Aldamótahátíð. Delludagur. á Eyrarbakka. á Selfossi ágúst 2012

Σχετικά έγγραφα
Meðalmánaðardagsumferð 2009

Þriggja fasa útreikningar.

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ

C Q T. þessu blaði. 5. tbl. 23. árg. des. 2005

Lauf_P :26 Page 1 Laufblaðið Gefið út af Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki 2. tölublað 9. árg. 2001

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.

barnatennurnar BÓKIN UM Bókin um barnatennurnar

Greinargerð Trausti Jónsson. Sveiflur IV. Árstíðasveiflur í háloftunum yfir Keflavík

Hæðarkerfi og hæðir Þórarinn Sigurðsson Landmælingar Íslands

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T

RAF301G Merki og kerfi Miðmisserispróf, lausn

FRÉTTABRÉF LANDMÆLINGA ÍSLANDS. Nr tbl., 18. árg., maí 2016

Menntaskólinn í Reykjavík

Ráðstefnur og veisluþjónusta

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS

Langan tíma tekur að rækta skóg og krefst mikillar þolinmæði

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

FOUCAULT þrír textar 2014

Það vantaði ævisögu Snorra. 20. tölublað 2009 Fimmtudagur 19. nóvember Blað nr. 315 Upplag

4.01 Maður ekur 700 km. Meðalhraðinn er 60 km/klst fyrstu 250 km og 75 km/klst síðustu 450 km. Hver er meðalhraðinn?

11. tölublað 2017 Fimmtudagur 8. júní Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

Skýrsla LV nr: LV Dags: desember Titill: Landbrot á bökkum Hálslóns í Kringilsárrana úttekt 2017

56 milljónir gróðursettra trjáa á Íslandi síðastliðin 114 ár

Næring, heilsa og lífsstíll

Allt fyrir hótel og veitingahús

11. tölublað 2012 Fimmtudagur 14. júní Blað nr árg. Upplag

Heildarfjöldi búfjár í fyrra var nærri ein milljón

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

Skilaverkefni 1. Skil á þriðjudaginn

honum flóamarkaðsgeðsýki á háu stigi

1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út:

Lífið ÉG VEIT AÐ ÉG ER LEIÐTOGI. Heiða Kristín Helgadóttir STOLT AF ÚT- SKRIFTARNEM- ENDUM SÍNUM 8. Andrea Fanney Jónsdóttir

Efnisyfirlit INNGANGUR MARKAÐSSETNING / MARKAÐSFÆRSLA, STUTT YFIRLIT Markaðsáherslan... 8

Spennandi verkefni til að byggja upp nýtt hótel. 17. tölublað 2015 Fimmtudagur 10. september Blað nr árg. Upplag

14, Íslenskir bændur: Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári

Aðskilnaður breytistærða í rúmi

FRÍMÚRARINN. Ráðgáta: Glataði Reglubróðir gullhring á Þingvöllum á 18. öld? 14

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2014

Meðalvigt dilka talsvert hærri en í fyrra

Þjófavarnarkerfi fyrir bílstöðvar

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

Það tekur enginn fiskur fluguna í boxinu. 8. tölublað 2017 Fimmtudagur 27. apríl Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

FRAMHALDSSKÓLI MOSFELLSBÆJAR SETTUR Í FYRSTA SINN

11979 H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum aðild Lýðveldisins Grikklands (Stjtíð. EB L 291, , bls. 17),

Lífið ÉG ER SKIPSTJÓRINN Á BAST MAGAZINE. Hafrún Alda Karlsdóttir HALDA JÓLA- MARKAÐ Á KEX HOSTEL 2

Hættir eftir 47 ára starf fyrir íslenska bændur. 13. tölublað 2015 Fimmtudagur 9. júlí Blað nr árg. Upplag

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun

Nemendakönnun: Skýrsla um niðurstöður

VAÐLAHEIÐARGÖNG SAMFÉLAGSÁHRIF

Eitt besta kornsumar sögunnar. Matur úr villtri náttúru Íslands

t 2 c2 2 Φ = 0. (2.1)

Þúsundþjalasmiður í háloftunum. Truflanir á raforkuflutningum á landsbyggðinni ýta undir kröfur um lagningu rafstrengja í jörð:

Steig út fyrir þægindarammann VERTU TILBÚIN FYRIR VETURINN. Tíska

Niðurstöður aurburðarmælinga í Jökulsá í Fljótsdal árið 2003

Ákveðið að auka greiðslumark um 8 milljónir lítra samkvæmt tillögu SAM

Stanslaust að prófa og uppgötva nýja hluti S V E F N S Ó F A R. Lífsstíll

Árbók kirkjunnar

Hlýir sokkar og vettlingar góðar gjafir

H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

HEILSA MIÐVIKUDAGUR 13. MARS eldunarleiðbeiningar auk þess sem hægt er að skoða myndir af öllum réttunum.

Formaður Bændasamtaka Íslands afar ósáttur við blekkingarleik við sölu búvara:

20. tölublað 2017 Fimmtudagur 19. október Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

HEILSUSTEFNA HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK. - greinargerð vinnuhóps

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur

Kafli 1: Tímastuðull RC liður. Dæmi 1.1 A: 3,3ms B: 7,56V Dæmi 1.2 A: 425µF B: 1s Dæmi 1.3 A: 34,38V B: 48,1V Dæmi 1.4 A: 59,38s

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3)

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda

Indriði Pálsson, fv. Stórmeistari Frímúrarareglunnar á Íslandi

Grunnvatnsrannsóknir í Norðurþingi

Líkindi Skilgreining

Aðventufagnaður Grunnvíkingafélagsins

SKÁTABLAÐIÐ SKÁTASTARF Á AKUREYRI AUÐUR DJÚPÚÐGA Á ÍRLANDI WORLD SCOUT MOOT Í SUMAR. Marta Magnúsdóttir nýr skátahöfðingi

Konur í meirihluta stjórnar í fyrsta sinn. Búnaðarþing 2013 karlaveldið gefur eftir í stjórn Bændasamtaka Íslands: Úr bílasölu

17. tölublað 2016 Fimmtudagur 8. september Blað nr árg. Upplag

Tíska LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS KYNNINGARBLAÐ. Ýr Jóhannsdóttir textílhönnuður

Blephadex gegn. augnháramítlum

Fagið 02/08 SÝKINGAR TENGDAR HEILBRIGÐIS ÞJÓNUSTU OG SMITLEIÐIR. Ásdís Elfarsdóttir Jelle, MPH, deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala

Samstaða um ráðningu sviðsstjóra en Sjálfstæðismenn vilja endurskoða skerðingu á yfirvinnu og bifreiðastyrkjum

Kennsluleiðbeiningar Tungutak - Málsaga handa framhaldsskólum

Brúðkaup. Tilvonandi brúðhjón verið velkomin að skrá óskalistann hjá okkur. Öll brúðhjón fá gjöf og lenda í brúðhjónapotti. Persónuleg og góð þjónusta

PRÓFBÚÐIR Í LÍNULEGRI ALGEBRU VIÐ HR VOR 2014 HERKÚLES

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Blendnar tilfinningar kornbænda eftir erfitt tíðarfar. 2. tölublað 2016 Fimmtudagur 28. janúar Blað nr árg. Upplag

Vantar veturgamla fola til geldingar í sumar. 8. tölublað 2016 Fimmtudagur 28. apríl Blað nr árg. Upplag

16 kafli stjórn efnaskipta

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti.

HAUST 2014 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS

Meistararitgerð. Verðlagning langlífisáhættu

Transcript:

Aldamótahátíð á Eyrarbakka 10.-12. ágúst 2012 Delludagur á Selfossi Sunnudaginn 12. ágúst 2012

Gleðilega hátíð, elsku krúttin mín Átjánda Sumar á Selfossi hátíðin er handan við hornið og hefur dagskráin aldrei verið eins vegleg og í ár. Undirbúningsnefndin hefur farið hamförum við að gera helgina sem allra skemmtilegasta og fjölbreytta. Gríðarlega mikill metnaður hefur verið lagður í að bóka öflugustu tónlistar - menn landsins og mun einvala lið koma fram alla helgina. Staðsetning hátíðarinnar í bæjar - garðinum við Sigtún hefur unnið hug og hjörtu íbúa sveitarfélagsins og er orðin sá staður sem vinir koma saman og gleðjast. Hverfin hafa undanfarin ár tekið virkan þátt í hátíðinni og hafa litir og skreytingar sett skemmtilegan blæ á bæinn okkar. Myndast hefur einstaklega skemmtileg stemmning í hverfunum þar sem nágrannar nota tækifærið til að hittast, grilla og eiga góða stund saman. Undirbúningsnefndin vill þakka öllum þeim fyrirtækjum sem taka þátt í að kosta hátíðina fyrir stuðninginn. Án þeirra væri ekki hægt að bjóða upp aðstöðuna í bæjargarðinum né þessa metnaðarfullu dagskrá. Takk fyrir góðar viðtökur og hjálpina við að byggja upp skemmtilega hátíð í okkar ástkæra bæ. Sumar á Selfossi hátíðin í ár hefst á fimmtudagskvöldinu þar sem Suður - landsskjálftinn 2012 mun fara fram. Mikil gróska hefur verið í tónlistinni hér á Suðurlandi undanfarin ár og hafa margar góðar hljómsveitir stigið fram í sviðsljósið. Fimmtudagskvöldið er haldið til heiðurs þessu hæfileikaríka, unga tónlistarfólki sem er að gera frábæra hluti og er samfélaginu okkar til sóma. Við vonum að bæjarbúar taki fimmtudagskvöldið frá og fjölmenni á þessa spennandi tónleika. Föstudagskvöldið ætti enginn Íslendingur að láta fram hjá sér fara því þá stígur á stokk hljómsveitin Mannkorn með Magnús Eiríksson, Pálma Gunnarsson og Ellen Kristjáns - dóttur í broddi fylkingar. Strax á eftir tónleikana mun Stuðlabandið halda uppi fjörinu fram eftir nóttu. Selfyssingum og gestum þeirra er síðan boðið í morgunmat í hátíðar - tjaldinu við Sigtún frá kl. 9-11, laugar - dagsmorguninn 11. ágúst. Fyrirtæki í bænum leggja til veitingar í þetta stærsta morgunverðarhlaðborð lands - ins og eiga þau bestu þakkir skilið fyrir vikið. Seinna um daginn verður mikið líf og fjör út um allt og sem dæmi má nefna; handverksmarkað, leiktæki, skemmtiatriði og ýmsar uppákomur út um allan bæ. Hlé verður síðan gert á dagskrá frá kl. 17-21 en þá má gera ráð fyrir að finna grilllykt í loftinu þar sem bæjarbúar munu kynda kolin, dást að litaskreytingum bæjarins og hita sig upp fyrir Sléttusönginn. Kveikt verður í brennunni um kl. 21:30 þar sem Ingó veðurguð mun stjórna fjöldasöng eins og honum einum er lagið. Flugeldasýning mun slá botninn í Sléttusönginn og gefa tóninn fyrir í nóttina. Stórmeistararnir Þorgeir Ástvaldsson, Raggi Bjarna og Þorvaldur Halldórsson munu síðan stýra söngskemmtun í hátíðartjaldinu eins og þeim er einum lagið. Olís fótboltamótið verður einnig í gangi alla helgina og á sunnudeginum verður hinn árlegi Delludagur bílaáhugamanna á Suðurlandi og er hann nú haldinn í samvinnu við Sumar á Selfossi í fyrsta sinn. Þar verður spólað og spænt og ætti enginn að vera svikinn af þeirri dagskrá. Góða skemmtun! Undirbúningsnefnd Sumar á Selfossi. Góða skemmtun! S: 660 1840 482 3137 / 864 3237

Ég þarf að ferðast víða vegna vinnunnar og þá kemur sér vel að hafa öflugt leiðakerfi Icelandair til Evrópu og Bandaríkjanna. Á hverju ári flýg ég síðan til New York til að hitta vinkonur mínar frá módelárunum í Bandaríkjunum. Það er ómissandi hluti af lífinu að rækta vináttuna við fólkið sem maður kynnist og þykir vænt um. Og það er ekki nóg fyrir okkur að senda tölvupóst. Við verðum að hittast. Andrea Brabin framkvæmdastjóri GÓÐIR FARÞEGAR Í 75 ÁR

Baráttan í bleika hverfinu Í fyrra tóku Selfyssingar vel við sér í hverfaskreytingunum og mátti víða sjá skemmtilegar skreytingar. Sumir voru samstilltari en aðrir og heilu göturnar tóku sig saman í skreytingum. Þannig slógu íbúar Dranghóla í gegn og kórónuðu góðan dag með því að mæta í fylktu liði í sléttusönginn. Heyrst hefur að í ár ætli nágrannar þeirra í ónefndri götu í bleika hverfinu að slá þeim við en íbúar Dranghóla ætla eflaust ekki að missa titilinn og eru með laust pláss á ljósastaurnum sínum fyrir nokkur skilti til viðbótar. En bleikir eiga ekki sigurinn vísan. Húsmæður og - feður í græna hverfinu hafa verið að sanka að sér munum til skreytinga í laum og ætla að slá öllum við og sömuleiðis er hugur í appelsínugulum. Lyngheiðin hefur verið áberandi með samstilltum skreyt - ingum og góðri stemmningu í blá hverfinu og þar eru líka gamlir verðlaunahafar á Mánaveginum og Sunnuveginum. Gulir og appelsínugulir munu há harða baráttu sitt hvoru megin við Tryggvagötuna og í rauða hverfinu hafa nokkrir íbúar lýst því opinberlega yfir að verðlaunin munu verða þeirra. Þetta verður skemmtileg barátta en íbúar eru hvattir til að byrja að skreyta á fimmtudags - kvöld en dómnefnd verður á ferðinni á laugardag og má koma með ábendingar á Facebook. Litaskipting á hverfum byrjum að skreyta á fimmtudagskvöld! Dómnefnd á ferðinni á laugardag. Götur í Helluhverfinu, austan Tjaldhóla eru einnig í bleika hverfinu.

Morgunverður í miðbænum Á laugardagsmorgun kl. 9 til 11 er bæjarbúum og gestum þeirra boðið til morgunverðar í hátíðartjaldi í bæjargarðinum í Sigtúni. Eftirtalin fyrirtæki bjóða til morgunverðarins ásamt Sveitarfélaginu Árborg og Knattspyrnufélagi Árborgar. Verslanir og þjónustuaðilar á Selfossi STYRKTARAÐILAR Ökuskóli Suðurlands Hársnyrtistofan Veróna Endor vefþjónusta sf. Þorsteinn Pálsson, tannlæknir

Vertu í sambandi Eyravegi 41 800 Selfoss Sími: 480 2700 Fax: 482 2099 set@set.is Set ehf Röraverksmiðja Sérstaða í íslensku samfélagi Forn menningarríki hófu gerð vatnsrenna og lagnastokka a fyrir mörgum árþús undum. Síðar voru þróaðar vatnsbrýr og málmpípur til að veita vatni til ræktunar, þvotta og drykkjar. Egyptar, Grikkir og Rómverjar áttu mikla verkmenningu á þessu sviði, en vatnsbrýr Rómverja eru enn í dag taldar meðal helstu verkfræðiafreka mannkyns. Lagnagerð er því með elstu iðngreinum sögunnar og hefur þróast með tímanum. Með nýjustu tækni og aðferðum hefur röraverksmiðjan Set skapað sér sérstöðu á heimsvísu með fjölbreytileika í framleiðslu, ásamt því að vera mikilvægur þátttakandi í uppbyggingu og nýsköpun í íslensku samfélagi. Veljum íslenskt, sköpum verðmæti og störf. www.set.is Gæði til framtíðar

Gefum þessu þrjú ár Árið 1994 varð Hlynur Geir Hjartarson, kylfingur og fram - kvæmda stjóri Golfklúbbs Sel - foss, Íslandsmeistari. En það var ekki í golfi heldur knattspyrnu með 2. flokki KR. Það var virkilega gaman. Við vorum í efsta sæti fyrir síðustu umferðina. Okkur dugði jafntefli gegn ÍA. Stefán Þórðarson skoraði fyrsta markið fyrir ÍA, segir Hlynur Geir. Ég var að spila frammi ásamt Ásmundi Haraldssyni. Á 63. mínútu sólaði ég þrjá Skaga - menn upp hægri kantinn og skora með vinstri framhjá Árna Gauti Arasyni setti hann í hliðarnetið. Ég jafna þar með leikinn 1-1, segir Hlynur sem man þetta vel þrátt fyrir að tæp 20 ár séu liðin. Tíu mínútum eftir að Hlynur skoraði markið var hann tæklaður af Frey Bjarnasyni, leikmanni FH í dag. Og sú tækling endaði nánast knattspyrnuferilinn minn. Ég er svo tekinn út af, ætlaði að harka þetta af mér en gat það ekki, segir Hlynur. Það var svo Ásmundur Haraldsson sem skoraði sigurmarkið undir lok leiksins og KR vann 2-1. Við urðum því bæði Íslands- og bikarmeistarar þetta ár og urðum í 2. sæti á Norðurlandamóti þar sem við töpuðum á móti Bröndby. Þarna voru með mér Brynjar Björn Gunnarsson, Atli Knúts í markinu, Bjarni Þorsteins og fullt af öðru alvöru leikmönnum, rifjar Hlynur upp. Því miður fyrir Hlyn urðu afrek hans á knattspyrnuvelli fyrir KR ekki fleiri. Svo tók Gaui Þórðar við KR og ég var aldrei inn í myndinni þar, segir Hlynur sem gekk til liðs við Selfyssinga. Ég spila þar hálf ónýtur í löppunum í einhver þrjú ár eftir það áður en ég hætti. Ég hætti í boltanum 1998 og byrjaði í golfinu árið 1997, segir Hlynur og voru meiðslin sem hann hlaut í áðurnefndum leik ástæðan þess að hann lét skóna á hilluna. Ég hef ekki sparkað bolta í einhver tíu ár. Auðvitað langar mig rosalega að fara í fótbolta en ég tók bara ákvörðun um að sleppa þessu, segir Hlynur sem gerði tilraun til að spila fótbolta eftir að hann hætti. Ég fór á eina old-boys-æfingu og var tæklaður niður, sleit þá liðbönd í ökkla og lenti illa á hendinni og braut úlnliðinn. Þá sagði golfþjálfarinn minn við mig að ég mætti ráða hvort hann myndi þjálfa mig eða ég myndi halda áfram í fótbolta. Ég hef ekki snert fótbolta síðan, segir Hlynur og viðurkennir að það sé miklu skemmtilegra að slá í þá. Sem fyrr segir starfar Hlynur Geir sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss í dag auk þess sem hann hefur verið einn besti kylfingur landsins um árabil. Golfklúbburinn hefur blómstrað eftir að Hlynur tók til starfa. Metfjöldi meðlima er í klúbbnum í ár, aðgöngumet hefur verið slegið í sumar, nýliðastarfið aldrei verið virkara og hefur völlurinn sjaldan verið í betra standi. Þrátt fyrir óvissu um framtíðar staðsetningu vallarins er klúbburinn í stöðugri sókn undir forystu Hlyns. Hlynur Geir hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í höggleik, en það mót var haldið á Hellu fyrir stuttu. Hann hefur hins vegar orðið Íslandsmeistari í holu - keppni. Hann svarar mjög ákveðið þegar hann er spurður hvenær hann ætlar sér að verða Íslandsmeistari í golfi, eins og hann varð Íslandsmeistari í fótbolta. Mjög fljótlega. Við gefum þessu næstu þrjú árin, segir Hlynur Geir að lokum.

Aldamótahátíð á Eyrarbakka 10. - 12. ágúst 2012 Opið frá 11:30-22:00 Gallerí Götuhúsum Opið frá kl. 11:00 Opið frá 11:00-18:00 Gallerí Regína Opið frá 11:00-18:00 Opið frá 10:00-21:00 Opið frá 11:00-17:00 Opið frá 11:00-18:00 Dagskrá hátíðarinnar Föstudagur 10. ágúst Kl. 18.00 Frá Vesturbúð að Vesturbúð. Sagnamaðurinn Siggeir Ingólfsson leiðir skemmtigöngu um plássið og rifjar upp gamla tíma. Lagt af stað frá STAÐ. Kl. 20.00 Tónleikar í Merkigili - Sumarkvöldsins Lag! Uni og Jón Tryggvi í Merkigili bjóða til tónleika - Fram koma Myrra Rós, Danimal, Magnús Leifur, Owls of the Swamp og II (Uni og Jón Tryggvi). Frítt inn en frjáls framlög vel þegin! Kl. 21.30-00.30 Gömludansaball í Gónhól. Skotheld gömlu og nýju dansa músik...helgi Kristjáns, s, gítar, Grétar Geirsson, harmonikka, Óðinn Helgason, bassi, Guðmundur Steingrímsson, trommur (papa jass) og okkar ástkæra Hjördís Geirs sjá um fjörið. Frítt inn en frjáls framlög vel þegin! þg Snyrtilegur klæðnaður, dömufrí, hringdans og Óli Skans. Rauða húsið: Aldamótatilboð á mat og bakkelsi. Rauði barinn opinn til 03:00. Laugardagur 11. ágúst. 08.30 Flöggun. 13.00 Skrúðganga fyrir r menn, dýr, fornbíla og tæki. Lagt af stað frá Barnaskóla Eyrarbakka. Lúðrasveit Selfoss og Siggeir Ingólfsson skrúðgöngustjóri leiða hópinn að kjötkötlunum þar sem íbúar og fyrirtæki á Eyrarbakka bjóða uppá ekta íslenska kjötsúpu fyrir alla þá sem mæta með bollann sinn eða skálina. 12.00 Pútnahúsið opnar í Gónhól. Félag áhugamannafólks um haug- hænur býður ykkur velkomin að sjá allt það fegursta í hænsfugla- heiminum. Afhentir verða kjörseðlar fyrir fegurðarsamkeppni hænsnfugla sem fram fer síðdegis. 13.30 Setning Sr. Sveinn Valgeirsson sóknarprestur blessar lýðinn, Anna í Gónhól kynnir dagskrána og býður fólki að gjöra svo vel. Bændur af Bakkanum koma dýrunum fyrir á Garðhúsatúninu. Söluborð, skottmarkaðir og markaðstorg um allt þorp. Thomsensbíllinn var fyrsti bíllinn sem kom á Eyrarbakka 1904. Sverrir Andrésson hefur smíðað eftirgerð af honum og býður fólki í smáswing um þor pið. Fornbílaklúbbur Íslands býður einnig lekkerum dömum og hattklæddum herrum á rúntinn. Heyvagninn verður á ferðinni og býður rúnt í mjúkri töðunni. Bakkablesa brokkar um falleg og fríð með vagninn sinn. 16.00 Kappsláttur á Miðmundakots- túninu. Keppendur skrái sig í síma 898 4240 og mæti minnst 30 mínútum fyrr með amboð. Brýni er á staðnum og kaupakonur raka ljá. Fimasti sláttumaðurinn og knáasta kaupakonan valin. Bundnar verða sátur. Getraun í gangi: Hvað er hægt að kyssa kaupakonuna oft á meðan bundin er sátan? og Kvenfélags Eyrarbakka. 17.00-18.00 Bakkaspjall á palli.. Gestrisnir Eyrbekkingar bjóða í pallaspjall. Listakonan Elka býður í brauðsúpu og húslestur. Sviðaveisla hjá Helgu og Arnari á Nesbrú 4. Regína með pönnukökur á pallinum í Ásheimum. ( Gallerí Regína). Vilbergur og Margrét á Túngötu 24 bjóða uppá tónleika með hljómsveitinni Boogie. 18.00 Pútnahúsið blæs til brúðkaups á Gónhól. fegurðarsamkeppni hænsfugla sem fram fer á sama stað. Hreppstjórinn á Eyrarbakka gefur þau saman í borgaralegt Brúðkaupsveislan herleg hefst.. Opið grill fyrir alla og fjöldasöngur ö undir styrkri stjórn Árna Johnsen. Grétar á Sólvangi og hljómsveit taka svo við og allir dansa hænsnavalsinn fram eftir nóttu. Rauða húsið: Aldamótatilboð á mat og bakkelsi. Rauði barinn opinn til 03:00. 21.00-02.00 Hlöðuball á Gónhól, inni og útiball á gúmmískónum og lopapeysunni. Sunnudagur 12. ágúst 08.30 Flöggun 14.00 Söguganga um þorpið. Lagt af stað frá Gallerí Regínu og gengið eftir veðri og vindum. Sjá nánari dagskrá og viðburðatilkynningar á www.gonholl.is, www. husid.com, www.raudahusid.is sid.is, www.eyrarbakki.is og á www.arborg.is

Töfrabragðanámskeið Einars Mikaels: Viltu læra að galdra eins og Harry Potter? Töfrabragðanámskeið Einars Mikael er eitt vinsælasta námskeið fyrir krakka á Íslandi í dag. Námskeiðið sló í gegn á Vor í Árborg fyrr í sumar þá var met þátttaka Nú fá krakkarnir að læra alveg glæný skemmtileg og spennandi brögð með spilum, teygjum ofl. Krakkarnir fá að sjá myndbönd með bestu töframönnum heims og síðan er sýning í lokinn. Aldur: 8-15 ára Hámarks fjöldi er 130 krakkar Lengd: 90 mín. Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins.

DELLUDAGUR Hinn árlegi Delludagur verður haldinn í Hrísmýri á Selfossi, sunnudaginn 12. ágúst og hefst kl. 13. Ekki láta þig vanta á þessa frábæru skemmtun! Kassabílarallý, drift, drulluspyrna og fleira sem freistar bílaáhugamanna!

Fyrsti markaskorari Árborgar 25. maí 2001 Bjarni Sigurðsson kaupmaður á Egilsstöðum Já, ég man gríðarleg vel eftir þessum tíma, við höfðum klárað 2. flokkinn sumarið áður og vorum með hörkulið. Við vorum með eitt besta ungmennalið landsins og marga góða leikmenn. Njörður og Siggi Tobba spiluðu nánast ekkert með 2. flokki enda voru þeir á þeim tíma burðarásir í Selfossliðinu þrátt fyrir að vera einungis 17 ára. Þó svo við söknuðum þessara góðu leikmanna þá hafði það samt engin áhrif, við vorum með svo marga góða leikmenn að við sigruðum flesta okkar leiki sannfærandi. Einn eftirminnilegasti leikurinn var í undanúrslitum bikarsins síðasta árið okkar í 2. flokki. Við spiluðum á móti KR í Frostaskjólinu og töpuðum óverðskuldað 5-4. KR var með besta lið landsins og urðu bæði Íslands- og bikarmeistarar þetta ár. Það var því mjög sorglegt þegar stór hluti af okkar árgangi fékk ekki tækifæri til þess að spila með Selfossi í framhaldinu. Við létum ekki deigan síga og ákváðum að stofna okkar eigið lið enda vorum við með mjög marga frambærilega knattspyrnumenn innan okkar raða. Sigurður B. Jónsson sem hafði verið þjálfarinn okkar í 2. flokki var ráðinn þjálfari liðsins og félagið var skírt Knattspyrnufélag Árborgar. Við sóttumst eftir því að skammstöfun félagsins yrði KÁ með von um að fá Kaupfélag Árnesinga sem aðalstyrktaraðila, en KSÍ hafnaði þessari skammstöfun og ekkert varð af styrktarsamningi við Kaupfélagið sem betur fer kannski. Fyrsti leikur okkar í Íslandsmótinu var svo Árborgarar fagna sigri á ÍH á fyrsta keppnistímabili liðsins sumarið 2001. í Sandgerði 25. maí 2001. Reynir Sandgerði var á þessum tíma með eitt sterkasta liðið í 3. deildinni og því var eftirvæntingin mikil. Mætingin á völlinn var mjög góð og fékk ég gæsahúð er ég gekk út á völlinn fyrir mitt nýja félag. Ég man sérstaklega eftir markinu sem ég skoraði og reyndist fyrsta mark félagsins í Íslandsmóti. Það kom upp úr snarpri sókn og föstu skoti frá tamningamanninum knáa Sóloni Morthens. Þar var ég mættur á réttum stað og sett ann í hornið með hnitmiðuð skoti úr markteignum og kom Árborg í 1-0. Frábær tilfinning fyrir framherjann síðhærða og nýliðarnir litu bara ágætlega út. Við lutum þó í gras í þessum fyrsta leik félagsins 3-1 en áttum þó eftir að vinna nokkra leiki og enduðum í fjórða sæti riðilsins. Gríðarlega skemmtilegur tími og margir meistarar í liðinu. Besti bitinn í bænum

14 Sumar á Selfossi 2011 Góða skemmtun um helgina Stelpurnar taka vel á móti þér

EF GOTTIÐ ER GOTT, HEITIR GOTTIÐ FREYJA

16 Mikill hugur í samtökum verslunar og þjónustu Þær stöllur Ásta í Motívo og Kolla í Sjafnarblóm eru forsvarsmenn samtaka verslunar og þjónustu á Selfossi. Forsvarsmenn hátíðarinnar Sumar á Selfossi hafa átt gott og ánægjulegt samstarf við samtökin í tengslum við hátíðina og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um samtökin. Í dag eru um 35 verslunar og þjónustuaðilar í samtökunum en þau hafa verið starfandi í þeirri mynd sem þau eru núna í u.þ.b. fimm ár. Aðilar innan samtakanna eru samstíga og sammála því að efla þau enn frekar með meiri samvinnu sín á milli og uppfylla um leið þarfir heimamanna og hvetja þá til að versla í heimabyggð, en verslun í heimabyggð styrkir og eflir allt samfélagið. Mikill hugur er í félagsmönnum og þeim stöllum og margar hugmyndir í gangi sem spennandi verður að fylgjast með í framtíðinni. Nú þegar eru nokkrar þeirra komnar á koppinn og bæjarbúar koma til að með að taka eftir þeim fljótlega. Ein þessara hugmynda eru burðarpokar sem samtökin eru að láta framleiða fyrir sig í sameiningu. Á annarri hlið pokans verður götukort af Selfossi þau fyrirtæki sem taka þátt í verkefninu verða staðsett á réttum stað og á hinni stendur Selfoss - brosandi bær Önnur hugmyndin sem verið er að vinna að er svokallað Árborgarkort. Kortið er fyrir fyrirtæki í Árborg og hægt verður að kaupa þau og nota sem gjafakort. Sambærileg kort má fá víða og sem dæmi má nefna gjafakort Kringlunnar og Smáralindar. Kosturinn við Árborgar - kortið er að þau stuðla að verslun í heimabyggð. Stefnt er á að Árborgar - kortið verið tilbúið fyrir jólin og því má gera ráð fyrir mörgum litlum og sætum jólapökkum undir trén í ár. Þriðja verkefnið sem unnið er að er að koma í loftið heimasíðu fyrir samtökin. Lénið selfoss.is verður notað og vinna er hafin við að virkja síðuna, en enn sem komið er vísar hún yfir á Árborgarsíðuna. Það er óhætt að segja að mikil gróska sé í samtökunum og hugur í félagsmönnum og það verður spennandi að fylgjast með þessum verkefnum á næstu misserum. 2011 2010 62% SÖLUAUKNING MÝRARNAUT ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI ÞAÐ ERU JÁKVÆÐ TEIKN Á LOFTI Í ÍSLENSKU ATVINNULÍFI Fjölmörg fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka eru að ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Arion banki fagnar þessum góða árangri. Kynntu þér málið á arionbanki.is Viðskiptavinir í Stofni MANNAKORN Á TÓNLEIKUM FRÍTT FYRIR TVO Það styttist í Sumar á Selfossi. Þar munu Mannakorn spila af sinni alkunnu snilld 10. ágúst, í hátíðartjaldi við Sigtún. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00. Stofnfélagar fá miða afhenta í Sjóvá á Selfossi, Austurvegi 38. ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ

ÓDÝRASTA SPAGETTÍIÐ Í BÓNUS 179 kr. 1 kg Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ EURO SHOPPER VÖRUTEGUNDIR Í BOÐI

K K O R I R S A S O M F U S SEL Á 0 1.0 2 KL I T S Ú FOSS G Á 9. Á SEL N GIN RINN A D TU RÐU RK M A A M I M G F JA R TAK N S Æ N R B TT I LDU Í A R F ÁRA 8 1

The Wicked Strangers Hljómsveitin var stofnuð í febrúar 2011, og árið 2011 var viðburðaríkt. Músíktilraunir, ENDALAUST af tónleikum, upptökur á 4 laga EP-plötu, Rokkstokk keppni og margt fleira. Við upplifðum mannabreytingar, misstum einn gítarleikara og skiptum um bassaleikara, en í dag skipa The Wicked Strangers: Teitur Magnússon; gítar/píanó, Magnús Fannar Guðmundsson; Bassagítar, Gunnar Guðni Harðarson; Söngur/hljóðgervill og Jósep Helgason; Trommur. Við erum 3/4 Selfyssingar og ¼ Eyrbekkingar. Á árinu 2012 hefur verið annasamt. Global battle of the bands, við höfum samið eitthvað af nýju efni, spilað á einhverjum slatta af tónleikum, og farið í Ameríkutúr um suðurríkin. Í haust verður tekin upp okkar fyrsta breiðskífa, enda kominn tími til! Næst á dagskrá, sem og áður, er að leyfa tónaflóði rokksins að flæða úr vitum okkar, og vonandi skilar það sér til áhorfenda. FOREIGN MONKEYS Foreign Monkeys varð til í desember 2005 en sveitin sigraði Músíktilraunir í mars árið eftir. Meðlimir sveitarinnar eru Bogi Ágúst Rúnarsson, söngur og bassi, Gísli Stefánsson, söngur og gítar, Leifur Björnsson gítar og Víðir Heiðdal sem spilar á trommur og kerlingar. Sveitin gaf út sína fyrstu plötu, π í apríl 2009 og fékk hún mjög góða dóma, m.a. fjórar stjörnur af fimm í Morgunblaðinu. Foreign Monkeys eru þessa dagana að taka upp nýja plötu sem kemur út seinna á árinu. Fyrsti singúllinn af plötunni, Zoology, hefur þegar heyrst á öldum ljósvakans og fékk góðar viðtökur m.a. á útvarpstöðinni X977. Framundan hjá sveitinni er tónleikahald í bland við upptökur og almenna rokkneyslu. Caterpillarmen Áður en Caterpillarmen varð að hljómsveit vorum við bræðurnir Ísak (ég) og Ingimundur ásamt trommaranum Andra búnir að vera að slípa okkur saman í fjögur ár. Við æfðum okkur fyrst á tökulögum, sömdum nokkur lög og tókum þátt í músíktilraunum 2007. Eftir það fór bassaleikarinn okkar að verða frekar metnaðarlítill og við fórum að hugsa upp leiðir til að halda hljómsveitinni ferskri til að vinna sem best úr öllum hugmyndunum sem við (sérstaklega Ingimundur) vorum/erum svo stútfullir af. Zakki kom um áramótin 2008/2009 og uppúr því fórum við á fullt skrið. Við vorum komnir með efni í heila plötu og rúmlega það um páskana og þá tókum við upp plötuna Adopt a Monkey með hjálp félaga okkar, Lella pullu. Síðan þá höfum við spilað á ótrúlega mörgum tónleikum, hitað upp fyrir bandarísku hljómsveitina tune yards á túr þeirra um evrópu, gefið út tvær aðrar plötur og sú fjórða er komin vel á leið. Tónlistin okkar er alltaf að þróast gefa af sér meiri möguleika. En þrátt fyrir að hafa verið duglegir við að spila höfum við aldrei spilað á Selfossi og finnst mér vera kominn tími til! Þannig að takk fyrir boðið,okkur hlakkar til að spila fimmtudaginn í næstu viku og við gerum okkar allra besta við að koma eyrum ykkar á óvart.

* Flugeldasýningin eftir Sléttusönginn á laugardagskvöld er í boði Bílverk BÁ

DAGSKRÁ SUMARS Á SELFOSSI 9. 12. ÁGÚST 2012 Fimmtudagur 9. ágúst Skreytum bæinn Selfyssingar og gestir þeirra skreyta húsin sín í litum hverfanna. Þátttakan hefur verið frábær undanfarin ár og hafa bæjarbúar keppst við skreyta húsin sín hverfalitunum. Kl. 13 Ljósmyndasamkeppni Verslun og þjónusta í Árborg standa fyrir ljósmyndasamkeppni. Hægt er að kjósa sína uppáhaldsmynd í Filmverk í Miðgarði á meðan á hátíð stendur. Einnig á föstudag og laugardag. Kl. 13 Ratleikur Verslun og þjónusta í Árborg standa fyrir ratleik. Frekari upplýsingar á þátttökublaði í bókasafninu. Einnig á föstudag og laugardag. 21:00 Sumarrokk á Selfossi 2012 Margar af efnilegustu hljómsveitum landsins stíga á svið í hátíðartjaldinu í bæjargarðinum. 22:00 Jónas Ritvélarnar Jónas og félagar munu halda tónleika á Kaffi Krús - ekkert nema hamingja. Föstudagur 10. ágúst 13:00-15:00 Golfdagur fjölskyldunnar Golfdagur fjölskyldunnar hjá Golfklúbbi Selfoss á Svarfhólsvelli, þar sem fólki gefst færi á að fara á æfingasvæðið með lánsbúnað frá klúbbnum án endurgjalds. 14:00 Olísmótið Drengir í 5. flokki etja kappi í knattspyrnu. 21:00 Tónleikar á Kaffi Krús Lifandi tónlist í tjaldinu á Kaffi-Krús 21:00-23:00 Tónleikar með Mannakorn Mannkorn með Magnús Eiríksson, Pálma Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttur í broddi fylkingar. Gætu orðið tónleikar ársins. Veitingasala á staðnum. 23:00-01:00 Dansleikur með Stuðlabandinu Risa dansleikur með Stuðlabandinu 18 ára aldurstakmark Laugardagur 11. ágúst 7:30 Skjótum upp fána Selfyssingar taka daginn snemma, skjóta upp fána og gera sig klára fyrir morgunmat í hátíðartjaldi. 8:20 Hópyoga Rósa hjá Hugform.is verður með yogatíma í bæjargarðinum. 9:00-11:00 Morgunverður í hátíðartjaldi Sigtúni Fyrirtæki á Selfossi bjóða til morgunverðar í hátíðartjaldi við Sigtún. Guðnabakarí, Krás, HP Kökugerð, MS, Vífilfell, Samkaup, Europris, Bónus, Lýsi og Flytjandi bjóða til veislunnar. Sumar á Selfossi viðurkenningin 2012 afhent. Fjölmennum í morgunverðinn í bæjargarðinum og tökum þátt í skemmtilegri samverustund. 10:00 Sprell leiktæki Leiktækjaleigan Sprell með fjölbreytt tæki fyrir krakka á öllum aldri í bæjargarðinum allan daginn. 9:40 Riðlakeppni Olísmótsins Framtíðarlandsliðsmenn Íslands eigast við í Meistaradeild Olís á Selfossvelli 13:00 Galdraskólinn Einar Mikael töframaður með frábæran galdraskóla. Upplýsingar á Facebooksíðu SÁS.

13:00-17:00 Flóamarkaður í hátíðartjaldi Leyndir fjársjóðir leynast víða. 13:00-17:00 Handverksmarkaður í hátíðartjaldi Hæfileikaríkt handverksfólk með margbreytilegt handverk til sölu og sýnis frá öllum landshornum. 13:00 Sumarhúsið og garðurinn Ljósmyndasýning ásamt því að gefin verða góð ráð varðandi garð,- og grænmetisrækt ásamt sultugerð og fleira. Allir garðræktendur ættu að nýta sér þetta tækifæri og líta við í hátíðartjaldið. 15:00 Kassaklifur Björgunarfélag Árborgar mætir með kranann og kassana í bæjargarðinn. Hver kemst næst skýjunum? 14:00-16:00 Dagskrá á stóra sviði Trúðurinn Wally Það er ekki á hverju ári sem Íslendingar fá að sjá alvöru trúð. Ástralski trúðurinn Wally hefur farið sigurför um heiminn og glatt bæði unga sem aldna. Atriði sem enginn ætti að missa af. Einar Mikael töframaður Einar Mikael töframaður er einn allra færasti töframaður og skemmtikraftur Íslands um þessar mundir. Sýningar hans saman standa af ótrúlegum töfrabrögðum og mögnuðum sjónhverfingum sem aldrei hafa sést á Íslandi áður Eurogym hópur fimleikadeildar Selfoss leikur listir sínar Hópurinn er nýkominn heim frá sýningarhátíð í Coimbra Portúgal þar sem þær voru verðugir fulltrúar Íslands á hátíðinni. Selfosströllið Sterkustu menn Iślands koma við a Selfossi a leið sinni um Suðurland. Keppt verður i tveimur greinum i bæjargarðinum og einni við árbakkann. Lína Langsokkur Sterkasta stelpan í heimi mun koma í heimsókn, halda á hrossi og syngja lög um alvöru sjóræningja. Ingó Ingó hressi kemur og syngur nokkur af vinsælustu lögum sínum á stóra sviðinu. 21:30 Hátíðarávarp 21:30-22:30 Sléttusöngur - Ingó Óskadrengurinn Ingó Veðurguð stýrir Sléttusöngnum í ár eins og í fyrra. Ingó hefur náð að skipa sér á stall með allra vinsælustu tónlistarmönnum landsins og átt ófáa slagarana síðustu ár. Andri eldgleypir kveikir upp í brennunni. Góð hugmynd að mæta tímanlega til að ná góðu stæði. Skítamórall mætir í lokin og hitar upp fyrir ballið í Hvíta. Veitingasala opin í tjaldinu. 22:30 Flugeldasýning Bílverk BÁ bjo ða upp a glæsilega flugeldasyńingu. Sýningin er í öruggum höndum félaga úr Björgunarfélags Árborgar. 23:00 Raggi Bjarna - Þorgeir Ástvalds - Þorvaldur Halldórsson Stórdansleikur í hátíðartjaldi í boð SET. Þrír af ástsælustu tónlistarmönnum landsins leika fyrir dansi í hátíðartjaldi eftir Sléttusönginn. Þeir félagar, Þorvaldur "Á sjó", Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds, munu halda uppi einstakri stemmningu og hvetjum við fólk að hafa með sér dansskó í poka. Aðgangur er ókeypis - veitingasala á staðnum. 23:00-3:00 Skítamórall í Hvíta húsinu Mórallinn mætir í Hvítahúsið þar sem stemmningin verður fram á rauða nótt. Sunnudagur 12. ágúst 13:00 Delludagur Frábær dagskrá fyrir bílaáhugamenn í Hrísmýri. Kassabílarallý, drift, drulluspyrna og fleira. 14:30 Olísmóti lýkur Mótsslit á Meistaradeild Olís 19:15 Selfoss-Fram Selfyssingar taka á móti Fram á Selfossvelli í Pepsi deild karla. Komum og styðjum strákana í baráttunni. Áfram Selfoss! 18:00 Tónleikar á Kaffi Krús Lifandi tónlist í tjaldinu á Kaffi Krús allt kvöldið. 18:00-21:00 Götugrill og garðagleði Selfyssingar grilla og undirbúa sig fyrir sléttusönginn.

Nýir og notaðir bílar Fossnesi 14-800, Selfoss Sími 480 8000 - toyotaselfossi@toyotaselfossi.is

Kiriyama Family Strákarnir í Kiriyama Family eru búnir að vera starfandi markvisst allir saman síðan 2010. Þó að nafnið hafi komið fyrr og slatti af laga hugmyndum hafi verið komið í vinnslu hjá strákunum (jóa, Víði og Kalla) sem enduðu svo með að lifa af alla leið á fyrstu breiðskífu bandsins í einhverju formi. Bassi og Gummi komum svo inn í myndina 2010 og þá mótaðist bandið í aðra átt og fjölskyldan varð til. Hljómsveitin kom fyrst á yfirborðið með laginu sneaky Boots í janúar árið 2011, lagið var á vinsældarlista rásar 2 í 13 vikur og myndband við lag hljómsveitarinnar var tilnefnt sem myndband ársins 2011 bæði á hlustendarverðlaunum X-Ins og Northen Wave film festival. Í sumar kom svo út fyrsta breiðskífa Kiriyama og hefur hún fengið frábærar viðtökur. M.a 4/5 stjörnur hjá Dr. Gunna, 4/5 hjá Fréttablaðinu, 3&hálf/5 hjá mbl. 9/10 hjá Andreu Jónsdóttir sem nefndi meðal annars í þætti sínum að trommari Kiriyama væri sá besti á íslandi. Lagið Weekends hefur verið í toppsæti vinsældarlista rásar2, 3 vikur í röð í sumar og situr en í top 10 eftir 14 vikur á listanum. Bassi Ólafsson tók upp breiðskífuna í hljóðveri sínu og hljóðblandaði á Selfossi, þannig að það mætti segja að þetta sé Alsunnlensk vara. Bandið skipa þeir Guðmundur Geir Jónsson, Karl Magnús Björnsson, Víðir Björnsson, Jóhann vignir Vilbergsson og Bassi Ólafsson. Bandið þykir nokkuð sérstakt að því leyti að enginn spilar á ákveðið hljóðfæri þannig að útkoman er skemmtileg blanda af spilamennsku og grúvi. Elín Helena Síðastliðið sumar ákvað Partípönksveitin Elín Helena að snúa til baka úr sjálfskipaðri útlegð, spila og njóta lífsins. Síðustu misseri hafa þessir listamenn hangið ótæpilega í hljóðveri við vinnslu á glóðvolgri skífu sem væntanleg er á árinu. Áður hafði komið út stuttskífan Skoðanir á Útsölu sem margir muna eftir og fyrir löngu uppseld. Eins og pönkurum sæmir eru Elínarmenn ekki aldeilis tilbúnir til að sætta sig við algeng gildi og venjur, en ólíkt flestum forrennurum sínum taka þeir ekki á aðfinnslusemi sinni með jafn einfeldingslegum tilfinningum og reiði og biturð, þvert á móti sprengja þeir á kýlunum með bros á vör og baða sig upp úr vessunum hlæjandi. Hljómsveitin hefur nýverið sent frá sér lagið Raunsæ rómantík sem hefur verið í útvarpsspilun undanfarin misseri. Elín Helena ætlar að taka landið með trompi á næstunni og hafa spilað á helstu rokkhátíðum íslands s.s. Keflavík og Reykjavík Music Festival, Eistnaflug og nú auðvitað á Sumar á Selfossi! Meðlimir Elínar eru allir hressir kappar af Suðurlandinu sem margir þekkja úr öðrum verkefnum: Daði Óskarsson - Söngur, Eyjólfur Viðar Grétarsson - Söngur, Vignir Andri Guðmundsson - Gítar, Sigurbjörn Már Valdimarsson - Bassi og Skúli Arason - Trommur The Vintage Caravan The Vintage Caravan er rokk tríó sem einkennist af kraftmikilli sviðsframkomu, grípandi lögum og gítarsólóum! Sveitin hefur starfað frá árinu 2006, heitið þremur nöfnum, og gengið í gegnum tvær skiptingar á bassaleikurum. Lentu í þriðja sæti í músíktilraunum 2009, tilnefndir sem "Bjartasta Vonin" á Íslensku tónlistarverðlaununum 2012, unnu Global battle of the bands á íslandi og fara til London í des til að keppa í úrslitunum fyrir hönd Íslands, eru að vinna í breiðskífu tvö sem kemur út í September. Hljómsveitin hefur verið óeðlilega aktívir að spila og spilað á helstu hátíðum Íslands. Tónlistarstefnan hjá sveitinni er í anda tónlistar sem var hvað vinsælust á sjöunda og áttunda áratuginum. The Vintage Caravan er hljómsveit sem þú verður að sjá, heyra og upplifa.

10 GB Stærsta 3G net landsins 500 kr. ÍSLENSKA / SÍA TAL 59733 07.12 Tal kynnir til sögunnar niðurhal á stærsta 3G neti landsins á áður óþekktu verði. Það þýðir að viðskiptavinir Tals sem eru með farsíma í áskrift geta gert ótrúlegustu hluti á netinu á ótrúlegustu stöðum. Jafnvel talað við mömmu á Skype í marga klukkutíma. Kynntu þér 10 GB fyrir 500 krónur í síma 6-123456 eða á www.tal.is. Svona á samband að vera. Tal er á 3G neti Símans

Besti leikur Árborgar Rétt eftir að hátíðinni Sumar á Selfossi lýkur verða tíu ár liðin frá besta leik Knattspyrnu félags Árborgar fyrr og síðar. Þann 13. ágúst árið 2002 mættust Árborg og KFS á Selfossvelli klukkan 19. Tæpum sex sekúndum síðar var staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Njörður Steinars - son skoraði mark frá miðju og jafnaði Íslandsmet - mark í Íslandsmóti á styðstum tíma. Þó ákveðnir aðilar vilji meina að í raun hafi hann bætt metið. Njörður var ekki hættur því hann var kominn með þrennu eftir 38 mínútur og staðan 3-0 fyrir Árborg í leikhléi. Gestirnir frá Vestmanna - eyjum voru ekki hættir og náðu að minnka muninn snemma í síðari hálfleik. Það varð aðeins til þess að Árborgarar bættu í og skoruðu fjögur mörk til viðbótar. Guðmundur Ármann Böðvars son kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk með stuttu millibili og kom Árborg í 5-1. Það var svo Njörður Steinarsson sem skoraði sjötta mark Árborgar og fjórða mark sitt. Bjarni Sigurðsson kom einnig inn á sem varamaður og skoraði sjöunda og síðasta markið. Þetta var lengi vel stærsti sigur Árborgar í deildar - keppni, eða alveg þar til liðið sigraði Létti 14-0 á Selfossvelli. Þá er leiksins auðvitað minnst fyrir fernu Njarðar og sex sekúndna markið. Síðast en ekki síst er þetta lið sem spilaði sumarið 2002 talið það besta sem Árborg hefur telft fram á Íslandsmótinu. Þess vegna er þessi leikur talinn vera sá besti í sögu félagsins. Bekkurinn

Gamlir hlutir fá nýtt líf Á Sumar á Selfossi gefst áhugasömum sölumönnum - og konum tækifæri til þess að selja hvers kyns gersemar á fyrirhuguðum flóamarkaði í bæjargarðinum laugardaginn 11. ágúst. Áhugasamir eru hvattir til að taka til í geymslunni eða bílskúrnum og finna gamla hluti sem geta fengið nýtt líf. Leyfum öðrum að gramsa og gera góð kaup. Áhugasamir hafi samband við Hildi Gestsdóttur í gegnum tölvupóst floamarkadur2012@gmail.com

ALMENN RÁÐGJÖF Fyrir þína hagsmuni FASTEIGNASALA SLYSA- OG BÓTAMÁL Lögmenn Suðurlandi ehf. Lögfræðiþjónusta Slysa- og skaðabætur Fasteignaviðskipti Við erum umboðsmenn þínir.

Þjálfarinn og tvíburapabbinn Það er ekki oft sem nýbakaðir tvíburafeður gefa kost á sér í þjálfun en annar af tveimur þjálfurum Árborgar, Guðjón Bjarni Hálfdánarson, sem í byrjun árs eignaðist tvíbura sá ekkert því til fyrirstöðu að taka að sér þjálfun meistaraflokks Árborgar í sumar. Ákvað blaðamaður því að taka þennan magnaða föður og þjálfara í spjall. Hvað kom til að þú gerðist þjálfari? Guðmund Garðar þjálfara Árborgar vantaði mann með sér í starfið og hafði samband við mig. Á þeim tíma var ég nýbúinn að eignast tvíburastrákana mína, Elmar Þór og Hákon Darra, og taldi ég mig ekki hafa mikinn tíma. Rakel Dögg, unnasta mín, vissi að þetta væri verkefni sem ég hefði mikinn áhuga á. Stuðningur hennar við mig, hæfileiki hennar sem móðir og skilningur hennar við vanmátt minn gagnvart fótbolta gerða það að verkum að þetta verkefni gengur upp. Án stuðnings heima fyrir væri þetta verkefni óvinnandi vegur. Hvernig gengur að sameina fjölskyldulífið og fótboltann? Það hefur ekki verið vandamál hingað til. Þegar heimaleikir eru kemur fjölskyldan að horfa á mig garga á hliðarlínunni og hlæja að vitleysunni sem uppúr mér vellur og hlustar á mig hella úr skálum reiði minnar eða gleði á leiðinni heim ef því hvernig leikurinn fór. Í útileikjum, í fjarveru minni, nýtir nánasta fjölskylda eða vinkonur unnustu minnar tímann til að kíkja í heimsókn því þá er þörf fyrir auka hendur. Þetta fyrirkomulag hefur reynst mjög vel og veitt öllum ómælda gleði. Hvað er líkt með knattspyrnunni og uppeldinu? Þrátt fyrir mikinn aldursmun, allt frá sex mánaða börnum mínum upp í þrítugan fyrirliða, er maður á báðum stöðum að kenna einhverjum eitthvað í fyrsta skipti. Markmiðið á báðum stöðum er að þjálfa og kenna einstaklingnum í að verða betri til að styrkja heildina. Klikki,,uppeldið á báðum stöðum eru sömu afleiðingarnar: reiði, sorg og sundrung. Stendur valið stundum á milli tíma með fjölskyldunni og fótboltans? Það hefur aldrei komið til þess að ég hafi þurft að velja. Við ákváðum frá upphafi að takast á við verkefnið saman og gera gleði úr því. Það er að takast vel og njótum við þess tíma sem við erum saman í stað þess að tuða yfir þeim tíma sem við erum í sundur. Kemur til greina að þjálfir meira en eitt ár? Aldrei að segja aldrei. Verði það raunin að drengirnir hafi mikinn áhuga á fótbolta sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þjálfa áfram. Áhugi okkar allra myndi eflast og hugsanlega yrðu þeir fimmtu tvíburarnir til að spila fyrir Árborg. Árborg yrði þó eina liðið sem ég myndi þjálfa í meistaraflokki þar sem andinn, stemmningin, utanumhaldið og metnaðurinn er hvergi meiri. Hvað þetta varðar er Árborg langsterkasti klúbbur landsins og öðrum til mikillar fyrirmyndar. Eitthvað að lokum? Ef áhugamál, vinna og fjölskyldulíf á að ganga upp þarf virðingu og tillitsemi í bland við þarfir einstaklingsins. Ef allir ganga í sömu átt og rétta þá af sem út af leiðinni fara með rökum en ekki yfirgangi getur allt gengið upp. LÍFIÐ ER LEIKUR, LÆRUM AÐ NJÓTA ÞESS. GLÆSILEG SJÁLFSAFGREIÐSLU BÍLAÞVOTTASTÖÐ Opin allan Hér erum við... sólarhringinn Hefur þú prufað?

11. ÁGÚST MIÐAR GEFNIR Á VERIÐ RÉTT STILLT!

Sumar á Selfossi Innihurðir Útihurðir Innréttingar Gluggar Selós, Gagnheiði 72, Selfossi Sími 482 4100 VELDU GÆÐI... VELDU KJARNAFÆÐI

Ljósmyndasamkeppni Sumars á Selfossi Sumar á Selfossi verður haldin hátíðleg um næstu helgi og verða Samtök verslunar og þjónustu í Árborg með ratleik um bæinn og ljósmyndasamkeppni. Vonandi voru allir duglegir við það að taka flottar sumarmyndir um verslunarmannahelgina þegar bærinn iðaði af lífi sem aldrei fyrr. Einhver mesti fjöldi keppenda í sögu unglingalandsmóts skráði sig til keppni og bærinn iðaði af lífi. Veitt verða verðlaun fyrir bestu myndina sem tekin var á myndavél og einnig valin besta símamyndin. Myndirnar verða svo til sýnis í Miðgarði hjá Filmverk/Ljósmyndastofa Suðurlands á hátíðinni Sumar á Selfossi og eru gestir hvattir til að koma þar við og gefa myndum stig. Verðlaunin verða ekki af verri endanum. Það eina sem þarf að gera er að taka myndina á Selfossi og senda hana ásumarmyndir2012@gmail.com með upplýsingum um ljósmyndina og ljósmyndara. Myndir þurfa að berast fyrir 8. ágúst, finna má nánari upplýsingar áwww.facebook.com/sumaraselfossi Hlakka til að sjá frá ykkur flottar myndir. Guðm mundur ur Tyrfings ssonson ehf Grænir og góðir síðan n 1969 Nýjar lúx us rútur Bjóðum yfir 900 sæti með þriggja punkta öryggisbeltumgisbeltum Hafðu samb band og sérpantaðu rútu með þriggja punkta beltum fyrir þá sem þ ér þykir vænt um. gt@gtbus.is gtbus.is www.gtbus.is.is

Sumarhúsið og garðurinn Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn er 20 ára, og af því tilefni er boðið til afmælishátíðar í garðinum að Fossheiði 1 á Selfossi. Á hátíðinni er sýning á ljósmyndum Páls Jökuls Péturssonar og sýnd fjölbreytileg notkun steinbrjóta bæði í steinkerjum og í lóðréttum gróðurvegg. Páll er ljósmyndari tímaritsins og einn af eigendum þess. Á sýningunni eru ljós - myndir í stóru formati af plöntum í garðinum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndirnar eru prentaðar á segldúk og festar utan á veggi hússins. Ljósmyndasýningin tengist efni tímaritsins þannig að myndirnar eru af plöntum, sem flestar má finna í garðinum að Fossheiði 1. Auður I Ottesen ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn á heiðurinn af hönnun garðsins og plöntuvali, og samhliða ljósmyndasýningunni verður sýnt hvernig nota má lágvaxnar fjallaplöntur, steinbrjóta, hnoðra og húslauka í steinkerum að enskri fyrirmynd og sem þekjuplöntur í beðum og í lóðrétta gróðurveggi, sem er nýnæmi á Íslandi. Á laugardag og sunnudaginn verða gefin góð ráð varðandi geymslu á grænmeti og við sultugerð úr berjum milli kl 16-17. Við bjóðum landsmönnum hjartanlega velkomna að kíkja til okkar, við bjóðum upp á jurtate, kaffi og meðlæti. Gestum gefst kostur á að kaupa ljósmyndir Páls Jökuls, ásamt blöðum og bókum sem Sumarhúsið og garðurinn hefur gefið út. Nánari upplýsingar hjá okkur í síma 578 4800.

Þurftu að bæta við starfsmanni Spennandi ratleikur Allir bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í ratleik samtaka verslunnar og þjónustu sem fram fer á Sumar á Selfossi. Ratleikurinn stendur yfir frá fimmtudegi til laugardags á opnunartíma þeirra verslana sem taka þátt. Til að taka þátt þarf að nálgast þátttökuseðill á bókasafninu við Austurveg frá og með fimmtudeginum 9. ágúst. Þátttakendur þurfa að klára ákveðnar þrautir sem fram koma á blaðinu og skila síðan inn seðlinum, en á þátttökuseðlinum má finna allar frekari upplýsingar um leikinn. Að sjálfsögðu verða svo dregnir út vinningshafar úr þeim lausnum sem berast og veglegir vinningar eru í boði fyrir rétt svör. Síðan Fiskbúð Suðurlands flutti þann 1. júní sl. hafa starfsmenn búðarinnar varla haft undan við að sinna viðskiptavinum sem hafa tekið einkar vel í þessa breytingu. Búðin flutti reyndar ekki langt, aðeins um nokkra metra. Gamla búðin var löngu orðin of lítil og því var annað hvort að flytja hana annað eða breyta húsnæðinu, segir Guðmundur Hansson, eigandi Fiskbúðar Suðurlands. Flutningar hefðu kallað á aukin kostnað og auk þess hefur Fiskbúðin verið í sama húsnæði frá stofnun árið 1989. Þess vegna var ákveðið að ráðast í breytingar á húsnæðinu að Eyravegi 59 á Selfossi. Búðin er nú mun stærri en hún var áður og stærri búð fylgir meira vöruúrval. Við getum núna boðið upp á ýmsar nýjung - ar, segir Guðmundur sem stefnir á að bæta við vöruúrvalið á næstunni. Það hafa til dæmis komið upp hugmyndir að bjóða uppá Sushi sem er mjög vinsælt núna, segir Guðmundur og líklega verður það á boðstólum áður en langt um líður. Í sumar bíður Fiskbúðin uppá fisk sem er veiddur í ám á Suðurlandi og samkvæmt Guð - mundi er nánast setið um þann fisk. Það er eins og fólk finni það á sér þegar hann kemur í verslunina því það er mætt um leið til að versla, segir Guð - mund ur. Hins vegar hefur veiðin í sumar ekki verið uppá marga fiska í sumar og því eftirspurnin meiri en framboðið. Versluin er einungis hluti reksturs Fiskbúðarinnar og er unnið í húsinu nánast allan sólar - hring inn. Já, það má segja það. Hér eru fyrstu menn mættir klukk an fjögur á morgnanna og verslun in er opin til klukkan sex, segir Guðmundur. Inn gang - ur verslunarinnar er nú í vestur - enda hússins og sem fyrr segir hafa viðtökurnar verið mjög góð - ar. Við þurftum meira að segja að bæta við starfsmanni fyrir stuttu, segir Guðmundur að lokum. Góða skemmtun um helgina! KFC Selfossi opið alla daga frá kl. 11:00 til 22:00. MUNIÐ BÍLALÚGUNA!

Sumar á Selfossi 2011...verði þér að Góu!

2.490 1.992 kr. kr. 1.890 kr.r.. 29.900 26.910 kr. kr. 19.900 kr.r. 1.490 1.192 kr. kr. 990 kr.r. 5.990 4.792 kr. 4.5.590 590 18.900 17.010 kr. kr. kr. 1166.900. kr.r. kr.r. 4.900 15.990 6.072 7.590 A N I ELG H M U R! T U S A K J L Ý E L LT Á AÐ S AL BYKO SELFOSS - LANGHOLTI 1 SÍMI: 480 4600 Verðvernd BYKO tryggir þér lægra verð. Sjá nánari upplýsingar og skilmála á www.byko.is. 9.900 29.900 15.900 17.900 14.900 43.900 3.590 14.900 29.900 11.900 18.900 4.990 9.900 8.900

Tíunda hátíðin okkar Í ár eru liðin 10 ár síðan Knattspyrnufélag Árborgar annaðist í fyrsta sinn framkvæmd hátíðarinnar Sumars á Selfossi. Hátíðin hafði þá fyrir löngu verið búin að festa sig í sessi sem glæsileg bæjarhátíð á Selfossi, þar sem meginviðburðurinn var morgunverður fyrir íbúa á Árborgarsvæðinu og gesti. Hugmyndin að því að Knattspyrnufélag Árborgar myndi annast hátíðarhöldin fæddist fyrir utan Suðurlandsvídeó dimman dag í febrúar fyrir tíu árum síðan. Þá voru áhöld uppi með framtíð hátíðarinnar, þar sem heyrst hafði að aðila vantað til að halda utan um hana. Þá höfðu stjórnarmenn Knattspyrnufélags Árborgar haft alla anga úti með að finna bæði verkefni og styrktaraðila til að halda úti knattspyrnufélagi á svæðinu og fannst kjörið að kanna þetta verkefni nánar. Stjórnin var meðvituð um að ekki þýddi að herja á styrktaraðila eingöngu, en félagið þyrfti sjálft að hafa fyrir því að afla fjár til að halda úti starfsemi þess, með að vinna ýmis verkefni. Það að halda utan um hátíðina var þannig kjörin leið til að afla fjár, sem og að um leið gæti félagið gert sig sýnilegt, náð tengingu við íbúa svæðisins og jafnframt tekið þátt í samfélagslegum verkefnum á svæðinu, sýnt þannig ungmennafélagsandann sem bjó í félaginu og þakkað örlítið fyrir sig um leið. Þegar hugmyndin var fyrst rædd, voru allir sem komu að félaginu, hvort heldur sem það var stjórn, leikmenn eða stuðningsmenn, reiðubúnir að leggja hönd á plóg og fannst verkefnið spennandi. Þá tók sveitarfélagið Árborg strax vel í hugmyndina og var bæjarfélagið reiðubúið að aðstoða á alla lund við framkvæmdina. Í fyrstu var byrjað smátt á meðan menn voru að feta sig áfram og öðlast reynslu Árborgarar á Sumar á Selfossi 2003 ásamt Bubbu og Guðna í Guðnabakaríi. við framkvæmdina, en svo hefur hátíðin undið upp á sig og æ fleiri viðburðir og atriði bætast við dagskrána á ári hverju, sem allt stuðlar að því að gera hátíðina sem glæsilegasta. Markmiðið var og hefur alltaf verið að allir eiga þar að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíð eins og Sumar á Selfossi verður hins vegar ekki til af sjálfu sér og verður hún ekki vel heppnuð nema með öflugum stuðningi íbúa og fyrirtækja á svæðinu. Strax á fyrsta ári fann félagið fyrir miklum velvilja fyrirtækja á svæðinu í garð hátíðarinnar, sem ýmist lögðu sitt af mörkum með fjárframlögum, vörum eða vinnu. Þar hafa farið í fararbroddi og að öðrum ólöstuðum fyrirtæki sem bjóða upp á morgunverð hátíðarinnar. Þar má nefna fyrirtæki eins og Guðnabakarí, en Guðni og Bubba hafa lagt til tugþúsundir rúnstykkja í gegnum tíðina, strákarnir í Krás sem leggja til álegg, Mjólkurbú Flóamanna og síðar MS-Selfossi sem leggur til mjólkurvörur og Grímur og hans fólk í HP kökugerð sem leggur til kleinur og snúða. Síðan leggja verslanir bæjarins til borðbúnað og annað sem þarf til þess að halda morgunverðarhlaðborð og Helgi og starfsmenn Flytjanda hafa séð um flutninga til og frá Reykjavík. Án stuðnings fyrirtækja og íbúa og ómældri vinnu félagsmanna og velunnara Knattspyrnufélags Árborgar, er hætt við að hátíðin lognaðist út af. Fyrirtækjum sem og íbúum á svæðinu ber því að þakka fyrir að hátíðin hefur fest sig í sessi og að hún sé orðin árlegur viðburður, sem hægt er að ganga að sem vísum. Takk fyrir okkur! Helgi Valberg Jensson, fyrrv. framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Árborgar Stuðlabandið Stórdansleikur með einni skemmtilegustu hljómsveit landsins Í tjaldinu í miðbæjargarðinum kl. 23-01 1500 kr. inn

Verið velkomin á Selfoss Skemmtilegar verslanir, persónuleg þjónusta og frábærir veitingastaðir Samtök verslunar og þjónustu í Árborg. Eyravegi 23, Selfossi 555-1314 // 892-4410 Eyravegi 32 Selfossi Sími 4801160 www.arvirkinn.is Fallegur og vandaður fatnaður fyrir allar konur, stærðir S til 3XL Dekurvörubúð heimilisins og sumarhússins Rafverktakar í sérflokki Raftækjaverslun Þjónusta Ferskur jógúrtís með ýmsum bragðtegundum, rjómaís, gamli kaldi ísinn og kúluís Eyravegi 23, Selfossi // 555-1314 VIÐ ELSKUM ÍÞRÓTTIR Bíður upp á flottan og vandaðan tískufatnað á konur á öllum aldri. Austurvegur 33 sími 482-2076

ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI Með því að sameina tryggingar fjölskyldunnar í Stofni hjá Sjóvá færð þú persónulega þjónustu, betri kjör á tryggingum og ýmis fríðindi. Að auki fá tjónlausir og skilvísir viðskiptavinir í Stofni hluta iðgjalda sinna endurgreiddan í byrjun febrúar ár hvert. Sjóvá er eina íslenska tryggingafélagið sem umbunar viðskiptavinum sínum á þennan hátt. Afsláttur af tryggingum Stofn endurgreiðsla Vegaaðstoð án endurgjalds Afsláttur af barnabílstólum Ókeypis bílaleigubíll í 7 daga vegna kaskótjóns Frí flutningstrygging innanlands Enginn iðgjaldsauki ef þú lendir í tjóni Nágrannavarsla... og margt fleira ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ Sjóvá er hluti af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ