ÞRAUTIR RÖKHUGSUN STÆRÐFRÆÐI

Μέγεθος: px
Εμφάνιση ξεκινά από τη σελίδα:

Download "ÞRAUTIR RÖKHUGSUN STÆRÐFRÆÐI"

Transcript

1 STÆRÐFRÆÐI ÞRAUTIR RÖKHUGSUN Á eftirfarandi síðum eru fjölbreyttar þrautir eða rökhugsunarverkefni sem ætluð eru nemendum grunnskóla. Efnið hentar einkum nemendum á mið- og unglingastigi. Það hefur verið gróflega flokkað eftir þyngd í sex flokka frá A F. Efnið er ætlað til útprentunar. Lausnirnar eru einnig að finna á vef Námsgagnastofnunar. Ragna Briem safnaði efninu saman og Böðvar Leós teiknaði myndirnar. NÁMSGAGNASTOFNUN 09631

2 A. ÞRAUTIR RÖKHUGSUN A 1 Í Bergdalfjölskyldunni eru sjö systur og hver systir á einn bróður. Fjölskyldan á tíu manna bíl. Er sæti fyrir alla í fjölskyldunni (foreldra og börn) í bílnum? A 2 Raðaðu tölunum 3, 5, 6, 8 og 9 í reitina svo að þú fáir sömu summu þegar þú leggur saman tölurnar lárétt og lóðrétt. A. Þrautir rökhugsun

3 A 3 Maður og tveir synir hans þurfa að komast yfir á. Maðurinn er 100 kíló og hvor sonur 50 kg. Báturinn getur aðeins borið 100 kíló. Hvernig komast þeir yfir ána? A 4 Hver er stærsta útkoma sem þú getur fengið með því að setja tölurnar 2, 3, 6 og 7 í reitina: + x = A. Þrautir rökhugsun

4 A 5 Lúsía var í pílukasti. Hún kastaði alls sex pílum og fékk stig í öllum köstunum. Hægt var að fá stigatöluna 1, 3, 5, 7 eða 9 eftir því hvar pílan hæfði skífuna. Hver af eftirfarandi tölum gæti verið samanlagður stigafjöldi Lúsíu? 4, 17, 28, 29, 31, 56. A 6 Settu tölurnar 2, 3 og 5 í hringina þannig að summa allra talnanna verði 20 og summa talnanna í litlu þríhyrningunum verði sú sama í þeim öllum. A. Þrautir rökhugsun

5 A 7 Villi, Tinna, Magga, Sigga og Jón tóku þátt í tenniskeppni. Magga vann Villa, Tinnu, Siggu og Jón; Jón vann Villa og Tinnu, Sigga vann Tinnu, Villa og Jón og Villi vann Tinnu. Raðaðu fimmmenningunum í röð eftir fjölda vinninga. A 8 Hvað eru margir ferningar á myndinni? A. Þrautir rökhugsun

6 B. ÞRAUTIR RÖKHUGSUN B 1 Hvað voru margir gestir í kínversku matarboði ef ein skál af hrísgrjónum var fyrir hverja tvo gesti, ein skál af grænmeti fyrir hverja þrjá gesti, ein skál af kjöti fyrir hverja fjóra gesti og alls voru notaðar 65 skálar? B 2 Tveir kubbar vega jafnt og þrjár kúlur og einn kubbur vegur jafnt og þrjár keilur. Hvað þarf margar keilur til þess að vega upp á móti einni kúlu og einum kubbi? B. Þrautir rökhugsun

7 B 3 Íþróttakennarinn var að reyna að koma saman borðtennisliði. Hann þurfti að velja tvo stráka og tvær stelpur úr hópi sex nemenda en persónulegar tilfinningar flæktu málið. Jón sagði: Ég verð bara í liðinu ef Sigga er með. Sigga sagði: Ég verð ekki með ef Maggi er í liðinu. Maggi sagði: Ég verð ekki með ef Davíð eða Lilla eru í liðinu. Davíð sagði: Ég verð bara með ef Anna er í liðinu. Önnu stóð á sama hver var í liðinu. Getur íþróttakennarinn valið lið þannig að allir séu sáttir og hverjir eru þá í liðinu? B 4 Myntsafnari á átta krónur sem allir líta eins út en ein er aðeins léttari en hinar. Hvað þarf að vega krónurnar oft til að finna léttu krónuna ef notuð er vog með vogarskálum? B. Þrautir rökhugsun

8 B 5 Maður ætlar að ferðast yfir eyðimörk sem er 200 kílómetrar. Hann getur geymt vistir á birgðastöðum sem eru með 50 kílómetra millibili. Hversu marga daga tekur það hann minnst að komast yfir eyðimörkina ef hann getur aðeins borið vistir til þriggja daga og ferðast í mesta lagi 50 kílómetra á dag? (Ekki er hægt að skera niður vistirnar). Geturðu leyst þrautina ef eyðimörkin er 250 km? B 6 Hvernig getur þú fengið út töluna 7 með því að nota töluna 4 fjórum sinnum og einhverjar af reikniaðgerðunum fjórum ( +,, x, og : ) B. Þrautir rökhugsun

9 B 7 Þegar Adam og Eva giftu sig áttu þau hvort um sig börn úr fyrri sambúð. Eftir nokkra ára hjónaband voru börnin alls orðin átta. Adam var faðir sex þeirra og Eva móðir fimm þeirra. Hvað áttu Adam og Eva mörg börn saman. B 8 Heildsali sem býr í borg A selur vörur sínar í níu öðrum borgum. Hann ákveður að fara í söluferð frá heimaborginni, koma einu sinni til hverrar borgar, fara aldrei sama veginn tvisvar og enda aftur í heimaborginni. Í hvaða röð ætti hann að fara til borganna? B C J A E D H I G F B. Þrautir rökhugsun

10 B 9 Dragðu þrjár línur þannig að engir tveir af punktunum 7 verði í sama svæði. B 10 Þegar mamma kom fram í eldhús sá hún að einhver hafði borðað allar smákökurnar sem hún hafði bakað. Hún spurði börnin sín fjögur hver væri sökudólgurinn og hér eru svör þeirra: Anna: Halli borðaði kökurnar. Halli: Frikki borðaði kökurnar. Lísa. Ég borðaði ekki kökurnar. Frikki: Halli lýgur því að ég hafi borðað kökurnar. Aðeins eitt þeirra sagði satt. Hver borðaði kökurnar? B. Þrautir rökhugsun

11 C. ÞRAUTIR RÖKHUGSUN C 1 Hver er minnsta heila tala sem allar heilu tölurnar frá 1 og upp í 9 ganga upp í? C 2 Settu einhverjar af reikniaðgerðunum fjórum ( +,, x og : ) í reitina til að jafnan verið rétt: = 13. C. Þrautir rökhugsun

12 C 3 Skiptu tuttugu kubbum í fjóra stafla þannig að í fyrsta staflanum séu kubbarnir fjórum fleiri en í öðrum staflanum, í öðrum staflanum sé fjöldi kubbanna einum minni en í þriðja staflanum og fjöldi kubba í fjórða staflanum sé tvöfaldur fjöldinn í öðrum staflanum. C 4 Hér sérðu tvö net A og B. Geturðu teiknað leið sem byrjar í svarta punktinum, fer einu sinni í gegnum hvert strik í viðkomandi neti og endar aftur í svarta punktinum inni í netinu? C. Þrautir rökhugsun

13 C 5 Gulla ákvað að dulkóða útreikningana sína. Hún bjó til tákn fyrir tölustafina 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9. Til dæmis notaði hún táknið λ fyrir tölustafinn 5. Hér eru nokkur dæmi sem hún reiknaði. Getur þú ráðið dulmálið? (Táknin +, x, = eru ekki dulkóðuð). ε + ε = ζ + ζ = ε + ζ = ε x ε = ε + ζ = C 6 Andri lýgur mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. Ella lýgur fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. Aðra daga vikunnar segja þau Andri og Ella satt. Dag nokkurn sagði Ella við Andra: Í gær laug ég. Þá sagði Andri: Ég líka. Um hvaða dag vikunnar voru þau að ræða? C. Þrautir rökhugsun

14 C 7 Leikur er í því fólginn að snúa við tveimur samliggjandi örvum. Finndu hvernig hægt er í sem fæstum leikjum að breyta í. C 8 Eftirfarandi samtal á sér stað í síma: Halló er þetta ? Já. Við hvern er ég að tala? Þekkirðu ekki röddina í mér? Móðir mín er tengdamóðir móður þinnar. Hver er mesti hugsanlegi skyldleiki þeirra sem eru að tala saman? C. Þrautir rökhugsun

15 D. ÞRAUTIR RÖKHUGSUN D 1 Hvernig getur þú mælt nákvæmlega 5 lítra ef þú hefur fötu sem tekur 7 lítra og aðra sem tekur 3 lítra? D 2 Hvað eru margir þríhyrningar á myndinni? D. Þrautir rökhugsun

16 D 3 Hver er minnsti mögulegi fjöldi barna í fjölskyldunni hans Jónasar ef sérhvert barn í fjölskyldunni á a.m.k. einn bróður og eina systur? D 4 Hve marga staura þarf í girðingu umhverfis þríhyrningslaga svæði sem hefur hliðarlengdir 20 m, 20 m og 30 m ef hafðir eru 5 m á milli staura? D. Þrautir rökhugsun

17 D 5 Hvern punkt á myndinni á að lita þannig að engir tveir punktar sem eru tengdir saman með striki fái sama lit. Hver er minnsti fjöldi lita sem þarf að nota? D 6 Bættu við einu striki þannig að út komi stærðfræðilega rétt jafna: D. Þrautir rökhugsun

18 D 7 Yfirborð tenings er málað þannig að engir tveir hliðarfletir sem hafa sameiginlega brún hafi sama lit. Hver er minnsti fjöldi lita sem þarf að nota? D 8 Getur þú teiknað þessa mynd án þess að lyfta blýantinum upp frá blaðinu og án þess að fara tvisvar í sama strikið? D. Þrautir rökhugsun

19 E. ÞRAUTIR RÖKHUGSUN E 1 Maður og kona voru á gangi. Ég er karlmaður sagði svarthærða manneskjan. Ég er kona sagði ljóshærða manneskjan. A.m.k. annað þeirra var að ljúga. Hver er háralitur konunnar? E 2 Teiknaðu tvo þríhyrninga sem skipta myndinni í 9 hluta þannig að í hverjum hluta sé einn punktur. E. Þrautir rökhugsun

20 E 3 Elsa segir að Jón eigi minna en 1000 krónur í buddunni sinni. Pála segir að Jón eigi a.m.k.1000 krónur í buddunni og Ólína segir að Jón eigi a.m.k. eina krónu í buddunni. Aðeins ein þeirra segir satt. Hvað á Jón margar krónur í buddunni? E 4 Á eftirfarandi mynd stendur hver bókstafur fyrir tölustaf. 4 P Q R S T U V 8 W Summa hverra þriggja samliggjandi tölustafa er 19. Fyrir hvaða tölustaf stendur bókstafurinn S? E. Þrautir rökhugsun

21 E 5 Hvað þarf að setja marga í stað? til að vigtin sé í jafnvægi?? E 6 Notaðu einhverjar af aðgerðunum +,, x, : og settu í reitina til að út komi rétt niðurstaða = 9 E. Þrautir rökhugsun

22 E 7 Á hverri hlið tenings er bókstafur og getur sami bókstafurinn verið á fleiri en einni hlið. Á myndinni sést teningurinn eftir þrjú mismunandi köst. Hvaða bókstafur er á hliðinni sem snýr niður í hvert skipti? E 8 Hvernig ætti mynd nr. 5 að líta út?? E. Þrautir rökhugsun

23 F. ÞRAUTIR RÖKHUGSUN F 1 Hús hefur rétthyrndan grunnflöt með hliðarlengdir 20 m og 10 m. Rafknúin sláttuvél er tengd með snúru við innstungu utan á einu horni hússins. Snúran er það löng að unnt er að ná með sláttuvélinni 15 m frá horninu en ekki lengra. Hvert er flatarmál skikans (í fermetrum) sem hægt er að slá með vélinni. F 2 Hvaða tölur vantar inn í rununa? 1, 4, 27,,, F. Þrautir rökhugsun

24 F 3 Glæpamaður er staddur í miðju stórrar hringlaga sundlaugar. Lögreglumaður sem er ósyndur stendur á laugarbarminum. Lögreglumaðurinn getur hlaupið fjórum sinnum hraðar en glæpamaðurinn getur synt. Nær lögreglumaðurinn glæpamanninum áður en hann kemst upp úr lauginni? F 4 Á hverju endar talan sem fæst með því að margfalda saman 1000 fyrstu frumtölurnar? F. Þrautir rökhugsun

25 F 5 Á afmælisdaginn sinn vildi Grímur ekki segja hvað hann væri gamall. Hann sagði þó þetta: Ef þú bætir fæðingarári mínu við árið í ár og dregur svo frá árið sem ég varð 10 ára og árið sem ég varð 50 ára og bætir aldri mínum við útkomuna færðu út 80. Hvað er Grímur gamall? F 6 Sérhver bókstafur samsvarar ákveðnum tölustaf í samlagningardæminu sem hér fer á eftir og standa ólíkir bókstafir fyrir ólíka tölustafi. Finndu hvaða tölustafur samsvarar hverjum bókstaf. F O U R + O N E + T H R E E + T H R E E E L E V E N F. Þrautir rökhugsun

26 F 7 Á myndinni eru 7 x 7 reitir. Þú ætlar að komast frá A til B með því að fara nákvæmlega einu sinni gegnum hvern reit nema reitinn X. Það má aðeins fara einn reit í einu upp, niður, til hægri eða vinstri en ekki á ská. Er þetta hægt? X A B F 8 Á píluskífu eru þrír hringir. Fjöldi stiga sem fást fyrir að hitta í hvert svæði er skráður á viðeigandi stað. Hver er minnsti fjöldi pílukasta sem þarf til að hljóta nákvæmlega 21 stig? F. Þrautir rökhugsun

27 F 9 Þú ert staddur í helli með fimm mönnum sumum græneygðum en öðrum bláeygðum. Þeir græneygðu segja alltaf satt en þeir bláeygðu ljúga alltaf. A segir: Ég sé þrjá með græn augu og einn með blá. B segir: Ég sé fjóra bláeygða menn. C segir: Ég sé einn með græn augu og þrjá með blá. D er þögull. E segir: Ég sé fjóra græneygða menn. Hver segir satt og hver lýgur? (Þú ert sjálfur með brún augu og enginn sér þig). F. Þrautir rökhugsun

Meðalmánaðardagsumferð 2009

Meðalmánaðardagsumferð 2009 Meðalmánaðardagsumferð 2009 Almennt Á meðfylgjandi stöplaritum gefur að líta, hvernig umferð um 74 staði/snið dreifist hlutfallslega eftir mánuðum yfir árið 2009. Í upphafi var ákveðið að velja alla talningarstaði,

Διαβάστε περισσότερα

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga GunnarsdóttirNÁMSGAGNASTOFNUN Til nemenda Námsefnisflokkurinn 8 tíu er ætlaður nemendum í 8. 10. bekk. Grunnbókin 8 tíu 5 skiptist í átta meginkafla. Í hverjum kafla er

Διαβάστε περισσότερα

Þriggja fasa útreikningar.

Þriggja fasa útreikningar. Þriggja asa útreikningar. Hér þurum við að byrja á því að skilgreina 4 hugtök. 1. Netspenna er spenna sem við mælum á milli tveggja asa.. Netstraumur er straumurinn í hverjum asaleiðara.. Fasaspenna er

Διαβάστε περισσότερα

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir Reikniverkefni VII Sævar Öfjörð Magnússon 22. nóvember 25 8.3.4 Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir KAFLI 9.2 Pólar 2. stigs kerfa Í þessum kaa vinnum við með 2. stigs ker á forminu H(s) = ω 2 n. ()

Διαβάστε περισσότερα

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2014

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2014 2014 Morpheus deild - eftir hádegi Háskólinn í Reykjavík 20. mars 2014 Verkefni 1 Á Milli Skrifið forrit sem les inn þrjár heiltölur a, b og c. Skrifið út Milli ef talan b er á milli a og c á talnalínunni.

Διαβάστε περισσότερα

Menntaskólinn í Reykjavík

Menntaskólinn í Reykjavík Menntakólinn í Reykjaík Jólaróf 006, fötudaginn 5. de. kl. 9 0 Eðlifræði í 6.M og S náttúrufræðideild I Sör erkefnið er á 5 töluettu blaðíðu. Leyfileg hjálargögn eru hjálagt forúlublað og aareiknir. otaðu

Διαβάστε περισσότερα

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00 Sveinsprófsnefnd sterkstraums Rafmagnsfræði, stýrikerfi og búnaður 6. júní 2016 kl. 08:30-11:00 Nafn: Kennitala: Heimilisfang:_ Hjálpargögn: Skriffæri, reglustika, og reiknivél. Nota má bókina Formúlur

Διαβάστε περισσότερα

9 x 2 x 2 x 3 = 19 (9 + 2) 2 3 = 19

9 x 2 x 2 x 3 = 19 (9 + 2) 2 3 = 19 Verkefnablað 7.35 Horfin aðgerðartákn Settu aðgerðartákn (+,, :, ) og sviga á rétta staði þannig að svörin verði rétt. Dæmi: 9 x 2 x 2 x 3 = 19 (9 + 2) 2 3 = 19 a 9 x 8 x 3 x 2 = 7 b 16 x 9 x 5 x 5 = 10

Διαβάστε περισσότερα

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur LAN 203G & STÆ209G Anna Helga Jónsdóttir Sigrún Helga Lund Háskóli Íslands Anna Helga og Sigrún Helga (HÍ) Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur 1 / 27 Helstu atriði:

Διαβάστε περισσότερα

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS FÆÐSLSKIFSTOF FIÐNÐINS FOMÚL VEGN SVEINSÓFS Í FIÐNM Útgáfa SVEINSÓFSNEFND FIÐN STEKSTMS Fræðsuskrifstofa rafiðnaðarins Sveinsprófsnefnd sterkstraums FOMÚL FOMÚLTEXTI ρ Δ cosϕ I ρ Δ ρ Δ Spenna V I Straumur

Διαβάστε περισσότερα

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T Fyrir x(t) = u(t) þá fáum við lim t y(t) = lim t tu(t) = sem er óstöðugt. (oft er gott að skoða hvort impúlssvörunin sé alsamleitin, ef svo er, þá er kerð stöðugt). Tímaóháð Ker er tímaóháð ef það kemur

Διαβάστε περισσότερα

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands Kaplan Meier og Cox Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands Tími að atburði í heilbrigðisvísindum Í heilbrigðisvísindum er útkoman

Διαβάστε περισσότερα

Stærðfræði. Lausnir. Lausnir. 8tíu. NÁMSGAGNASTOFNUN 20. apríl 2009

Stærðfræði. Lausnir. Lausnir. 8tíu. NÁMSGAGNASTOFNUN 20. apríl 2009 4 1 2 3 5 6 Lausnir Lausnir 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN 20. apríl 2009 Átta Lausnir 2007 Björgvin Sigurðsson, Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir Ritstjóri: Hafdís Finnbogadóttir Öll réttindi áskilin

Διαβάστε περισσότερα

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009 Háskóli Íslands Vor 2009 Kennari: Vilhjálmur Þór Kjartansson Undirstöðuatriði RC-tengds magnara 28. apríl 2009 1 Magnari án forspennu Notuð var rás eins og á mynd 1. Við bárum saman uce og ube á sveiflusjá.

Διαβάστε περισσότερα

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014 Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014 Nýtt kjarnfóður frá Bústólpa PREMIUM PRO-FIT 17 PREMIUM PRO-FIT 13 Nýtt kjarnfóður frá Bústólpa PREMIUM PRO-FIT 17 Kjarnfóður sem ætlað er að hámarka fitu,

Διαβάστε περισσότερα

PRÓFBÚÐIR Í LÍNULEGRI ALGEBRU VIÐ HR VOR 2014 HERKÚLES

PRÓFBÚÐIR Í LÍNULEGRI ALGEBRU VIÐ HR VOR 2014 HERKÚLES PRÓFBÚÐIR Í LÍNULEGRI ALGEBRU VIÐ HR VOR 2014 HERKÚLES GUÐMUNDUR EINARSSON Herkúles Prófbúðir April 8, 2014 1 / 52 OUTLINE 1 Grunnhugtök, einfaldar aðgerðir og innfeldi Grunnhugtök Innfeldi Jafna Línu

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft Budesonid/formoterolfumarattvíhýdrat Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður

Διαβάστε περισσότερα

Vinkill. Lausnir. Ítarefni í stærðfræði fyrir 10. bekk

Vinkill. Lausnir. Ítarefni í stærðfræði fyrir 10. bekk Vinkill 7. ágúst 008 Ítarefni í stærðfræði frir 0. bekk Um efnið Efnisfirlit Þetta efni er ætlað sem ítarefni í stærðfræði frir unglingastig. Efnið getur hentað til einstaklings- eða paravinnu í skólanum

Διαβάστε περισσότερα

4.01 Maður ekur 700 km. Meðalhraðinn er 60 km/klst fyrstu 250 km og 75 km/klst síðustu 450 km. Hver er meðalhraðinn?

4.01 Maður ekur 700 km. Meðalhraðinn er 60 km/klst fyrstu 250 km og 75 km/klst síðustu 450 km. Hver er meðalhraðinn? 4. kafli, dæmi og vör með útreikningum Skrifað út 9..4; :34 4. Maður ekur 7 km. Meðalhraðinn er 6 km/klt fyrtu 5 km og 75 km/klt íðutu 45 km. Hver er meðalhraðinn? S S Sv.: Hér þarf að reikna tímann fyrir

Διαβάστε περισσότερα

Vinkill 3. Ítarefni í stærðfræði fyrir 10. bekk

Vinkill 3. Ítarefni í stærðfræði fyrir 10. bekk Vinkill 3 Ítarefni í stærðfræði frir 0. bekk Um efnið Efnisfirlit Þetta efni er ætlað sem ítarefni í stærðfræði frir unglingastig. Efnið getur hentað til einstaklings- eða paravinnu í skólanum en einnig

Διαβάστε περισσότερα

Líkindi Skilgreining

Líkindi Skilgreining Líkindi Skilgreining Ω = útkomumengi = mengi allra hugsanlegra útkoma. Atburður er hlutmengi í Ω. Ω A Skilgreining: Atburðir A og B kallast sundurlægir (ósamræmanlegir) ef A B =. Ω A B Skilgreining: Líkindi

Διαβάστε περισσότερα

RAF301G Merki og kerfi Miðmisserispróf, lausn

RAF301G Merki og kerfi Miðmisserispróf, lausn RAF301G Merki og kerfi Miðmisserispróf, lausn Miðvikudaginn 20. okóber 2010, kl. 08:20-09:50 Leyfileg hjálpargögn: reiknivél og ei A-blað með hverju sem er (innan marka heilbrigðrar skynsemi) á báðum hliðum.

Διαβάστε περισσότερα

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ S I S Menntakólinn Dæi 5. frh. - 5.3 R E Y K SIGILLUM J A V SCHOLÆ I C E N í Reykjavík 5. frh. d P W tog t 9,4kJ 0 0, 47kW Eðlifræði Kafli 5 - Vinna og orkuvarðveila Óleyt dæi 5. nóveber 006 Kritján Þór

Διαβάστε περισσότερα

Vinkill2. Ítarefni í stærðfræði

Vinkill2. Ítarefni í stærðfræði Vinkill2 Ítarefni í stærðfræði Um efnið Þetta efni er ætlað sem ítarefni í stærðfræði fyrir unglingastig. Efnið getur hentað til einstaklings- eða paravinnu í skólanum en einnig má nýta það sem heimavinnuverkefni.

Διαβάστε περισσότερα

S t æ r ð f r æ ð i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN. 7. september 2006

S t æ r ð f r æ ð i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN. 7. september 2006 2 3 4 5 6 S t æ r ð f r æ ð i Kennsluleiðbeiningar Kennsluleiðbeiningar 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN NÁMSGAGNASTOFNUN 2. útgáfa 2006 7. september 2006 Átta tíu Kennsluleiðbeiningar 2006 Guðbjörg Pálsdóttir og

Διαβάστε περισσότερα

Gagnasafnsfræði Venslaalgebra og bestun fyrirspurna. Hallgrímur H. Gunnarsson

Gagnasafnsfræði Venslaalgebra og bestun fyrirspurna. Hallgrímur H. Gunnarsson Gagnasafnsfræði Venslaalgebra og bestun fyrirspurna Hallgrímur H. Gunnarsson Inngangur SQL: SQL er declarative mál, segir bara hvað á að reikna, en ekki hvernig. Það er undir gagnasafnskerfinu komið að

Διαβάστε περισσότερα

Span og orka í einfaldri segulrás

Span og orka í einfaldri segulrás Rafmagnsvélar 1 - RAF601G 1 Span og orka í einfaldri segulrás Inductance and energy in a simple magnetic circuit Rafmagnsvélar 1 - RAF601G 2 Lögmál Faradays spansegulviðnám Lögmál Faradays er hluti af

Διαβάστε περισσότερα

1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út:

1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út: Massajöfnunarkerfi Svokölluð jöfnunarkerfi eru notuð til að fylgjast með magni efnis þegar það fer í gegnum ferli. Slík kerfi eru útgáfur af lögmálinu um varðveislu massans. Einfaldasta jöfnunarkerfið

Διαβάστε περισσότερα

Hugtakalisti fyrir 10. bekk. Listinn er ekki tæmandi!!!

Hugtakalisti fyrir 10. bekk. Listinn er ekki tæmandi!!! Hugtakalisti fyrir 10. bekk. Listinn er ekki tæmandi!!! Tölur o Talnamengin eru fjögur: N, Z, Q og R. o Náttúrulegar tölur (N) Allar jákvæðar heilar tölur. ATH. ekki 0. o Heilar tölur (Z) Allar heilar

Διαβάστε περισσότερα

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði H2S loftgæðamælingar, Norðlingaholt, Hveragerði, 1. og 2. ársfjórðungur 2015 Bls. 1 Skýrsla nr. 14 16. júlí 2015 H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði Skýrsla um mælingar fyrir janúar til

Διαβάστε περισσότερα

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði H2S loftgæðamælingar, Norðlingaholti og Hveragerði, fyrir árið 2015 Bls. 1 Skýrsla nr. 18 18. janúar 2016 H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði Skýrsla um mælingar fyrir árið 2015 Unnið

Διαβάστε περισσότερα

H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði H 2 S loftgæðamælingar, Norðlingaholti og Hveragerði, 1. - 3. ársfjórðungur 2016 Bls. 1 Skýrsla nr. 24 19. október 2016 H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði Skýrsla um mælingar fyrir

Διαβάστε περισσότερα

GPS-mælingar á Hengilssvæði í apríl og maí 2003

GPS-mælingar á Hengilssvæði í apríl og maí 2003 ORKUSTOFNUN Rannsóknasvið Verknr. 8 730 014 Nesjavallaveita GPS-mælingar á Hengilssvæði í apríl og maí 2003 Gunnar Þorbergsson Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur OS-2003-033 Júní 2003 ORKUSTOFNUN RANNSÓKNASVIÐ

Διαβάστε περισσότερα

C Q T. þessu blaði. 5. tbl. 23. árg. des. 2005

C Q T. þessu blaði. 5. tbl. 23. árg. des. 2005 C Q T F Í Þeir félagar Ársæll TF3AO og Bjarni TF3GB tóku þátt í CQ WW RTTY keppninni vestur í Otradal hjá Þorvaldi TF4M. Sjá nánar í grein í blaðinu. Myndina tók Þorvaldur Stefánsson TF4M þessu blaði 5.

Διαβάστε περισσότερα

Skilaverkefni 1. Skil á þriðjudaginn

Skilaverkefni 1. Skil á þriðjudaginn Nafn: Skilaverkefni 1 Skil á þriðjudaginn 1. Bíll ekur frá Reykjavík á Selfoss. Ferðin tekur 45 mínútur og vegalendin sem bíllinn fer er 50 Km. Hver er meðalhraði bílsins á leiðinni í m/s og Km/klst? 2.

Διαβάστε περισσότερα

Lauf_P :26 Page 1 Laufblaðið Gefið út af Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki 2. tölublað 9. árg. 2001

Lauf_P :26 Page 1 Laufblaðið Gefið út af Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki 2. tölublað 9. árg. 2001 Laufblaðið Gefið út af Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki 2. tölublað 9. árg. 2001 Laufblaðið Gefið út af: Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki LAUF Hátúni 10b 105 Reykjavík Sími: 551-4570 Bréfsími:

Διαβάστε περισσότερα

11979 H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum aðild Lýðveldisins Grikklands (Stjtíð. EB L 291, , bls. 17),

11979 H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum aðild Lýðveldisins Grikklands (Stjtíð. EB L 291, , bls. 17), 4. FÉLAGARÉTTUR A. FÉLAGARÉTTUR 1. 31968 L 0151: Fyrsta tilskipun ráðsins 68/151/EBE frá 9. mars 1968 um samræmingu verndarráðstafana, sem ætlað er að vera jafngildar í bandalaginu og aðildarríki krefjast

Διαβάστε περισσότερα

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3)

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3) 1 2 Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki Fjöldi hliðrænna tækja byggir á því að rafsegulsvið myndast umhverfis leiðara með rafstraumi. Við það færist vísir: Með víxlverkun síseguls og segulsviðs umhverfis

Διαβάστε περισσότερα

BLDC mótorstýring. Lokaverkefni í rafmagnstæknifræði BSc. Halldór Guðni Sigvaldason

BLDC mótorstýring. Lokaverkefni í rafmagnstæknifræði BSc. Halldór Guðni Sigvaldason BLDC mótorstýring Halldór Guðni Sigvaldason Lokaverkefni í rafmagnstæknifræði BSc 2014 Höfundur: Halldór Guðni Sigvaldason Kennitala: 201266-2979 Leiðbeinandi: Baldur Þorgilsson Tækni- og verkfræðideild

Διαβάστε περισσότερα

Veghönnunarreglur 02 Þversnið

Veghönnunarreglur 02 Þversnið 3 Veghönnunarreglur 02 10.01.2011 Flokkun gagna innan Vegagerðarinnar Flokkur Efnissvið Einkenni (litur) 1 Lög, reglugerðir, og önnur Svartur fyrirmæli stjórnvalda 2 Stjórnunarleg fyrirmæli, Gulur skipurit,

Διαβάστε περισσότερα

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur Bls. 1 Skýrsla nr. 2 (útgáfa 2) 12. janúar 2014 H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur Höfundur: Andrés Þórarinsson Verkfræðistofan

Διαβάστε περισσότερα

Landskeppni í eðlisfræði 2014

Landskeppni í eðlisfræði 2014 Landskeppni í eðlisfræði 2014 Forkeppni 18. febrúar 2014, kl. 10:00-12:00 Leyleg hjálpargögn: Reiknivél sem geymir ekki texta. Verkefnið er í tveimur hlutum og er samtals 100 stig. Gættu þess að lesa leiðbeiningar

Διαβάστε περισσότερα

Viðskipta- og Hagfræðideild Tölfræði II, fyrirlestur 6

Viðskipta- og Hagfræðideild Tölfræði II, fyrirlestur 6 Viðskipta- og Hagfræðideild Tölfræði II, fyrirlestur 6 Háskóli Íslands Helgi Tómasson Líkindafræði kafli 2-9 Berið saman við líkindafræðina í Newbold. Tilgangur líkindafræði í tölfræðinámsskeiði er að

Διαβάστε περισσότερα

Aðskilnaður breytistærða í rúmi

Aðskilnaður breytistærða í rúmi Kai 9 Aðskinaður breytistærða í rúmi 9.1 Bygjujafna í skífu 2 u = c 2 2 u, x 2 + y 2 < a 2 t 2 js: u = 0, x 2 + y 2 = a 2 us: u u t=0 = ϕ, = ψ t=0 t 9.1) Geymum upphafsskiyrðin us) beitum aðskinaði breytistærða

Διαβάστε περισσότερα

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth SKALI KENNARABÓK STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth Menntamálastofnun 7377 2B Skali 2B Kennarabók Heiti á frummálinu: Maximum

Διαβάστε περισσότερα

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun H 2 S loftgæðamælingar á Hellisheiði og Nesjavöllum, 1. ársfjórðungur 2018 Bls. 1 Skýrsla nr. 42 3. maí 2018 H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun Skýrsla um mælingar fyrir

Διαβάστε περισσότερα

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda FYLGISEÐILL FYRIR PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda 1. HEITI OG HEIMILISFANG MARKAÐSLEYFISHAFA OG ÞESS FRAMLEIÐANDA SEM BER ÁBYRGÐ Á LOKASAMÞYKKT, EF ANNAR Markaðsleyfishafi: Nafn: Le Vet B.V. Heimilisfang:

Διαβάστε περισσότερα

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd. Intraplural fluid alveoli P atm = O mmhg P alv P ip = P alv = O mmhg Lung elastic recoil 4 mmhg Chest wall P ip = -4 mmhg að anda inn og út. útöndun án mikils krafts, þ.e. af ákveðnu hlutleysi, og getum

Διαβάστε περισσότερα

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth SKALI KENNARABÓK STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth Menntamálastofnun 8542 3B Skali 3B Kennarabók Heiti á frummálinu: Maximum

Διαβάστε περισσότερα

Nemendakönnun: Skýrsla um niðurstöður

Nemendakönnun: Skýrsla um niðurstöður Nemendakönnun: Skýrsla um niðurstöður Spjaldtölvuverkefni í Norðlingaskóla - mat nemenda Niðurstöður kannana í lok skólaárs 212 og 213 Sólveig Jakobsdóttir og Skúlína Kjartansdóttir Í þessari skýrslu er

Διαβάστε περισσότερα

Stær fræ i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu. NÁMSGAGNASTOFNUN 15. febrúar 2007

Stær fræ i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu. NÁMSGAGNASTOFNUN 15. febrúar 2007 4 1 2 3 5 6 Kennsluleiðbeiningar Kennsluleiðbeiningar 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN 15. febrúar 2007 Átta tíu Stærðfræði 4 Kennsluleiðbeiningar 2007 Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir 2007 teikningar

Διαβάστε περισσότερα

Kafli 4 Línulegur kraftur og hreyfing

Kafli 4 Línulegur kraftur og hreyfing Kafli 4 Línulegur kraftur og hreyfing Kraftur (force) Ytri og innri kraftar. Við þurfum að beita miklum innri kröftum til mótvægis við ytri krafta og mikið álag á þessa innri krafta getur valdið vefjaskemmdum.

Διαβάστε περισσότερα

Veghönnunarreglur 03 Vegferill

Veghönnunarreglur 03 Vegferill 3 Veghönnunarreglur 03 01.08.2010 Flokkun gagna innan Vegagerðarinnar Flokkur Efnissvið Einkenni (litur) 1 Lög, reglugerðir, og önnur Svartur fyrirmæli stjórnvalda 2 Stjórnunarleg fyrirmæli, Gulur skipurit,

Διαβάστε περισσότερα

Um flokkun sorps og spilliefna gilda ýmsar innlendar og alþjóðlegar reglur sem Háskóli Íslands hlítir. Í sérhverri bygg-

Um flokkun sorps og spilliefna gilda ýmsar innlendar og alþjóðlegar reglur sem Háskóli Íslands hlítir. Í sérhverri bygg- Kafli 7 Förgun Það er stefna Háskóla Íslands að fylgja þeim reglum og leiðbeiningum sem alþjóðasamfélagið setur um umhverfismál og förgun lífsýna, spilliefna og hættulegra efna. Til þess að skólinn geti

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Rabeprazol Medical Valley 10 mg magasýruþolnar töflur Rabeprazol Medical Valley 20 mg magasýruþolnar töflur rabeprazolnatríum Lesið allan fylgiseðilinn vandlega

Διαβάστε περισσότερα

Kennsluleiðbeiningar Tungutak - Málsaga handa framhaldsskólum

Kennsluleiðbeiningar Tungutak - Málsaga handa framhaldsskólum Kennsluleiðbeiningar Tungutak - Málsaga handa framhaldsskólum Markmiðin með kennslubókinni Tungutak - Málsaga handa framhaldsskólum eru í grófum dráttum eftirfarandi: Fá nemendur til þess að hugsa um tungumálið

Διαβάστε περισσότερα

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun H2S loftgæðamælingar, Hellisheiði og Nesjavöllum, fyrir árið 2015 Bls. 1 Skýrsla nr. 19 18. janúar 2016 H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun Skýrsla um mælingar fyrir

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g hlaup. kalsípótríól/betametasón

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g hlaup. kalsípótríól/betametasón Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g hlaup kalsípótríól/betametasón Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar

Διαβάστε περισσότερα

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun H2S loftgæðamælingar, Hellisheiði og Nesjavöllum, 1. og 2. ársfjórðungur 2015 Bls. 1 Skýrsla nr. 15 16. júlí 2015 H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun Skýrsla um mælingar

Διαβάστε περισσότερα

Rafbók. Riðstraumsmótorar. Kennslubók

Rafbók. Riðstraumsmótorar. Kennslubók Kennslubók Þetta hefti er þýtt úr dönsku með góðfúslegu leyfi EVU í Danmörku. Íslensk þýðing: Sigurður H. Pétursson Mynd á kápu er fengin frá Guðna Þór í Rönning Umbrot: Ísleifur Árni Jakobsson Faglegur

Διαβάστε περισσότερα

Greinargerð Trausti Jónsson. Sveiflur IV. Árstíðasveiflur í háloftunum yfir Keflavík

Greinargerð Trausti Jónsson. Sveiflur IV. Árstíðasveiflur í háloftunum yfir Keflavík Greinargerð 44 Trausti Jónsson Sveiflur IV Árstíðasveiflur í háloftunum yfir Keflavík VÍ-VS4 Reykjavík Mars 24 Árstíðasveifla ýmissa veðurþátta í háloftunum yfir Keflavík Inngangur Hér verður fjallað um

Διαβάστε περισσότερα

barnatennurnar BÓKIN UM Bókin um barnatennurnar

barnatennurnar BÓKIN UM Bókin um barnatennurnar Sem nýbakaðir foreldrar eigum við margt ólært. Við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að hugsa vel um börnin okkar. Góð munnhirða er barninu nauðsynleg. Sem foreldri gegnir þú lykilhlutverki

Διαβάστε περισσότερα

Hæðarkerfi og hæðir Þórarinn Sigurðsson Landmælingar Íslands

Hæðarkerfi og hæðir Þórarinn Sigurðsson Landmælingar Íslands Hæðarkerfi og hæðirh Þórarinn Sigurðsson Landmælingar Íslands thorarinn@lmi.is Tilkoma hæðarkerfisinsh Nefnd til að fjalla um landmælingar lingar á Íslandi sett á fót t 1991 Sameiginlegt hæðarkerfi h fyrir

Διαβάστε περισσότερα

Niðurstöður aurburðarmælinga í Jökulsá í Fljótsdal árið 2003

Niðurstöður aurburðarmælinga í Jökulsá í Fljótsdal árið 2003 Verknr.: 7-546763 Jórunn Harðardóttir Svava Björk Þorláksdóttir Niðurstöður aurburðarmælinga í Jökulsá í Fljótsdal árið 2003 Unnið fyrir Landsvirkjun OS-2004/010 Apríl 2004 ISBN 9979-68-141-1 ORKUSTOFNUN

Διαβάστε περισσότερα

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun H 2 S loftgæðamælingar, Hellisheiði og Nesjavöllum, 1. ársfjórðungur 2016 Bls. 1 Skýrsla nr. 21 26. apríl 2016 H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun Skýrsla um mælingar

Διαβάστε περισσότερα

Hætta af rafmagni og varnir

Hætta af rafmagni og varnir Hætta af rafmagni og varnir Leysir af hólmi bæklinginn "Námsefni úr Reglugerð um raforkuvirki" 1. Rafstraumur um líkamann Rafstraumurinn sem fer um líkamann er skaðvaldurinn og spennan að því marki sem

Διαβάστε περισσότερα

Næring, heilsa og lífsstíll

Næring, heilsa og lífsstíll KYNNINGARBLAÐ Næring, heilsa og lífsstíll FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 Kynningar: Eldum rétt, Florealis, Icepharma Lætur draumana rætast Hlaupin hafa gefið Rúnu Rut Ragnars dóttur miklu meira en hana grunaði.

Διαβάστε περισσότερα

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti.

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti. FYLGISEÐILL Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti 1. HEITI OG HEIMILISFANG HANDHAFA MARKAÐSLEYFIS OG ÞESS FRAMLEIÐANDA SEM BER ÁBYRGÐ Á LOKASAMÞYKKT, EF ANNAR Laboratorios SYVA S.A.U.,

Διαβάστε περισσότερα

Stillingar loftræsikerfa

Stillingar loftræsikerfa Stillingar loftræsikerfa Apríl 009 Stillingar loftræsikerfa Höfundar: og Útgefandi: IÐAN fræðslusetur ehf IÐAN fræðslusetur Skúlatúni 105 Reykjavík Fyrsta útgáfa 004 Önnur útgáfa 008 Þriðja útgáfa 009

Διαβάστε περισσότερα

Rafmagsfræði loftræsikerfa

Rafmagsfræði loftræsikerfa Rafmagsfræði loftræsikerfa Sigurður Sigurðsson Febrúar 2003 Sigurður Sigurðsson 2 Rafmagnsfræði loftræsikerfa Höfundur: Sigurður Sigurðsson Útgefandi: IÐAN fræðslusetur ehf IÐAN fræðslusetur, Skúlatúni

Διαβάστε περισσότερα

Kafli 1: Tímastuðull RC liður. Dæmi 1.1 A: 3,3ms B: 7,56V Dæmi 1.2 A: 425µF B: 1s Dæmi 1.3 A: 34,38V B: 48,1V Dæmi 1.4 A: 59,38s

Kafli 1: Tímastuðull RC liður. Dæmi 1.1 A: 3,3ms B: 7,56V Dæmi 1.2 A: 425µF B: 1s Dæmi 1.3 A: 34,38V B: 48,1V Dæmi 1.4 A: 59,38s Kafli 1: Tímastuðull RC liður Dæmi 1.1 A: 3,3ms B: 7,56V Dæmi 1.2 A: 425µF B: 1s Dæmi 1.3 A: 34,38V B: 48,1V Dæmi 1.4 A: 59,38s Kafli 2: NTC, PTC, LDR, VDR viðnám Dæmi 2.1 A: Frá vinstri: NTC viðnám, VDR

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli. kalsípótríól/betametasón

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli. kalsípótríól/betametasón Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli kalsípótríól/betametasón Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar

Διαβάστε περισσότερα

Skýrsla LV nr: LV Dags: desember Titill: Landbrot á bökkum Hálslóns í Kringilsárrana úttekt 2017

Skýrsla LV nr: LV Dags: desember Titill: Landbrot á bökkum Hálslóns í Kringilsárrana úttekt 2017 Lykilsíða Skýrsla LV nr: LV-2017-103 Dags: desember 2017 Fjöldi síðna: 15 Upplag: Dreifing: Birt á vef LV Opin Takmörkuð til Titill: Landbrot á bökkum Hálslóns í Kringilsárrana úttekt 2017 Höfundar/fyrirtæki:

Διαβάστε περισσότερα

CHEMISTRY. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss. Rafeindabygging atóma. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss

CHEMISTRY. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss. Rafeindabygging atóma. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss CHEMISTRY The Central Science 9th Edition Rafeindabygging atóma David P. White Allar bylgjur hafa einkennandi bylgjulengd, λ, og útslag, A. Tíðni bylgju, ν, er fjöldi heilla bylgna sem fara yfir línu á

Διαβάστε περισσότερα

FRAMHALDSSKÓLI MOSFELLSBÆJAR SETTUR Í FYRSTA SINN

FRAMHALDSSKÓLI MOSFELLSBÆJAR SETTUR Í FYRSTA SINN 5. tbl. 9. árg. ágúst/september 2009 Málgagn Kennarasambands Íslands FRAMHALDSSKÓLI MOSFELLSBÆJAR SETTUR Í FYRSTA SINN Listkennsla Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum Verkleg eðlisfræði Líðan ADHD

Διαβάστε περισσότερα

Um tölvur stýrikerfi og forritun

Um tölvur stýrikerfi og forritun Um tölvur stýrikerfi og forritun Tölvur Fyrstu tölvurnar voru smíðaðar um miðja síðustu öld. Þær voru gríðarstórar á okkar tíma mælikvarða og fylltu stóra sali. Grunnhlutar tölva hafa frá þessum fyrstu

Διαβάστε περισσότερα

Þjófavarnarkerfi fyrir bílstöðvar

Þjófavarnarkerfi fyrir bílstöðvar Stjórn Í.R.A. 1982-1983: Kristján Benediktsson, TF3KB, formaður. Guðjón Einarsson. TF3AC, varaformaður. Jónas Bjarnason, TF3JB, ritari. Óskar Sverrisson, TF3DC, gjaldkeri Ólafur P Guðjónsson. TF3MXN, varastjórn.

Διαβάστε περισσότερα

FOUCAULT þrír textar 2014

FOUCAULT þrír textar  2014 FOUCAULT þrír textar www.starafugl.is 2014 Inngangur: Listaverk er ekki hlutur, það er lífið Nanna Hlín Halldórsdóttir Núna þegar niðurnjörvaður prófessjónalismi er búinn að gelda svo margt fallegt er

Διαβάστε περισσότερα

Efnisyfirlit INNGANGUR MARKAÐSSETNING / MARKAÐSFÆRSLA, STUTT YFIRLIT Markaðsáherslan... 8

Efnisyfirlit INNGANGUR MARKAÐSSETNING / MARKAÐSFÆRSLA, STUTT YFIRLIT Markaðsáherslan... 8 Efnisyfirlit INNGANGUR... 7 1. MARKAÐSSETNING / MARKAÐSFÆRSLA, STUTT YFIRLIT... 8 1.1. Markaðsáherslan... 8 1.2. Ákvarðanir tengdar markaðsfærslu:... 8 1.2.1. Val markhópa... 9 1.2.2. Samval söluráða...

Διαβάστε περισσότερα

Fyrir að eða fyrir því að?

Fyrir að eða fyrir því að? Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál Fyrir að eða fyrir því að? Um fornöfn í forsetningarliðum sem innleiða setningar Ritgerð til BA-prófs í íslensku sem öðru máli Mirko Garofalo Kt.:

Διαβάστε περισσότερα

HÖNNUN BURÐARVIRKIS IÐNAÐARHÚSS SAMANBURÐUR Á MISMUNANDI BYGGINGAREFNUM

HÖNNUN BURÐARVIRKIS IÐNAÐARHÚSS SAMANBURÐUR Á MISMUNANDI BYGGINGAREFNUM HÖNNUN BURÐARVIRKIS IÐNAÐARHÚSS SAMANBURÐUR Á MISMUNANDI BYGGINGAREFNUM Lokaverkefni í byggingartæknifræði BSc 2014 Höfundur: Kennitala: 110981-3929 Torfi G.Sigurðsson Tækni- og verkfræðideild School of

Διαβάστε περισσότερα

9. kafli neðri útlimir Hlutverk neðri útlima Stoðkerfið: bein, vöðvar og liðamót Mjöðm Bein Vöðvar Vöðvahópar

9. kafli neðri útlimir Hlutverk neðri útlima Stoðkerfið: bein, vöðvar og liðamót Mjöðm Bein Vöðvar Vöðvahópar 9. kafli neðri útlimir Hlutverk neðri útlima Hlutverk neðri útlima er að halda sér uppi gegn þyngdaraflinu. Stoðkerfið: bein, vöðvar og liðamót Mjöðm Bein Mjöðmin samanstendur af lærlegg og höfði hans

Διαβάστε περισσότερα

Stanslaust að prófa og uppgötva nýja hluti S V E F N S Ó F A R. Lífsstíll

Stanslaust að prófa og uppgötva nýja hluti S V E F N S Ó F A R. Lífsstíll KYNNINGARBLAÐ Lífsstíll FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2018 Friðgeir Helgason matreiðslumaður hefur starfað víða í Bandaríkjunum undanfarna tvo áratugi. Í sumar ætlar hann að njóta lífsins í Flatey. MYND/ERNIR Kór

Διαβάστε περισσότερα

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir)

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir) Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir) Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en þú eða barnið eruð bólusett.

Διαβάστε περισσότερα

Nr. 5/804 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 666/2013. frá 8.

Nr. 5/804 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 666/2013. frá 8. Nr. 5/804 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 666/2013 2016/EES/05/42 frá 8. júlí 2013 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB

Διαβάστε περισσότερα

11. tölublað 2017 Fimmtudagur 8. júní Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

11. tölublað 2017 Fimmtudagur 8. júní Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is 4 24 32 Lífrænn ís í Laugardalnum Hveragerði eignast sitt eigið brugghús Menningarveisla Sólheima 2017 11. tölublað 2017 Fimmtudagur 8. júní Blað nr. 492 23. árg. Upplag 32.000 Vefur: bbl.is Þremur tonnum

Διαβάστε περισσότερα

14, Íslenskir bændur: Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári

14, Íslenskir bændur: Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári 20 14, 24 25 26 16. tölublað 2015 Fimmtudagur 27. ágúst Blað nr. 449 21. árg. Upplag 32.000 Mynd / HKr. Íslenskir bændur: Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári hlutfallslega er mest selt af alifuglakjöti,

Διαβάστε περισσότερα

Rit LbhÍ nr Áhrif aldurs áa, þunga, holda og framleiðsluára. á gagnasafni Hestbúsins

Rit LbhÍ nr Áhrif aldurs áa, þunga, holda og framleiðsluára. á gagnasafni Hestbúsins Rit LbhÍ nr. 110 Áhrif aldurs áa, þunga, holda og framleiðsluára á frjósemi áagreining á gagnasafni Hestbúsins 2002-2013 Jóhannes Sveinbjörnsson Emma Eyþórsdóttir Eyjólfur K. Örnólfsson 2018 Rit LbhÍ nr.

Διαβάστε περισσότερα

Borðaskipan í þéttefni

Borðaskipan í þéttefni Eðlisfræði þéttefnis I: Borðaskipan í þéttefni Kafli 7 Jón Tómas Guðmundsson tumi@hi.is 8. vika haust 2017 1 Inngangur Sú nálgun sem gerð var með einnar rafeindar nálguninni og með því að gera ráð fyrir

Διαβάστε περισσότερα

Nokkur valin atriði úr aflfræði

Nokkur valin atriði úr aflfræði Einföld sveifluhreyfin Nour valin atriði úr aflfræði Soðum raftajöfnuna fyrir orm með ormstuðul sem má rita á eftirfarandi formi: mẍ = x sem er óhliðruð. stis diffurjafna. Umritum hana yfir á eftirfarandi

Διαβάστε περισσότερα

Það tekur enginn fiskur fluguna í boxinu. 8. tölublað 2017 Fimmtudagur 27. apríl Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is

Það tekur enginn fiskur fluguna í boxinu. 8. tölublað 2017 Fimmtudagur 27. apríl Blað nr árg. Upplag Vefur: bbl.is 4 16 36 37 Tækifæri í lífrænt vottuðum búskap Það tekur enginn fiskur fluguna í boxinu Kengúrur Skippy á grillið 8. tölublað 2017 Fimmtudagur 27. apríl Blað nr. 489 23. árg. Upplag 32.000 Vefur: bbl.is

Διαβάστε περισσότερα

HEILSA MIÐVIKUDAGUR 13. MARS eldunarleiðbeiningar auk þess sem hægt er að skoða myndir af öllum réttunum.

HEILSA MIÐVIKUDAGUR 13. MARS eldunarleiðbeiningar auk þess sem hægt er að skoða myndir af öllum réttunum. HEILSA Kynningarblað Æfingatæki, matarmýtur, hitakóf, svefntruflanir, sveppasýkingar, umhverfisvæn hreinsiefni og einfaldar leiðir til að komast í betra form. HOLLUR MATUR Í SÍMANN Fjölmörg ókeypis smáforrit

Διαβάστε περισσότερα

t 2 c2 2 Φ = 0. (2.1)

t 2 c2 2 Φ = 0. (2.1) 2 Bylgjuaflfræði Eftir að de Broglie setti fram tilgátu sína og í ljós kom að hún átti við rök að styðjast var ljóst að finna þyrfti bylgjujöfnu sem þessar bylgjur hlíttu. Rafsegulbylgjur, hljóðbylgjur

Διαβάστε περισσότερα

Sögur af Saffó. Yfirlit yfir viðtökusögu grísku skáldkonunnar Saffóar, sérstaklega með tilliti til hugmynda um samkynhneigð kvenna.

Sögur af Saffó. Yfirlit yfir viðtökusögu grísku skáldkonunnar Saffóar, sérstaklega með tilliti til hugmynda um samkynhneigð kvenna. Hugvísindasvið Sögur af Saffó Yfirlit yfir viðtökusögu grísku skáldkonunnar Saffóar, sérstaklega með tilliti til hugmynda um samkynhneigð kvenna Ritgerð til B.A.-prófs Þorsteinn Vilhjálmsson Janúar 2013

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Prevenar 13 stungulyf, dreifa. Samtengt bóluefni gegn pneumokokkum (13-gilt, aðsogað). 2. INNIHALDSLÝSING 1 skammtur (0.5 ml) inniheldur: Pneumokokkafjölsykrungur

Διαβάστε περισσότερα

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS Hagfræðistofnun Háskóla Íslands Odda v/sturlugötu Sími: 525-4500/525-4553 Fax: 525-4096 Heimasíða: www.ioes.hi.is Tölvufang: ioes@hag.hi.is Skýrsla nr. C02:01 Stytting grunn-

Διαβάστε περισσότερα

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS AVAMYS 27,5 míkrógrömm/úðaskammt nefúði, dreifa 2. INNIHALDSLÝSING Hver úðaskammtur gefur 27,5 míkrógrömm af flútíkasónfúróati. Sjá lista yfir öll

Διαβάστε περισσότερα

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth SKALI KENNARABÓK STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth Menntamálastofnun 8538 3A Skali 3A Kennarabók Heiti á frummálinu: Maximum

Διαβάστε περισσότερα

Hlýir sokkar og vettlingar góðar gjafir

Hlýir sokkar og vettlingar góðar gjafir Jólagjöf fagmannsins 30. nóvember 16 ð o b l i t a l ó J Jólagjöf atvinnumannsins 3.000 kr. verðlækkun 16.560 Ath! Takmarkað magn 179 stk. Sti l l i ng hf. Sí m i 5 8000 www. s t i lli n g. i s s t i lli

Διαβάστε περισσότερα

GeoGebruhjálp Handbók með útgáfu 3.2

GeoGebruhjálp Handbók með útgáfu 3.2 GeoGebruhjálp Handbók með útgáfu 3.2 2 Markus Hohenwarter og Judith Hohenwarter www.geogebra.org Handbók GeoGebra 3.2 Höfundar Markus Hohenwarter, markus@geogebra.org Judith Hohenwarter, judith@geogebra.org

Διαβάστε περισσότερα