Úrval brúðargjafa á tilboðsverði Einstakar brúðargjafir Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri www.lindesign.is 20. júlí 2013 27. tölublað 4. árgangur v i k u b l a ð UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN China s first global brand. Forbes. Birt með fyrirvara um villur í texta og/eða myndabrengl the #1 global Major appliances brand For 4th Consecutive year. Euromonitor International. Hágæða sjónvörp á tilboðsverði 32 39 50 79.900 109.900 179.900 Víkingar í vígahug Fyrsta víkingahátíðin í Reykjavík fór fram um síðustu helgi. Ungir sem aldnir mættu í Hljómskálagarðinn þar sem hátíðin er haldin en fjölmargt forvitnilegt var þar að sjá. Félagar í víkingafélaginu Einherja stóðu að hátíðinni sem heitir eftir landnámsmanninum Ingólfi Arnarsyni, en þessi fyrsta hátíð er tileinkuð Ingólfi Júlíussyni ljósmyndara, sem var félagi í Einherjum og lést fyrir skömmu. Agnes Jónsdóttir, Þorgils Haukur Björgvinsson og Þröstur Atlason tóku sig vel út í víkingaklæðunum á hátíðinni. Mynd: Þórir Snær www.godverk.is 32 46 Full HD led EH5005 99.900 174.900 Sala ÞjónuSta Ábyrgð BT Skeifan BT Glerártorg Sími 550 4444 www.bt.is
2 20. júlí 2013 Skuldabréf Magma selt á hálfgerðri útsölu segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Borgarráð Reykjavíkur ákvað á síðasta fundi sínum að samþykkja sölu Orkuveitunnar á svonefndu Magma-skuldabréfi með afföllum til sjóðs í eigu Landsbréfa. Var salan samþykkt með fjórum atkvæðum Besta flokksins og Samfylkingarinnar gegn þremur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna. Þegar Magma Energy Sweden A/B Leiðari keypti hlutabréf Orkuveitunnar í HS- Orku árið 2009 voru 30% kaupverðsins, 3,7 milljarðar, greidd út en eftirstöðvarnar með umræddu skuldabréfi, sem greiða á með eingreiðslu árið 2016. Hlutabréfin höfðu þá verið til sölu um hríð en samkeppnisyfirvöld höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að Orkuveitunni væri óheimilt að eiga svo stóran hlut í HS-orku. Við hljótum að vera mis mikilvæg! Ég verð að viðurkenna að ég er nokkuð hissa þessa dagana. Ég líkt og aðrir landsmenn fengum fréttir af því að æðstu yfirmenn stofnana á vegum ríkisins hefðu hækkað í launum um allt að 20%. Þar væri m.a. verið að leiðrétta laun afturvirkt frá því Alþingi samþykkti lög snemma árs 2010, um að enginn ríkisstarfsmaður hefði hærri laun en forsætisráðherra. Nú ætla ég ekki að halda því fram að ekki eigi að leiðrétta og lagfæra laun æðstu stjórnenda ríkisins. En mér finnst það jaðra við hræsni að menn sem eru með góð laun í ábyrgðarmiklum störfum skuli fá hækkanir á há laun sín svo tugum prósenta skiptir meðan hinn venjulegi launamaður vart skrimtir af launum sínum, og allra síst eftir hinn margrædda forsendubrest í kjölfar hrunsins. Vandamál ríkisins eru margvísleg. Við höfum verið að missa frá okkur mikilhæfa lækna þar sem þeir hafa leitað út fyrir landsteinana í leit að betri kjörum. Fáir hafa komið í þeirra stað og víða eru vandamál að manna læknastöður. Sumir borgar þessa lands þurfa að búa við skerta starfsgetu og hafa ekki val þar um. Þeir hafa það skítt. Nú er það svo, að þeir sem fengu þessar allmyndarlegu hækkanir kjararáðs eru karlar og konur sem gegna eftirsóknum störfum. Það þýðir að brotthvarf þeirra úr störfum hefði lítil sem engin alvarleg áhrif til lengri tíma litið því strax kæmi maður í manns stað. Það á hins vegar ekki við um læknana, hjúkrunarfræðingana, smiðina, lyfjafræðingana og hvað þetta allt heitir. Málið er nefnilega að við rekum ekki samfélag án allra þeirra stétta sem í samfélaginu starfa. Ég gæti ekki hugsað samfélag þar sem sorphirðumenn vantaði, iðnaðarmenn, kennara, sálfræðinga og svona mætti áfram telja. Það yrði á endanum skelfilegt ástand í samfélaginu ef þessar stéttir myndi skorta. En þeir sem raðast í efstu launaskalanna virðast þurfa meira en aðrir. Er það vegna þess að þeir eru taldir vera mikilvægir umfram aðra? Ef svo er lifa þeir hinir sömu sem það telja í villu og svíma. Og þá spyr ég hvers vegna er þeim skammtað svo vel úr hendi ríkissjóðs meðan þeir sem starfa að grunnstoðum samfélagsins verða að láta sér duga að sjá hvort launin dugi til næstu mánaðarmóta. Gátan er því óleyst. Hvers vegna þarf t.d. forstjóri Landsvirkjunar heildarlaun upp á 1.600.000 krónur á mánuði? Hvað veistu um borgina þína? Spurning vikunnar er: Hver var fyrsti útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins? Reykjavík vikublað 27. Tbl. 4. árgangur 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. Framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: baejarblod@gmail.com, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: sigurdur@vedurehf.is, Ljósmyndari: Þórir Snær Sigurðarson, sími 615 2049. Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Veffang: fotspor.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 47.500 eintök. Dreifing: Fríblaðinu er dreift í 47.500 eintökum í allar íbúðir í Reykjavík Góða helgi Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur og ritstjóri Svarið er að finna á síðu 14. Selt við slæmar aðstæður Borgarráðsmenn Sjálfstæðisflokksins töldu tilboðið í bréfið ekki viðunandi og því greiddu þeir atkvæði gegn sölu þess.,,við Sjálfstæðismenn erum ekki á móti sölu bréfsins í sjálfu sér en margt bendir til að óráðlegt hafi verið að taka þessu tilboði. Þá hafa vinnubrögðin og leyndarhyggjan í þessu máli verið algerlega óviðunandi hjá borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingarinnar og Besta flokksins. Verðmæti skuldabréfsins ræðst að hluta af álverði, sem hefur lækkað verulega að undanförnu og er nú afar nálægt skilgreindu lágmarki bréfsins eða í kringum 1.800 bandaríkjadali. Margar spár um álverð gefa til kynna að það muni hækka verulega á næstu árum. Með sölu bréfsins er einnig verið að auka gengismisvægi í efnahag Orkuveitunnar, sem við Sjálfstæðismenn teljum afar óráðlegt við núverandi aðstæður. segir Kjartan Kjartan segir það vissulega hafa sína kosti að selja skuldabréfið nú.,,það kemur sér á vel fyrir Orkuveituna að losa um þessa eign sína og fá þannig aukið lausafé. Á móti þarf að skoða hvort verið sé að selja skuldabréfið með of miklum afföllum, ekki síst í ljósi þess hvað álverð hefur lækkað mikið að undanförnu. Við komumst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki gott fyrir Orkuveituna að setja skuldabréfið á hálfgerða útsölu, segir Kjartan. Leynd yfir sölu skuldabréfsins Veigamiklum atriðum hefur verið haldið leyndum varðandi sölu skuldabréfsins og því hafa fjölmiðlar ekki átt þess kost að upplýsa almenning um ýmsa þætti málsins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna hafa lagt fram tillögur um að leynd verði aflétt af kauptilboðinu og sölusamningnum en árangurslaust þar sem borgarstjórnarmeirihluti Samfylkingar og Besta flokksins hafa ekki samþykkt þær. segir Kjartan Meirihlutinn felldi tillögu sjálfstæðismanna og VG um að tillögunni yrði Formaður borgarráðs um söluna á Magma-skuldabréfinu: Studdust við mat sérfræðinga og áhættugreiningu -ósk um aukafund í borgarstjórn hefur ekki komið fram Við ákváðum að Orkuveitan gæti gengið að því tilboði sem liggur fyrir. Í þeirri ákvörðun studdumst við verðmat tveggja óháðra aðila. Jafnframt var stuðst við mat sérfræðinga Orkuveitunnar og umsögn og áhættugreiningu fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, um þá ákvörðun meirihlutans að samþykkja sölu Orkuveitunnar á svonefndu Magma-skuldabréfi til Landsbréfa. Dagur segir að tekið hafi verið tillit til fjölmargra þátta við ákvörðun borgarráðs. Það er margt sem þarf að horfa til, bæði tímasetningar sölunnar og Kjartan Magnússon borgarfulltrúi vísað til borgarstjórnar en þá hefðu allir borgarfulltrúar þurft að taka þátt í afgreiðslu þess og almenningur getað fylgst með fyrir opnum tjöldum. Veigamiklum atriðum leynt fyrir almenningi Kjartan gagnrýnir þessa leynd yfir málinu enda sé um að ræða sölu opinberra eigna fyrir milljarða króna.,,meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins, og þá sérstaklega Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs, hefur lagt ótrúlega mikla áherslu á að sem flest í kringum þessi kaup sé haldið leyndu. Hið sérkennilega er að kaupandinn gerði ekki kröfu um slíka leynd í sínu kauptilboði og því spyr maður hvaða hagsmunum sé verið að þjóna. Reyna átti að keyra þessi kaup í gegn án þess að eigendur skuldabréfsins, almenningur, fengi að vita söluverð skuldabréfsins og þar með afföllin. Ekki tókst þó að komast hjá því að þær upplýsingar bærust fjölmiðlum og því fór sú leyniáætlun út um þúfur. Enn er þó veigamiklum atriðum málsins leynt fyrir almenningi eins og.t.d. þeim hvort ákveðnir aðilar standa á bak við kaupin og hverjir þeir eru. Kjartan segir þessa leynd ekki síst vera kostulega í ljósi þess að við sölu hlutabréfanna í HS-orku árið árið 2009 hafi fulltrúar Samfylkingarinnar krafist þess að öll slík atriði varðandi kaupin yrðu gerð opinber, sem hafi verið gert.,,nú hamast sami flokkur með sama oddvita í broddi fylkingar við að halda leyndarhulu yfir sem flestum þáttum málsins, segir Kjartan að lokum. annars. Heildarmatið leiddi til þeirrar niðurstöðu að við féllumst á beiðni Orkuveitunnar. Hvaða skoðun hefur þú á tímasetningunni? Skuldabréfið hefur lengið verið til sölu og það hefði hugsanlega mátt selja það fyrr. Ég skal ekki segja um það. Við tókum afstöðu til tilboðs sem er á borðinu núna og það getur haft kosti og galla að taka því. Með því að heimila sölu bréfsins tökum við út stóra áhættu úr rekstri Orkuveitunnar. En af hverju var málinu ekki vísað til borgarstjórnar? Borgarráð fer með verkefni borgarstjórnar í sumarleyfi hennar. Þessi Stutt og laggott Söguganga í Viðey á þriðjudaginn Í gegnum tíðina var eyjan mikilvæg valdamiðstöð á sviði trúmála, stjórnmála, vísinda og tækni. Stefán Pálsson sagnfræðingur gengur með gestum um Viðey þriðjudaginn 23. júlí kl. 19:30 og fjallar um sögu Viðeyjar fyrr á öldum eins og honum einum er lagið. Rætt verður um munkabjór, tóbakslauf, héradráp og ótal margt fleira og verður ýmislegt dregið fram í dagsljósið. Stefán er leiðsögumaður af guðs náð og óhætt að lofa skemmtilegri og eftirminnilegri göngu. Á þriðjudagskvöldum eru aukaferðir til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en leiðsögn byrjar. Gangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir. Að göngu lokinni er hægt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en siglt er heim um klukkan tíu. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100 fyrir fullorðna og kr. 550 fyrir börn 7 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Handahafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin. Hjólastígar í Fossvogsdal Hjóla- og göngustígur hefur verið lagður í gegnum Svartaskóg í Fossvogsdal. Stígurinn liggur frá innkeyrslu Ræktunarstöðvar Reykjavíkurborgar að núverandi stíg austan svæðisins. Göngu- og hjólastígar eru aðskildir á þessum 300 metra langa kafla eins og víðast í Fossvogsdal. Einnig hefur verið lagður nýr stígur frá enda Árlands inn á núverandi gönguog hjólastíga austan Ræktunarstöðvar. Sá stígur er 2,5 m breiður og lengd um 40 metrar. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. ákvörðun féll innan þess umboðs. Tiltekinn fjöldi borgarfulltrúa hafa fullan rétt á að biðja um aukafund að sumri, en slík ósk hefur ekki komið fram.
SAFARÍKARI SAFAPRESSA Safapressan sem fagaðilar keppast við að dásama Hurom Slow Juicer safapressan hefur svo sannarlega slegið í gegn, enda nær hún allt að 35-50% meiri safa úr hráefninu en aðrar safapressur. Slow Juicer safapressan þrýstir safanum úr hráefninu eins og mortél, en tætir ekki eins og aðrar safapressur. Fyrir vikið færðu bæði meiri og næringarríkari safa úr Hurom Slow Juicer. Hurom Slow Juicer pressar m.a. safa úr ávöxtum, grænmeti, hnetum, berjum, fræjum, möndlum og hveitigrasi. π Allt að 70% hljóðlátari en aðrar vélar π Hæg pressa skilar ferskari og betri safa π Hreinni safi, miklu minna hrat π 35% 50% meiri safi en úr hefðbundnum safapressum π Allt að 50% hraðvirkari en hefðbundnar safapressur π Mun meira næringargildi en úr öðrum vélum π Auðvelt að hreinsa Meiri safi meira af vítamínum betri nýting. Nánari upplýsingar á www.hataekni.is/hurom 35 50% meiri safi PIPAR \ TBWA SÍA 132176 Söluaðilar: Höfuðborgarsvæðið: Borð fyrir tvo, Laugavegi 97 π Hagkaup, Eiðistorgi, Garðabæ, Holtagörðum, Kringlunni, Skeifunni, Smáralind og Spöng Hátækni, Ármúla 26 π Heilsuhúsið, Kringlunni π Innigarðar, Hraunbæ 117 π Lifandi Markaður, Borgartúni 24, Fákafeni 11, Hæðasmára 6 Vesturland: Hagkaup, Borgarnesi Norðurland: Bókaverslun Þórarins, Húsavík π Byko, Akureyri π Hagkaup, Akureyri π Heilsuhúsið, Akureyri π Skagfirðingabúð, Sauðárkróki Austurland: Tónspil, Neskaupsstað Suðurland: Árvirkinn, Selfossi π Geisli, Vestmannaeyjum π Hagkaup, Selfossi π Hagkaup, Reykjanesbæ π Heilsuhúsið, Selfossi Aðrir: www.aha.is π www.heimkaup.is Heildsöludreifing: Hátækni Heildverslun
Skeifunni 8 108 Reykjavík Sími: 517 6460 www.belladonna.is Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Flott föt fyrir flottar konur Ísleifur Jónsson útfararstjóri Stærðir 38-58 Frímann Andrésson útfararþjónusta Verslunin Belladonna Jón Bjarnason útfararþjónusta REYNSLA UMHYGGJA TRAUST Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elíasson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is 4 Fjör á harmonikkuballi Fjölmenni sótti Árbæjarsafn um liðna helgi þegar Harmonikkuhátíð Reykjavíkur var haldin í safninu. Harmonikkuleikarar úr ýmsum áttum spiluðu af hjartans list og viðstaddir stóðust ekki mátið og skelltu sér í skottís, ræl og polka og stöku vals. Meðfylgjandi myndir tók Þórir Snær í safninu á sunnudaginn. 20. júlí 2013 Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands: Stefnt að samkeppni um framtíðarskipulag háskólasvæðisins Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands hyggjast standa saman að samkeppni um framtíðarskipulag háskólasvæðisins og hafa Jón Gnarr borgarstjóri og Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, undirritað viljayfirlýsingu þess efnis. Stefnt er að því að samkeppninni ljúki síðar á árinu og að í framhaldinu verði gert rammaskipulag af háskólasvæðinu sem verður hluti af staðfestu aðalskipu lagi borgarinnar. Meginmarkmið samkeppninnar er að fá fram spennandi hugmyndir um framtíðarnýtingu og skipulag háskólasvæðisins. Samkvæmt viljayfirlýsingunni er gert ráð fyrir að samkeppnin byggist á markmiðum borgarinnar, sem koma fram í drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi Reykjavíkur, um græna, þétta og fallega borg. Í samkeppninni er jafnframt gert ráð fyrir að tekið verði mið af stefnumótun borgarinnar og Háskóla Íslands á sviði umhverfis, auðlinda og samgöngumála og einnig haft til hliðsjónar markmið Háskóla Íslands og Norræna hússins um friðland í Vatnsmýri sem náttúruperlu í borg. Þá verður gert ráð fyrir allt að 400 nýjum stúdentaíbúðum á háskólasvæðinu og bættri nýtingu vestan Suðurgötu í samræmi við aldar afmælisyfirlýsingu Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar. Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands mun vinna forsögn vegna sam keppninnar og mun dómnefnd byggja samkeppnislýsingu á henni. Samkeppnin verður skipulögð í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og unnið verður eftir samkeppnisreglum félagsins. Sigurður Alfonsson spilaði fyrir dansi í safninu. MERCEDES BENZ 508D Mercedes Benz 508D þessi vel þekkti, trausti og sterki Árgerð: 1987 (orðinn fornbíll, engin bifreiðagjöld) Akstur: Örfá þúsund km Ástand: Sem nýr (lakk sólbakað, að öðru leyti óslitinn og með öllu óryðgaður) Bifreiðarnar voru áður í eigu NATO og voru skilgreindar sem tæki í viðbragðsstöðu. Hafa því ætíð fengið forgang á viðhaldi og eftirliti. - með skráningu og komin á götuna. Getum útvegað aðeins fáeina bíla á þessu verði. Fyrstur kemur fyrstur fær! Allar nánari upplýsingar: kvikaehf.wix.com/bilahlutir Eldshöfða 4 110 Reykjavík info@bilahlutir.com Smiðir Málarar Píparar Rafvirkjar Bændur Bílstjórar Kvikmyndagerðarm. Ferðaþjónustuaðilar o.fl, o.fl... NÚ ER ALLRA SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ AÐ EIGNAST GRIPINN Á ÞESSU ÓTRÚLEGA VERÐI Sími 587-5058 GSM 695-7007 / 863-5058 Skæruliðarnir fjölmenntu og léku fyrir viðstadda. Styttist í Hinsegin daga: Gangbrautir málaðar í regnbogalitum Til að fagna gleðigöngu Hinsegin daga verða málaðar gleðirendur í gönguþveranir gatna á Sóleyjargötu og Lækjargötu. Gleðigangan fer fram laugardaginn 10. ágúst en málningar vinna fer fram sömu viku. Gleðigangan er einn vinsælasti viðburður sumarsins í Reykjavík en skipulagning er unnin alfarið af sjálfboðaliðum á vegum Hinsegin daga Samtakanna 78. Borgarstjóri hefur undanfarin ár tekið þátt í göngunni líkt og aðrir sem láta sig málefni hinsegin fólks varða en í ár fagna samtökin 35 ára afmæli sínu. Gleðirendur eru zebrabrautir í regnbogalitum. Þær verða málaðar á fjórum Dansinn dunar þetta par var ekki í vandræðum með skottísinn. stöðum þar sem gangan mun fara fram. Málað verður með hefðbundinni málningu sem hverfur á nokkrum vikum í rigningu og bílaumferð. Hinsegin dagar í Reykjavík verða nú haldnir í fimmtánda sinn en hátíðin fer fram dagana 6. 11. ágúst. Boðið verður upp á litríkan hóp listamanna og óvenju fjölbreytt úrval atburða. Hátíð Hinsegin daga hefur stækkað gríðarlega, eða allt frá því að vera lítil eins dags hátíð sem fimmtán hundruð gestir sóttu, upp í litríka sex daga hátíð sem búist er við að allt að 100 þúsund manns sæki.
Flottar vörur á Frábæru verði Birt með fyrirvara um villur í texta og/eða myndabrengl SamSung 15,6 355v5c-Soe FarTölva 15.6 HD LED 1366x768 mattur skjár AMD Quad-Core A8-4500M 1.9-2.8GHz örgjörvi AMD HD7730 2GB grafíkstýring DVD SuperMulti geisladrif 750GB 5400RPM harður diskur 6GB DDR3 1600MHz vinnsluminni PowerPlus rafhlaða með allt að 1000 hleðslum HDMI 2xUSB2.0 2xUSB3.0 VGA Windows 8 64-Bit Bluetooth 4.0 SamSung 13,3 535u3c-a06 bleik FarTölva 13.3 1366x768 LED Non-Gloss skjár AMD DualCore A6-4455M 2.1GHz örgjörvi AMD Radeon HD7500G grafíkstýring 500GB 5400RPM harður diskur 4GB DDR3 1333MHz vinnsluminni USB3.0 2xUSB2.0 HDMI PowerPlus rafhlaða með allt að 1500 hleðslum Allt að 6 tíma rafhlöðuending Windows 8 64-Bit Þyngd aðeins 1,5kg 129.900 34.999 139.900 nýleg óháð samanburðarkönnun sýnir fram á afburða árangur Samsung fartölva hvað áreiðanleika varðar: www.bt.is/page/samsungbest verð frá: 5.999 hercules dj control air STreeT edition Þrýstingsnæm snúningshjól Air þráðlaus stjórnun 8 velocity takkar sem stjórna sampler, loops og effects Lime grænir Street Edition takkar DJUCED 18 hugbúnaður fylgir Virkar með Traktor og VirtualDJ Pro MIDI forritanlegur SamSung bd-f5100 bluray SPilari Spilar Blu-Ray, DVD ogcd HDMI, nettengi, Coaxial og USB Styður: MP4, AVCHD, MKV, WMV og fleira ConnectShare Movie USB afspilun FullHD 1080P upscale á DVD í gegnum HDMI AllShare (DLNA) stuðningur 19.999 3.999 veho Pebble SmarTSTick FerðaraFhlaða Til í 3 litum svört, fjólublá, silfur 2.200mAh endurhlaðanleg rafhlaða Tengi fyrir alla vinsælustu símana og önnur tæki 5 mismunandi tengihausar fylgja Vegur aðeins 70g 129.900 SamSung nx210 20.3mP myndavél + galaxy Tab 2 7.0 20.3 MP APS-C CMOS 3.0 AMOLED Skjár Allt að 8 myndir á sekúndu ISO 100 12800 1920x1080@30fps myndbandsupptaka Innbyggt þráðlaust net 18-55mm i-function OIS linsa og flass fylgja Samsung Galaxy Tab 2 7.0 WiFi 8GB fylgir Tekur allt að 128GB SDXC kort og vegur aðeins 222g FullT af FloTTum dvd og barna dvd Tech 21 impact hulstur Fyrir Samsung Galaxy S4 og S3 Einstakt nýtt efni D3O Læsir saman sameindum við högg Mikið úrval 999 www.godverk.is BT Skeifan BT Glerártorg Sími 550 4444 www.bt.is
6 20. júlí 2013 seltjarnarnes Nýjar tölur Hagstofunnar um mannfjölda í lok 2. ársfjórðungs 2013 Reykvíkingum hefur fjölgað um 1,27% frá 2. ársfjórðungi í fyrra -hlutfallslega mesta fjölgunin í Kópavogi 2,36% 25 ÁR Kjúklingur í sataysósu Núðlur með grænmeti Svínakjöt í ostrusósu Djúpsteiktar rækjur með súr/sætri sósu Heimsent: 1.590 kr. + 900 kr. heimsendingargjald Reykvíkingum hefur fjölgað um 1.510 milli loka 2. ársfjórðungs 2012 til loka 2. ársfjórðungs 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Reykjavíkingar voru 120.260 þann 1. júlí sl. en voru 118.750 á sama tíma í fyrra. Þetta þýðir fjölgun um 1.510 eða 1,27%. Yfir sama tímabil fjölgaði Kópavogsbúum um 2,36% eða um 740. Voru 1. júlí sl. 32.130 en 31.390 á sama tíma í fyrra. Fjölgun varð í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þannig fjölgaði íbúum á Seltjarnarnesi yfir sama tímabil um 1,16% eða um 50 talsins og voru 1. júlí 4.360. 2,50% Hlutfallsleg fjölgun Hafnfirðingum fjölgaði næst mest af íbúum á höfuðborgarsvæðinu eða um 430, voru 1. júlí 27.100 en á sama tíma í fyrra 26.670 og er það fjölgun um 1,61%. Ekki er raunhæft að skoða tölur fyrir Garðabæ þar sem samruni við Álftanes átti sér stað á árinu. Á höfuðborgarsvæðinu öllu búa nú ríflega 207.000 manns en tæp 117.000 á landsbyggðinni. Íbúafjöldi á landinu öllu var 1. júlí 323.810 manns, 162.400 karlar og 161.410 konur. Landsmönnum fjölgaði um 880 á ársfjórðungnum. 2,36% 2,00% 1,50% 1,00% 0,50% 1,27% 1,16% 1,61% 0,00% Reykjavík Seltjarnarnes Kópavogur Hafnarfjörður Kópavogsbúum fjölgaði mest milli 1. júlí í ár miðað við sama tíma í fyrra. Í öðru sæti var Hafnarfjörður, Reykjavík í því þriðja og Seltjarnarnes rak lestina með 1,16% fjölgun. Loft- og vökvakerfi Legur og drifbúnaður Verkfæri og öryggisvörur Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Brammer Ísland ehf Steinhella 17a 221 Hafnarfjörður Sími: 522 6262 www.brammer.is Bílaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Dekkjaverkstæði Allt á einum stað www.bilaattan.is Smurstöð Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa Varahlutaverslun Bókasafnið Seltjarnarnesi: Fróðleikur um Hundadaga og margt þeim tengdum Hundadagar eru tiltekið skeið sumars um heitasta tímann á norðurhveli jarðar, talið frá 13. júlí (Margrétarmessu) til 23. ágúst eða 6 vikur. Á Bókasafni Seltjarnarness hefur upplýsingafræðingurinn Kristín Arnþórsdóttir sett upp skemmtilega sýningu og fróðleiksmola í um Hundadagana sem nú standa yfir. Forn-Grikkir kenndu þetta tímabil við hundastjörnuna Síríus en hér á landi hafa hundadagar verið tengdir umræðum um veðurfar, hátterni hunda og hundfiska Hátterni hunda á hundadögum Samkvæmt íslenskri þjóðskýringu á heiti hundadaga bíta hundar talsvert gras á tímabilinu enda sé grasið þá safaríkast. Tengist þetta háttalag þeirra því að um þetta leyti sé oft ódöngun, slen og vanþrif í hundum og bíta þeir grasið til að fá fjörefni og hreinsa innyflin (Saga daganna, bls. 187-190). Veðurfar á hundadögum Áhyggjur vegna veðurfars á þessum tíma tengdist helst heyskap. Í upphafi hundadaga mátti búast við veðrabrigðum og skyldi það veður haldast þar til hundadögum lyki. (smáhvala) segir Kristín og bætir við að á síðustu öldum hafi þeir tengst Jörundi hundadagakonungi. Ég hef leitað fanga víða enda er Bókasafn Seltjarnarness, þar sem ég starfa, í senn menningar-, mennta- og upplýsingastofnun og það er gaman að grúska og vinna að uppsetningu svona fræðslusýninga segir Kristín sem er með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands og hefur unnið við uppsetningu nokkurra sýninga ásamt fleirum. Veðurlýsingar: Hundrigna: Skömmu eftir að við vorum komnir í gangnaröð fór að hundrigna og það var óskaplega kalt (lexis.hi.is). Hundaveður: Rigning og hrakviðri.,,ég get hvort sem er hvergi sett mig niður, blautur og forugur eins og ég er. Þetta er hundaveður (lexis.hi.is). Hundslappadrífa: Drífa sem féll í stórum flygsum eða snjóflygsum til jarðar, kallaðist hundslappadrífa. (Þórður Tómasson, Veðurfræði Eyfellings, bls. 120)
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ICELAND ENGIHJALLA Tilboðin gilda í dag, laugardag og sunnudag Stórar dósir 500 ml Pepsi, Pepsi Max, Appelsín 78kr. stk. Ben & Jerry s ís, 2 tegundir 788kr. stk. Magnum Classic íspinnar, 3 í pakka 398kr. pk. Lambabógur, frosinn Verð birt með fyrirvara um prentvillur og gildir á meðan birgðir endast. Mini maísstönglar 298kr. pk. Chicago Town Deep Dish pizzur, 4 osta eða pepperoni 378kr. pk. Grænmetis-vorrúllur, 16 í pakka 298kr. pk. Iceland íspinnar, 6 stk. í pakka Iceland bollur með sultu, 10 í pakka 598kr. stk. Fæst bara í 298kr. pk. Nýtt Nýtt Star Wars-ís, 4 stk. í pakka 298kr. pk. 788kr. kg Fæst bara í Hello Kitty-ís, 4 stk. í pakka 298kr. pk. Fæst bara í 50% afsláttur í Nammilandi Iceland á laugardögum!
8 20. júlí 2013 Heimsókn á tjaldsvæðið í Laugardal: Alsælir ferðamenn þrátt fyrir sólarleysi og bleytu Ferðamenn hafa vissulega bankað hér uppá og leitað skjóls en við getum lítið gert, því miður. Hér er allt upppantað langt fram í tímann, segir Jóhann Davíð Snorrason, markaðsstjóri Hostelanna í Reykjavík. Hann segir að önnur stemming sé í gistihúsinu þegar rignir en þegar sólin skín. Menn dvelji meira innandyra í setustofunni og þegar blaðamenn ber að garði þá er þétt setið í setustofunni þar sem menn sitja að tafli og spila á gítar. Þvottur hékk víða til þerris á tjaldsvæðinu í Laugardag í vikunni en það virtist borin von að hann myndi nokkurntímann ná að þorna þar sem reglulega brast á með skúrum. Þrátt fyrir það báru ferðamenn sig vel á tjaldstæðinu utan einn sem sat fyrir utan tjald sitt, þungur á brún með glóðurauga á báðum. Sá vildi ekkert við okkur tala og var frekar óárennilegur svo við tókum stóran sveig fram hjá honum. Ferðinni heitið í Landmannalaugar Fyrst hittum við að máli þær Suvi Raatikanien og Minnu Kempe. Þær voru nýkomnar til landsins frá Finnlandi og fannst hitastigið í Laugardalnum ólíkt lægra en þar. Við ætlum í Landmannalaugar og hlökkum mikið til sögðu þær. Þær höfðu aflað sér upplýsinga um landið á vefsíðunni Lonely planet áður en þær komu hingað til lands og ætluðu að gefa sér tvær vikur í ferðalagið. Íslensku bakaríin eru frábær Olaf Bladitz frá Þýskalandi er hér í heimsókn í annað skipti. Hann fer einn um landið á hjóli og ætlar að þessu sinni að ferðast um Vestfirði. Hann segir að veðrið nú sé ólíkt því sem hann upplifði í fyrra en er við öllu búinn enda hefur hann fylgst með veðurspám Jóhann Davíð Snorrason segir að ferðamenn af tjaldsvæðinu falist eftir plássi í Hostelinu en sjaldnast sé laust pláss. og veðurfari áður en hann kom hingað. Hann dásamar íslensku bakaríin og segir að þau séu á heimsmælikvarða. Það er ekki ódýrt að vera ferðamaður hér en það er þess virði. Ísland er frábært land. Rigndi í fjórar vikur Ég hef hitt alveg frábært og skemmtilegt fólk á Íslandi segir Ted Osborn, sem kemur frá Kentucky í Bandaríkjunum. Hann hefur, ásamt félaga sínum ferðast hringinn í kringum landið í rútu og af og til húkkað sér far. Hann segir veðurfarið hér á landi minna sig á veðurfarið á heimaslóðum að vori til. Ég er vanur svona veðri en það hefur nánast rignt á okkur allan tímann þessar fjórar vikur sem við höfum dvalið hér. Eftirminnilegustu staðirnir að hans mati eru Seljalandsfoss og Skaftafell og hann segir að afar auðvelt sé að ferðast um á puttanum á Íslandi. Lenti í lífshættu á Fimmvörðuhálsi Ég lenti í lífshættu á leiðinni milli Skóga og Þórsmerkur og um tíma hélt ég að ég myndi ekki lifa þetta af segir Lut De Roeck frá Belgíu sem var að reyna að þurrka sokkana sína. Ég er öll blá og marin á lærunum þar sem ég rann svo illa og það var snjóstormur á leiðinni segir Lut sem fór gangandi um landið og lenti í ýmsum hremmingum. Ég komst svo yfir í Þórsmörk og tók 2 daga í að jafna mig eftir þetta og hélt svo áfram og fór norður Hún er hér í annað skipti og segir að Ásbyrgi og Dettifoss sé í miklu uppáhaldi hjá sér sem og Snæfellsnesið. Hún hefur ferðast víða um heim og ferðast alltaf ein með tjaldið sitt. Suvi Raatikanien og Minna Kempe frá Finnlandi Olaf Bladitz er í sinni annari heimsókn á Íslandi. Ted Osborn segir að mjög auðvelt sé að ferðast um á puttanum á Íslandi. Rólegaheita stemming var í Hostelinu í Laugardal í vikunni. Lut De Roeck frá Belgíu lenti í hremmingum á Fimmvörðuhálsi.
20. júlí 2013 9 Endurnýjun sundlauganna og bygging nýrra er eitt af forgangsmálum Reykjavíkurborgar: Er kallaður Lauga-Dagur Viðhaldsátak fyrir um milljarð króna hefur staðið yfir í sundlaugum borgarinnar undanfarin ár. Búningsklefar hafa verið endurgerðir, nýir pottar komið til í Árbæ, Laugardal og Vesturbæ, og ný eimböð í Breiðholti og Grafarvogi. Þá eru ótaldar sundlaugarnar sem eru á leið í hönnunarsamkeppni fyrir Úlfarsárdal og Grafarholt, annars vegar og við Sundhöllina hins vegar. Við ræddum við Dag B. Eggertsson formann borgarráðs um sundlaugarnar í borginni og framtíðarsýn borgarinnar í uppbyggingu þeirra. Hann segir laugarnar hafa verið forgangsmál frá fyrsta degi og bætir hlæjandi við að á tímabili hafi hann verið uppnefndur Lauga-Dagur vegna áhuga síns á málinu. Um leið og við tókum við stjórn borgarinnar ákváðum við að leggja sérstaka áherslu á sundlaugarnar. Ástæðurnar voru nokkrar. Við vildum auka framkvæmdir sem fjölguðu störfum og laugarnar voru komnar í mikla þörf fyrir viðhald. Þetta hefur að því leyti verið hagstæður tími til að fjárfesta. Við vildum líka bæta almenningsrýmin í borginni og ýta undir það sem gerir hana skemmtilegri. Þar koma sundlaugarnar sterkar inn, enda snar þáttur í borgarlífinu. Og síðast en ekki síst þá held ég að sundlaugarnar okkar skipti gífurlegu máli fyrir hreyfingu og lýðheilsu Reykvíkinga á öllum aldri. Bæði líkamlega og félagslega. Þær eru gimsteinn. Áherslan á almenning Sundlaugarnar voru vanræktar, einsog og margt sem við eigum saman, á tímum hins svokallaða góðæris, segir Dagur. Nú leggjum við hins vegar áherslu á allt sem byrjar á almennings -. Þetta eru almenningslaugar, almenningssamgöngur og almenningsrými, einsog útivistarsvæði og torg. Þessi sameiginlegu gæði sem gera Reykavík að betri borg. Þessir hlutir skipta gríðarlega miklu máli að sé í lagi og tengjast beint þeim lífsgæðum sem við viljum bjóða upp á segir Dagur Við litum því ekki bara til gömlu lauganna okkar heldur mörkuðum stefnu fyrir laugarnar til næstu 20 ára. Þar er áherslan einmitt lögð á lífsgæði borgarbúa, sérstöðu Reykjavíkurborgar og tækifæri sem áfangastaður ferðamanna. Borgarráð setti af stað hóp til verksins og var hann leiddur af Evu Einarsdóttur formanni ÍTR, Evu Baldursdóttur varaformanni, Sverri Bollasyni og Páli Hjaltasyni, ásamt Sjöfn Ingólfsdóttur, Áslaugu Friðriksdóttur og Geir Sveinssyni. Þessi hópur vann að mínu mati mjög góða vinnu. Starfshópurinn vill að hugað verði að nýjungum í nýtingu á heita vatninu til baða til dæmis með náttúrulaugum af ýmsu tagi, hafnarlaug, uppsprettum, sjósundsaðstöðu og fleiru. Þá leggur hópurinn til að unnin verði ítarleg rannsókn á lýðheilsugildi lauganna. Fjárfest til framtíðar Borgarráð hefur nú staðfest stefnuna. Fjárfestingaráætlunin sem var hluti af framtíðarsýninni er á leið til framkvæmda. Auk viðhaldsverkefnanna sem borgarbúar hafa orðið áþreifanlega varir við verður á þessu ári efnt til hönnunarsamkeppni um nýja laug fyrir nýjustu hverfi borgarinnar í Úlfarsárdal og Grafarholti, annars vegar og fyrir útilaug við Sundhöllina hins vegar. Þarna er því verið að vinna af miklum metnaði í bæði elsta og yngsta hluta borgarinnar, segir Dagur. Jafnframt hefur verið fleytt hugmynd um hafnarbað í gömlu höfninni og unnið er að staðsetningu fyrir nýja laug í Fossvogi í samvinnu við Kópavogsbæ. Með Fossvogslaug verða öll hverfi borgarinnar komin í gott gönguog hjólafæri frá næstu laug. En það finnst mér vera gott markmið. Ný laug í Vatnsmýri myndi svo fylgja uppbyggingu þess nýja borgarhluta einhvern tímann á árunum 2020-2030. Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs. Framkvæmdir í einstökum laugum Árbæjarlaug -nýtt eimbað og nuddpottur Breiðholtslaug- nýtt eimbað og fyrirhuguð líkamsræktarstöð Grafarvogslaug -endurgerð eimbaðs Úlfarsárdalur og Grafarholt-ný útilaug og innilaug til kennslu ásamt heitum pottum og tilheyrandi hönnunarsamkeppni Laugardalslaug- endurgerð búningsklefa, nýr sjópottur, hreystibraut og leiktæki og allsherjar yfirhalning Sundhöllin ný útilaug hönnnunarsamkeppni Vesturbæjarlaug- nýr pottur og viðhald í búningsklefum Kjalarnes-ný aðstaða til sjósunds, undir merkjum Betri hverfa. Ylströndin í Nauthólsvík-nýtt eimbað Hverfisgata tekur miklum breytingum í sumar: Verkið áfangaskipt til minnka truflun á miðbæjarlífi Verktakafyrirtækið Ístak hóf í vikunni framkvæmdir við grundvallar breytingar og endurnýjun Hverfisgötu og mun gatan breyta talsvert um ásýnd. Byrjað var á kaflanum frá Frakkastíg að Vitastíg. Kaflinn er því lokaður umferð vélknúinna farartækja en gangandi og hjólandi munu eiga greiða leið um götuna á meðan framkvæmdum stendur. Hverfisgata á milli Klapparstígs og Vitastígs verður endurnýjuð og fegruð. Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað, ásamt þeim lögnum sem komnar eru á tíma. Malbikaðar hjólareinar verða beggja vegna götu. Gatnamót við þvergötur verða steinlögð og upphækkuð. Snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð gatnamót. Framkvæmdirnar eru á vegum Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu ehf. Verkið áfangaskipt Verkinu í sumar er áfangaskipt til að það valdi sem minnstum truflunum á miðborgarlífinu. Fyrsti áfangi verksins frá Vitastíg niður að Vatnsstíg verður unnin í júlí fram í nóvember. Frá Vatnsstíg að Klapparstíg verður unnið frá 26. ágúst fram í nóvemberlok. Umferð á greiða leið af Laugavegi niður Vatnsstíg á meðan framkvæmdir við fyrri áfanga standa yfir en um gatnamót Frakkastígs þegar honum lýkur og vinna við síðari áfanga hefst. Þetta verður gert: Nýtt yfirborð götu og gangstétta. Snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð gatnamót. Lagnir sem komnar eru á tíma verða endurnýjaðar í samstarfi við veitufyrirtæki. Gatnamót verða steinlögð og upphækkuð. Götutré verða gróðursett. Hjólareinar verða beggja vegna götu. Öryggi hjólandi, gangandi og akandi vegfarenda verður bætt. Strætisvagnar sem fara um Hverfisgötu munu stöðva í götunni og hjólandi vegfarendur fara aftur fyrir strætóskýli. Hámarkshraði umferðar verður áfram 30 km/klst. Á Hverfisgötu, á milli Lækjargötu og Snorrabrautar, verða umferðarljós fjarlægð og beygjuakreinar lagðar af. Á Hverfisgötu verða hjólastígar malbikaðir, einnig yfir gatnamót. Framkvæmdasvæðið. Verklok eru áætluð í nóvember. Hverfisgatan mun taka talsverðum útlistbreytingum eftir framkvæmdirnar. Þannig er gert ráð fyrir hjólreiðastígum beggja megin götunnar.
10 20. júlí 2013 YFIRHEYRSLA Jóhannes Kristjánsson eftirherma og skemmtikraftur: Þetta byrjaði allt með því að ég fór að herma eftir bílum, dráttarvélum og fuglum Fullt nafn? Jóhannes Kristjánsson. Fæðingardagur og ár? 18. júlí, rigningarsumarið 1955 (58 ára síðan í fyrradag). Starf? Skemmtikraftur og fleira. Skólar? Barnaskólinn á Ingjaldssandi, Héraðsskólinn að Núpi, Bændaskólinn á Hvanneyri, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Háskóli Íslands. Foreldrar? Árilía Jóhannesdóttir og Kristján Guðmundsson. Systkini? Við systkinin vorum 12, ég er í miðjunni. Hvert liggja ættir þínar? Móðurættin er aðallega úr Dýrafirði, þar með er ég skyldur Haraldi hárfagra og Jóhanni beinlausa. Svo er föðurættin úr Borgarfirði. Maki? Halldóra S. Sigurðardóttir. Starf maka? Íslenskukennari í MH. Börn? Ívar Húni 23 ára og Vaka 20 ára. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Fornleifafræðingur, bóndi og dýralæknir. Fyrir nokkrum árum fórstu í hjartaígræðslu eftir hjartaáfall. Hefur þessi lífsreynsla á einhvern hátt breytt hugarfari þínu til lífsins? Nei, tiltölulega lítið, mér hefur alltaf þótt lífið jafndýrmætt. Mér fannst það þörf lífsreynsla að kynnast sjúkrahúslífinu, veikindum og starfi þeirra sem þar vinna við krefjandi aðstæður. Í hvað hverfi býrðu í Reykjavík? Í Vesturbænum, 107. Gætir þú hugsað þér að vera bóndi? Já, sérstaklega sauðfjárbóndi. Áttu gæludýr? Nei en ég átti hrafn þegar ég var strákur og svartbak. Þeir voru ótrúlega skemmtilegir. Hvenær áttaðir þú þig á að þú gætir hermt eftir fólki? Nú er mér tregt tungu að hræra, hugsanlega kringum fjögurra ára aldurinn. Það er samt ekkert eitt atvik sem er minnisstætt í þessu sambandi, þetta gerðist einhvern veginn allt af sjálfu sér. Eftir hverjum hermdir þú fyrst? Bílum, dráttarvélum og fuglum. Ég sá Sumarfrí í Svartaskógi Góð tveggja herbergja íbúð til leigu í sumar í fallegum smábæ í Svartaskógi Nánari upplýsingar á http://ingvararnarson.net og í gsm 8983195 Jóhannes kátur og hress að lokinni velheppnaðri skemmtun. hlátur manna í litum og tók snemma eftir sérkennum í fari og rödd sveitunganna. Eitt leiddi af öðru og þetta varð eðlilegur hluti af tilverunni. Hvort skiptir meira máli, röddin eða taktar viðkomandi? Þetta verður að haldast í hendur, það er mjög nauðsynlegt. Hverjum hefur þér þótt skemmtilegast að herma eftir? Ég geri ekki upp á milli barnanna minna í þeim efnum, hver hefur til síns ágætis nokkuð. Eru þeir sem þú hermir eftir almennt sáttir við þig eftir meðferð þína á þeim? Já, eftir því sem ég best veit! Hvaða eiginleika þarf eftirherma að hafa til að ná árangri? Næmni í víðum skilningi, hún þarf að vera athugul og eftirtektarsöm. Eftirherman þarf að vinna eins og henni finnst best og réttast en ekki láta umhverfið segja sér fyrir verkum. Eru fleiri í þinni ætt sem hafa á góðum stundum stundað það að vera í hlutverki eftirhermu? Já, margir, t.d. móðuramma mín og fleiri í þeirri ætt, einnig bræður mínir og systur. Hefurðu búið erlendis? Nei, hef dvalið erlendis í rúman mánuð lengst, kalla það ekki búskap! Stærsti sigurinn? Að sigrast á veikindunum. Jóhannes er mikill göngugarpur og ættaður frá Dýrafirði. En afhverju Ísland er á hvolfi á bolnum hans skal ósagt látið. Kannski hefur hrunið eitthvað að segja? Neyðarlegasta atvikið? Held það þoli ekki dagsljósið! Mesta axarskaftið? Sleggjuskaftið. Helstu áhugamál? Fólk, náttúran og gönguferðir í henni. Stundarðu líkamrækt og þá hvers konar? Göngur og ýmsar æfingar og teygjur í líkamsræktarstöð. Kanntu að búa til pönnukökudeig og baka pönnukökur? Man ekki uppskriftina að pönnukökum en er hörkupönnukökubakari og hef verið það frá barnsaldri! Ertu tilfinninganæmur? Já, sennilega afar tilfinninganæmur. Á því byggist vinnan mín meðal annars. Hvað gerir konur aðlaðandi? Útgeislun þeirra og þankagangur. Hver er þinn helsti kostur? Stundvísi. En galli? Æ, æ, þeir eru svo margir. Ertu flughræddur? Ég var það í eitt og hálft ár eftir að eldra barnið fæddist, svo ekki meir. Ertu með bíladellu og hvernig bíl áttu? Ég var með bíladellu hér áður fyrr en ekki lengur að neinu ráði. Ég á Subaru Legacy árgerð 2001. Fallegasti staðurinn á Íslandi? Þeir eru margir, nefni að gamni Ingjaldssand í Önundarfirði. Fallegasti staðurinn í útlöndum? Erfitt að segja til um það! Hver eldar að jafnaði heima? Dóra en ég þekki engan sem grillar betur en ég! Besti eða eftirminnilegasti veitingastaðurinn? Tjöruhúsið á Ísafirði er besti veitingastaður í Evrópu, þaðan fer enginn svangur út að ekki sé talað um gæðin. Uppáhalds tónlistarmaður eða tónlist? Þar eru Ástúnsbræður mér ofarlega í huga. Uppáhalds leikari? Gunnar í Hlíð, Þingeyri. Hvernig líst þér á að herma eftir persónum í núverandi ríkisstjórn? Bara vel. Besta bókin? Ég held mikið upp á Sjálfstætt fólk, Halldór Laxness er einn mesti húmoristi sem ég hef kynnst. Svo eru að sjálfsögðu til margar aðrar góðar bækur. Hvað þykir þér með eindæmum leiðinlegt að gera? Að bíða eftir óstundvísu liði. Hvað er framundan? Brautin bein. N I L F I S K E X T R E M E FYRIR HEIMILIÐ N I L F I S K P O W E R FYRIR IÐNAÐINN HÁTÚNI 6A - 105 RVK - SÍMI 552 4420
Hafðu það gott í sumarfríinu! Við prentum fyrir þig á meðan Bækur l Tímarit l Fyrir skrifstofuna l Bæklinga Kynningarefni l Dagblöð l Fjölpóstur Stafræn prentun l Allskonar! UMHVERFISMERKI 141 825 Prentgripur Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 59 50 300 www.isafold.is
12 20. júlí 2013 Rabarbarakaramellur, tvær tegundir af núna í nýjum stærðum rabarbarasultu r, greni- og fiflasíróp. greni- og fíflasíróp Kjörinn í gjafakörfur sumarglaðningur og í jólapakka RABARBÍA Löngumýri, 801 Selfoss www.rabarbia.is rabarbia@rabarbia.is sími: 486 5581 / 893 5518 Sértilboð fyrir fyrirtæki. Matur og lífsstíll Þessi bragðgóða uppskrift er úr bókinni Partíréttir sem kom út hjá Bókafélaginu fyrir skömmu. Kanilkryddaðir kjúklingavængir, laukhringir og avókadósósa KJÚKLINGAVÆNGIR 10 kjúklingavængir 2 hvítlauksrif, marin 2 msk. engifer, rifið 4 msk. sojasósa 4 tsk. kanilduft 4 msk. hunang 1 tsk. salt. Blandið hvítlauk, engiferi, sojasósu, kanildufti, hunangi og salti vel saman og veltið kjúklingavængjunum upp úr leginum. Látið vængina liggja í leginum í kæli í að minnsta kosti 1. klst. og hrærið í blöndunni annað slagið. Grillið við háan hita í 15-20 mínútur og snúið vængjunum nokkrum sinnum á meðan á eldun stendur. Einnig er gott að baka vængina í eldföstu móti í ofni í um 20 mínútur við 220 gráður. LAUKHRINGIR 1 laukur, stór 1 dl hveiti salt og pipar hvítlauksduft 3 dl súrmjólk 1 eggjahvíta 2 dl brauðmylsna ólífuolía, til að pensla með. bækur 2013 Hitið ofninn í 210 gráður. Skerið laukinn í um ½ sm þykkar sneiðar. Kryddið hveitið með salti, pipar og hvítlauksdufti, eða öðru því kryddi sem ykkur hentar. Hrærið súrmjólk og eggjahvítu vel saman. Veltið laukhringjum fyrst upp úr hveitiblöndunni og dýfið síðan í súrmjólkurhræruna. Látið leka vel af og veltið þeim síðan upp úr brauðmylsnunni. Raðið á bökunarplötu sem þakin hefur verið bökunarpappír og bakið í 25 mínútur. AVÓKADÓSÓSA 1 avókadó, vel þroskað 2-3 msk. grísk jógúrt 2 hvítlauksrif, marin 1 msk. sítrónu- eða límónusafi grófmalaður pipar. Maukið avókadó, gjarnan með töfrasprota, en það er smekksatriði hve mikið það er maukað. Hrærið gríska jógúrt, hvítlauk, sítrónusafa og pipar saman við. Tinni í nýju og handhægu broti Vindlar Farós Hergé Þýðing: Loftur Guðmundsson Iðunn 2013 Á dögunum komu út níunda og tíunda Tinnabókin í endurútgáfu hjá bókaforlaginu Iðunni. Athygli vekur að brotið á nýju bókunum er mun smærra en það sem notað var við fyrri útgáfur bókarinnar, sem hörðustu Tinnaaðdáendur telja hið eina rétta brot. Með minna broti fer að vísu minna fyrir bókunum en það sem undirrituð óttaðist mest var að myndasafnið í upphafi og lok bókanna væri horfið. Svo er ekki enda eitt af því sem gaman er að spá í og spekúlera. Kristrún Heiða Hauksdóttir, kynningarstýra Forlagsins segir að minna brotið sé afar vinsælt í Evrópu þar sem Bragðsterkir kjúklingavængir og laukhringir með góðri sósu er allt sem þarf í gott partí. Kanilduft er kannski ekki algengt þegar kjöt er kryddað en það gefur mjög sérstakt og gott bragð. Kanilkryddlögurinn sem hér er gefin uppskrift að er vel þess virði að prófa. Vængirnir verða sérlega meyrir og ljúffengir. bækurnar séu fáanlegar í ýmiskonar útfærslum. Vindlar Farós kom út fyrst árið 1955 í Belgíu. Í Vindlum Faraós hittir Tinni Fílómon Flanósa sem er heimsfrægur fornleifafræðingur í leit að fjársjóði farósins Kih-Oskh í Kaíró og slæst Tinni í för með honum. Einnig verður á vegi hans Rassópúlos, grískur milljarðamæringur sem svífst einskis. Skapti og Skafti eiga sína spretti í bókunum sem og hundurinn Tobbi. Tinni lendir í æsilegum ævintýrum og hittir margar áhugaverðar persónur. Eins og lesendur Tinnabókanna þekkja þá eiga þýðingar Lofts Guðmundssonar á bókunum stóran hlut í vinsældum bókanna hérlendis. Nafngiftir persóna svo sem rithöfundurinn Kúlupennó og herra og frú Klakakló eru dæmi um það. Að ógleymdum samantvinnuðum blótsyrðum Kolbeins kafteins. Billjón brasaðir og viðbrenndir beinhákarlar úr Bolungarvík hvað þetta er skemmtileg bók! Hólmfríður Þórisdóttir
14 20. júlí 2013 Við mælum með þessum í fríið Þessa dagana streyma nýjar bækur í verslanir og þá fyllast margir valkvíða miklum. Það þykir tilheyra að kippa með sér bók í fríið, að ekki sé talað um til að stytta sér stundir í flugferðum og lengri bílferðum. Við tókum saman lista yfir nokkrar bækur sem henta vel í sumarleyfið og eru þær allar í kiljuformi. Bókin fjallar um Christine sem vaknar hvern morgun og man ekki neitt. Hún veit ekki hver hún er og á engar minningar. Sagan er sögð frá sjónarhorni Christine og því veit lesandinn ekkert meira en persónan um ástæður og aðdraganda minnistapsins. Mjög vel skrifuð og spennandi. Bókin skiptist uppí kafla þar sem aðalpersónurnar skiptast á að segja frá neyðarlegum atvikum úr hversdagslífinu og atburðum og aðstæðum sem flestir þekkja eða hafa heyrt um. Hressileg saga sem á líka erindi við karlpeninginn. KÍTÓN með tónleika í Viðey KÍTÓN konurnar Adda Ingólfsdóttir og Margrét Rúnarsdóttir munu töfra fram seiðandi söngva í Viðeyjarstofu sunnudaginn 21. júlí. Adda Ingólfs kemur fram ásamt hljómsveitinni Evu skipaðri Völu Höskuldsdóttir og Sigríði Eir Zophaníasdóttur. Margrét Rúnarsdóttir frumflytur efni dúettsins Foreign Mona ásamt Birki Rafni Gíslasyni. Tónleikar hefjast kl. 16 og ferjan fer frá Skarfabakka 15.15. Miðaverð 2.700 krónur á tónleikana og sigling með ferjunni er innifalin. Miðasala fer fram á midi. is. Ferjan siglir frá Skarfabakka við Sundhöfn Áður en ég sofna eftir S. J. Watson er fyrsta bók höfundarins og hefur setið á metsölulistum um allan heim. Einnig hefur leikstjórinn Ridley Scott tryggt sér kvikmyndaréttinn að sögunni. Ekki þessi týpa er eftir hina ungu Björgu Magnúsdóttur og er þetta frumraun hennar á skáldsagnasviðinu. Bókin er skvísubók (chick lit) sem gerist í Reykjavík og segir frá fjórum vinkonum sem eru ólíkar og lenda í ýmsum ævintýrum. Grilluð Lúðuflök með soya smjörsósu og wasabi kartöflumús mmmm Til hamingju með daginn www.3frakkar.com - Sími: 552-3939 Ærlegi lærlingurinn eftir Vikas Swarup er af allt öðrum toga en bækurnar hér að ofan. Í henni segir frá ungu indversku stúlkunni Sapna Sinha sem fær tilboð sem hún getur ekki hafnað. Í því felst að leysa þrautir og ef henni tekst það verður hún stjórnarformaður fyrirtækjasamsteypu. Þeir sem þekkja fyrri verk Swarups, svo sem bókina Viltu vinna milljarð? taka þessari bók sjálfsagt fagnandi. Sagan lýsir indversku samfélagi sem á sínar fögru og ljótu hliðar. Textinn er grípandi og óhætt að mæla með þessari við alla bókaunnendur. Hvað veistu um borgina þína? Svar: Við förum í fríið Ristjórn blaðisins og starfsfólk Fótspors tekur sér nú tveggja vikna sumarfrí. Næsta tölublað Reykjavíkur-vikublaðs kemur út laugardaginn 10. ágúst Tónleikamaraþon á KEX Hostel KEX Hostel, KEXLand og bandaríska útvarpsstöðin KEXP ætla að bjóða öllum á útitónleikana KEXPORT við Kex Hostel á morgun, laugardaginn 20. júlí Tónleikarnir fara fram í portinu við Kex Hostel og hefjast kl. 12 á hádegi og lýkur um miðnætti. Alls munu 12 hljómsveitir koma fram á klukkutímafresti á þessum maraþon tónleikum. Tónleikarnir eru haldnir til stuðnings KEXP útvarpsstöðinni. Fram koma: Babies, Boogie Trouble, Hjaltalín, Kippi Kaninus. Loji, Moses Moses Hightower er ein þeirra hljómsveita sem fram koma á KEX á morgun. Hightower, Muck, Nolo, Samúel J Samúelsson big band, Sísí Ey, Sykur og TBA. Fyrsti útvarpsstjórinn var Jónas Þorbergsson, sem gegndi því embætti frá upphafi stofnunnarinnar, 1930, til ársins 1953. Ábendingar um efni í blaðið berist á netfangið baejarblod@gmail.com. Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is SumarSkoðun Barðans aðeins kr. 1.990 * *InnIFaLIn áfylling á rúðuvökva og víxlun á dekkjum SumarSkoðun! Komdu við hjá Barðanum og láttu okkur kanna hvort bílinn sé tilbúinn í sumarfríið. Í sumarskoðun Barðans þá skoðum við: n Bremsuklossa og bremsudiska n Ljósabúnað n Fjöðrunarbúnað Dekkjaverkstæði Smurþjónusta n Mælum loftþrýsting og könnum ástand hjólbarða n Könnum olíu Hjólastillingar Bremsuklossar n Skoðum rúðuþurrkur n Athugum kerrutengi rúðuvökvi Rafgeymar n Mælum rafgeyma Smáviðgerðir Rúðuþurrkur Peruskipti Síðan 1941 Skútuvogi 2 104 Reykjavík Sími 568 3080 www.bardinn.is
NÝTT LINDU SMÁBUFF Þú verður að prófa! Kíktu í kassann sláðu inn kóðann á Facebook-síðu Góu og athugaðu hvort þú hafir unnið einn af fjölmörgum glæsilegum vinningum.