokkun sorps og spilliefna gilda ýmsar innlendar og alþjóðlegar reglur sem Háskóli Íslands hlítir. Í sérhverri bygg-

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Hvítar eða næstum hvítar filmuhúðaðar, kringlóttar, tvíkúptar töflur, ígreyptar GX EH3 á annarri hliðinni og A á hinni hliðinni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver sýruþolin tafla inniheldur 400 mg (Asacol 400 mg) eða 800 mg (Asacol 800 mg) af mesalazíni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Transcript:

Meðgöngusykursýki mataræði og mælingar

LANDSPÍTALI - GÖNGUDEILD SYKURSJÚKRA www.lydheilsustod.is 2

MEÐGÖNGUSYKURSÝKI Meðgöngusykursýki er sykursýki sem greinist á meðgöngu með sykurþolsprófi. Meðgöngusykursýki er skipt í tvo flokka. Í öðrum dugar mataræðisbreyting ein sem meðferð en í hinum er insúlínmeðferð nauðsynleg. Góð næring er mikilvæg á meðgöngu. Samkvæmt ráðleggingum um mataræði á meðgöngu frá Lýðheilsustöð er best að nauðsynleg næringarefni fáist úr matnum. Einhæft mataræði er ávísun á ófullnægjandi næringu. Fjölbreytni og hollusta er best tryggð með því að fá sér daglega: grænmeti og/eða ávexti trefjaríkar kornvörur fisk, kjöt eða baunarétti fitulitlar mjólkurvörur vatn til drykkjar Það er um að gera að gefa sér tíma til að njóta matarins og borða hæfilega mikið. Gott er að borða heita máltíð sem inniheldur fisk, kjöt eða baunir á hverjum degi. Grænmeti og ávexti er ráðlagt að nota í hverri máltíð og sem millibita. Kornvörur eins og gróft morgunkorn, haframjöl, gróft brauð og hrísgrjón, bygg ofl. er æskilegur hluti af mataræðinu. Mælt er með olíu í matargerð og út á salöt. Barnshafandi konum er ráðlagt að taka B-vítamínið fólat í töfluformi í byrjun meðgöngu og gæta þess sérstaklega að borða fólatríkar matvörur þar sem fólat minnkar líkur á fósturskaða. Eins þurfa konur á Íslandi að taka ráðlagðan dagskammt af D-vítamíni (10 μg) en það fæst með þvi að taka 1 tsk. (5 ml) þorskalýsi, 6 stk. þorskalýsisperlur eða fjölvítamín með D-vítamíni. Þorskalýsi og þorskalýsisperlur veita hollar fitusýrur auk D-vítamínsins og A-vítamíns (ráðlagður dagsskammtur 800 μg). Aukin hætta er fyrir konur sem borða oft skyndibita og sælgæti og drekka mikið gos á meðgöngu að þyngjast óþarflega mikið. Þær geta fengið of lítið af nauðsynlegum næringarefnum. Það er því best að stilla neyslu slíkra vara í hóf þótt ekki sé þörf á að forðast þær algerlega ef fæðið er að öðru leyti fjölbreytt og gott. 3

LANDSPÍTALI - GÖNGUDEILD SYKURSJÚKRA Konur sem greinast með meðgöngusykursýki þurfa að huga vel að mataræðinu. Meðferðin felst í því að borða reglulega, velja holla og góða fæðu í hæfilegum skömmtum, stunda hreyfingu samkvæmt getu og fylgjast með árangri með blóðsykursmælingum. Nauðsynlegt er að njóta leiðsagnar næringarfræðings/-ráðgjafa til að meta áhrif mataræðis og lífsstíls á blóðsykur. Reglulegir matmálstímar eru lykilatriði fyrir konur með meðgöngusykursýki og stuðla að minni sveiflum á blóðsykri og betri blóðsykursstjórnun. Því er mikilvægt að sleppa ekki úr máltíðum og borða alltaf hæfilega af morgunmat, hádegismat og kvöldmat ásamt 2-3 millibitum. Þar sem borðað er oftar verður engin máltíð mjög stór og blóðsykurssveiflur minni. Það eru kolvetnin í fæðunni sem hafa mest áhrif á blóðsykur en tegund kolvetna og stærð máltíða hefur líka áhrif. Eins hefur samsetning máltíða áhrif á blóðsykur. Trefjarík og fjölbreytt máltíð veldur minni blóðsykurshækkun en máltíð sem inniheldur fáar fæðutegundir og meira af fínunnum kolvetnum. Kolvetnarík matvæli eru brauðmatur, kartöflur, hrísgrjón, pasta, morgunverðarkorn og ávextir. Mjólk er oft notuð í skömmtum sem innihalda einnig töluvert magn kolvetna. Kolvetna- og jafnframt trefjarík fæða er æskileg svo sem gróft brauð, grófar kornvörur, baunir og linsur, grænmeti og ávextir. Gróft brauð inniheldur að minnsta kosti 6 g af trefjum í 100 g. Þessar vörur stuðla að góðri blóðsykursstjórnun, innihalda vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast og eru góðar fyrir meltinguna. Auk þess eru þær með lágan glýkemíustuðul. Fæðutegundir með lágan glýkemíustuðul eru almennt taldar æskilegar vegna þess að þær hækka blóðsykur minna en fæðutegundir með háan stuðul. Mikilvægt er að nota glýkemíustuðulinn einungis fyrir fæðutegundir með hátt kolvetnainnihald, t.d. þau sem eru nefnd hér fyrir ofan eða hafa minnsta kosti 15-20 g af meltanlegum kolvetnum í einum skammti. Glýkemíustuðull fyrir kjöt, fisk og þess háttar vörur hefur enga þýðingu og getur verið villandi. Sykur og fínunnið mjöl er kolvetnaríkt en trefjalaust og hækkar blóðsykur meira en grófmetið. 4

MEÐGÖNGUSYKURSÝKI Auka má trefjaneyslu með því að: Byrja daginn með hafragraut, grófu morgunverðarkorni eða grófu brauði Borða grænmeti á hverjum degi, hrátt eða soðið með heitum mat og ofan á brauð Borða brauð sem bakað er úr grófu mjöli, heilhveiti, rúgmjöli, haframjöli, hveitiklíð, heilkornum, grófu speltmjöli, byggi, byggmjöli Borða ávexti daglega, sem millibita, ofan á brauð og með mat t.d. í salat Borða baunarétti ýmiss konar Borða hnetur og fræ Drykkir: Vatn er besti drykkurinn Kolsýrt vatn (sódavatn,toppur, Kristall án viðbættra kolvetna) Sykurskertir drykkir í hófi Te (ekki meira en 3-4 bolla á dag) Kaffi (ekki meira en 1-2 bolla á dag) Forðast: Sykraðir gosdrykkir, orkudrykkir, ávaxtasafar Sælgæti Trefjalítið og sætt morgunkorn (HoneyNut Cheerios, Coco Puffs o.fl.) Kökur, kex Strá sykri út á matinn Fiturík og kolvetnarík matvara (franskar kartöflur, kleinuhringir, vínarbrauð) Snakk, poppkorn, flögur 5

LANDSPÍTALI - GÖNGUDEILD SYKURSJÚKRA Vörur fyrir sykursjúka er hægt að finna í miklu úrvali í verslunum t.d. ýmsar tegundir af súkkulaði, kexi ofl. Ekki er mælt með neyslu á þessum vörum. Matvörur og sælgæti fyrir sykursjúka innihalda oft álíka mikið magn af sykri og fitu og aðrar vörur. Þær eru því orkuríkar og geta haft áhrif á blóðsykur ekki síður en venjulegar matvörur. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á blóðsykur og því er mælt með daglegum göngutúr, sundferð eða öðrum æfingum sem henta. Það er til dæmis gott að fara í göngutúr fyrir eða á eftir stærstu máltíð dagsins. Nota stigann í staðinn fyrir lyftu er líka hreyfing og svo mætti lengi telja. Máltíðum dagsins er skipt í aðalmáltíðir (morgun-, hádegis- og kvöldmat) og millibita. Morgunverður er gjarnan kolvetnaríkur svo mikilvægt er að gæta að skammtastærð Aðalmáltíðir í hádegi og á kvöldin ættu að vera settar saman úr þremur fæðuflokkum í hæfilegum skömmtum: * kjöt eða fisk, bauna-/linsubaunarétt * kartöflur, hrísgrjón, pasta, bygg, brauð * grænmeti eins og ferskt salat og gróft hrátt eða eldað grænmeti Í millibitum er ráðlegt að fá sér t.d. ávaxtaskammt, hrökkbrauð eða annan grófan kolvetnagjafa eftir þörfum. Gjarnan má borða ostbita með ávaxtabitanum eða hrökkbrauðinu. Grænmeti inniheldur lítið af kolvetnum en mikið af trefjum og vítamínum og steinefnum og gjarnan má nota grænmeti sem hluta af öllum máltíðum. Almennt inniheldur grænmeti mikið af vítamínum, steinefnum og trefjum en fáar hitaeiningar. Ávextir innihalda mismikið af kolvetnum svo gott er að miða við að borða litla skammta tvisvar til þrisvar á dag. Eftirfarandi ávaxtaskammtar innihalda 10-15 g af kolvetnum sem er hæfilegur skammtur: 6

MEÐGÖNGUSYKURSÝKI lítið epli, lítil appelsína, ½ banani, ein ferskja, lítil pera, 5 sveskjur, 10 vínber, 150 g melónur, 100 g ananas, 1-2 plómur, 1 kiwi, 200 g jarðarber, 85 g bláber, 190 g greipaldin. Mjólkurvörur eru góður prótein- og kalkgjafi en einungis er þörf á tveimur skömmtum á dag. Hreinar mjólkurvörur eins og skyr, súrmjólk og jógúrt eru góður kostur. Ef notaðar eru mjólkurvörur með viðbættum bragðefnum og ávöxtum er nauðsynlegt að velja þær tegundir sem merktar eru án viðbætts sykurs. Einnig er ágætt að miða við að kolvetnainnihaldið sé innan við 6 g í 100 g ef varan er notuð í samsettri máltíð. Blóðsykursmælingar gefa til kynna hversu mikil áhrif máltíðir hafa á blóðsykurinn. Mikilvægt er að prófa sig áfram með mataræði ef blóðsykur mælist of hár. Það er gert með því að breyta skammtastærð eða prófa aðrar fæðutegundir. Ef blóðsykur helst hár þrátt fyrir þessar breytingar er mikilvægt að vera í sambandi við næringarfræðing/-ráðgjafa og snúa sér til þess læknis sem hefur eftirlit með meðgöngunni. Aðalatriðið er að borða reglulega en blóðsykur getur hækkað ef máltíðum er sleppt. Mest hætta er á háum blóðsykri eftir morgunverð en blóðsykur hækkar minna eftir aðrar máltíðir. Markmið með blóðsykurstjórnun á meðgöngu er að halda blóðsykri innan eftirfarandi marka: undir 5,9 mmol/l fastandi á morgnana fyrir morgunmat undir 7,8 mmol/l 1 klst. eftir aðalmáltíðir 7

LANDSPÍTALI - GÖNGUDEILD SYKURSJÚKRA Tillögur að máltíðum: Morgunverður 2.5 dl létt ab mjólk 40 g brauðsneið 150 g hafragrautur (20 g grjón) 1 stk. Weetabix álegg og grænmeti 2 dl léttjólk 50 g banani 5 sveskjur 100 g banani Millibiti 2 stk. hrökkbrauð m. áleggi 200 g epli 1 stk. jógúrt (Frútína) Hádegisverður létt máltíð 170 g skyr (hreint/án viðb.syk) 1 skál grænmetissúpa 200 g blandað salat og grænmeti 2 stk. brauðsneið m. áleggi 2 stk. brauðsneið m. áleggi 100 g pasta 50 g bananar 100 g perur 1 stk. egg 8

MEÐGÖNGUSYKURSÝKI Miðdagsbiti 40 g brauðsneið m. osti og grænmeti 1 stk. jógúrt (Óskajógúrt) 200 g perur Kl. 19 Kvöldverður: 170 g fiskur 130 g kjöt 125 g soðnar baunir Einn skammtur af eftirtöldu: 150 g kartöflur / 85 g hrísgrjón 100 g pasta / 35 g bygg Einn skammtur af eftirtöldu: 150 g kartöflur / 85 g hrísgrjón 100 g pasta / 35 g bygg 85 g hrísgrjón / 35 g bygg grænmeti að vild 1 stk. brauðsneið með osti a.m.k. 150 g grænmeti a.m.k. 150 g grænmeti a.m.k. 150 g grænmeti sósa og annað meðlæti sósa og annað meðlæti sósa og annað meðlæti Kvöldbiti 50 g hnetur og 10 g rúsínur 30 g hafrakex m. osti 1 stk. jógúrt (létt án viðb. sykurs) og 20 g Cheerios 9

LANDSPÍTALI - GÖNGUDEILD SYKURSJÚKRA Hugmyndir. Líta ber á matseðilinn sem tillögur að máltíðum og æskilegu fæðuvali. Hafa ber í huga að ekki eru gefnar upp skammtastærðir fyrir viðbit, olíu, álegg og fleira sem eykur orkugildi. Mikilvægt er að nota þessar hugmyndir sem ábendingu en áhrif fæðutegunda á blóðsykur eru mjög einstaklingsbundin og tímasetningar, skammtastærðir, trefjainnihald og fleira skiptir máli í því sambandi. Álegg: ostur, skinka, lifrarkæfa, egg, hummus, tómatar, gúrkur, paprika, epli, bananar o.fl. Ávaxtaskammtur: hálfur banani, lítið epli, lítil pera, 10 stk. vínber o.fl. Fiskur: ýsa, þorskur, lax, steinbítur, lúða, sardínur, síld o.fl. Grænmeti: alls kyns ferskt grænmeti í salat og soðið, steikt, bakað grænmeti eins og brokkólí, rófur, gulrætur, blómkál o.fl. Gróft brauð: a.m.k. 6 g trefjar í 100 g Kjöt: lambakjöt, nautakjöt, kjúklingur, svínakjöt o.fl. Kartöflur og kornvörur: kartöflur, hrísgrjón, pasta, bygg, kúskús o.fl. Morgunkorn: Cheerios, All Bran, Weetabix, Bran Flakes o.fl. Skyr: hreint skyr, skyr án viðbætts sykurs Súpa: grænmetissúpa, fiskisúpa, gúllassúpa o.fl. Sýrður mjólkurmatur: súrmjólk, léttsúrmjólk, ab mjólk, létt-ab mjólk, hrein jógúrt, jógúrt án viðbætts sykurs 10

MEÐGÖNGUSYKURSÝKI Nokkrar vefsíður: lydheilsustod.is > matur og næring matis.is > ISGEM, næringarefnagrunnur > Hvað er í matnum? (hvaderimatnum.is) mni.is > greinasafn syni.is > uppskriftir > matreiðslunámskeið matarvefurinn.is > næringargildi máltíða www.lydheilsustod.is 11

ÚTGEFANDI GÖNGUDEILD SYKURSJÚKRA LANDSPÍTALA FEBRÚAR 2010 SAMANTEKT: NÆRINGARSTOFA LANDSPÍTALA UMSJÓN OG ÁBYRGÐ: BERTHA MARÍA ÁRSÆLSDÓTTIR MATVÆLA- OG NÆRINGARFRÆÐINGUR HÖNNUN: KYNNINGARMÁL LSH/ÁJC MYNDIR: SUAT EMAN / FREEDIGITALPHOTOS.NET LÝÐHEILSUSTÖÐ