SNÓKSDALUR 9 Ágúst Bjarmi Símonarson Friðrik Guðni Óskarsson Jóhann Rúnar Kjartansson Lokaverkefni í byggingariðnfræði 2011 Höfundur/höfundar: Ágúst Bjarmi Símonarson, Friðrik Guðni Óskarsson, Jóhann Rúnar Kjartansson Kennitala: 220679-5519 120789-4659 300568-5729 Leiðbeinandi: Jón Guðmundsson, Róbert Páll Pétursson Tækni- og verkfræðideild School of Science and Engineering
Tækni- og verkfræðideild Heiti verkefnis: Snóksdalur 9 Námsbraut: Byggingariðnfræði Tegund verkefnis: Lokaverkefni í iðnfræði Önn: Námskeið: Ágrip: 6 BI LOK 1006 Höfundur: Ágúst Bjarmi Símonarson Friðrik Guðni Óskarsson Jóhann Rúnar Kjartansson Umsjónarkennari: Róbert Páll Pétursson Í þessu verkefni er teiknað sumarhús á steyptum grunni, jafnframt er teiknuð stækkun á sumarhúsinu, teiknaðar eru bygginganefndarteikningar, verkteikningar og sérteikningar (deili og snið). Í skýrslunni er byggingalýsing ásamt burðarþolsútreikningum á vindálagi, hitatapsútreikningum og kostnaðar áætlun fyrir stækkun sumarhússins, gátlisti og skráningartafla. Leiðbeinandi: Jón Guðmundsson Róbert Páll Pétursson Fyrirtæki/stofnun: Dagsetning: Lykilorð íslensk: Lykilorð ensk: 30.04.2011 Sumarhús Dreifing: opin lokuð til: 2
Efnisyfirlit Almenn byggingarlýsing...4 Grundun og fylling...4 Sökklar og undirstöður...4 Gólfplata...4 Verönd...5 Útveggjagrindur...5 Innveggjagrindur...5 Gluggar...5 Þak...6 Hitakerfi...6 Gólfhiti...6 Ofnakerfi...6 Hitaveitugrind...7 Frárennsli...7 Neysluvatn... 7-8 Burðarþolsútreikningar...9 Vindálag á stoð...9 Hitatapsútreikningar heild... 10 Tafla yfir hitatapsútreikninga... 10 Hitatapsútreikningar á gólfi, útvegg og þaki... 11 Verkáætlanir... 12-14 Verkáætlun gerð þann 20/01/11... 12 Verkáætlun uppfærð þann 08/03/11... 13 Verkáætlun uppfærð þann 07/04/11... 14 Gátlisti vegan aðaluppdráttar... 15-16 Skráningartafla... 17 Kostnaðaráætlun fyrir viðbyggingu... 18-19 Heimildaskrá... 20 3
Almenn Byggingarlýsing viðbygging við sumarhús að Snóksdal 9 í Dalabyggð. Eldri bygging er 41 timbur sumarbústaður á einni hæð með svefnlofti á steyptum grunni. Lóðin er 3700 og er nýtingarhlutfall eldri sumarhúss með verönd 0,014% en verður 0,043% með viðbyggingu og verönd. Grundun og fylling. Grafið skal niður á fast og minnst 0,5+1,5 x fyllingarþykkt út fyrir sökkul. Fyllingarefni skal vera frosttryggt, stærsta steinastærð er 100mm D60/D10 >6 og 1cd 30 (d10/d60)<4. Þjappa skal fyllingu í jöfnum lögum, þjöppun skal uppfylla Standard Proctor í hverju lagi. Þjöppunarpróf skal uppfylla E2>120N/mm² og E2/E1 < 2,4. Lágmarksþykkt púða er700mm, fylla skal að sökklum að utan. Sömu kröfur gilda um fyllingu inní sökkla undir plötu. Sökklar og undirstöður. Sjá teikn. V-1. Sökklar eru staðsteyptir beint á púða. Steypa í sökkla skal vera í brotþolsflokki C 25/30, Vs-tala = <0,55, hámarkssteinastærð er 25mm, loftinnihald 5-6% og sigmál 60-80mm.Niðurlögn steypunnar skal vera í samræmi við ÍST-10. Steypuhula skal vera minnst 40mm.Steypu skal titra. Á yfirborð sökkla að utanverðu skal bera á sementsbundið þéttiefnitd. HEY DI K-11 þéttimúr eða sambærilegt. Tengi skulu slitin minnst 20mm inn í sökkul og sárið fyllt með sementsbundnu þéttiefni. Sökkull er einangraður að innan með plasteinangrun 100mm(16kg/m³). Sökklar eru steyptir í gólfkótahæð, sæti fyrir gólfplötu er haft 70x190mm.Plasteinangrun 20x110mm er komið fyrir í sæti milli sökkulveggja og gólfplötu til að hindra kuldabrú.járnagrind er einföld meðk12 járni cc300, efst í sökkul koma 2 K12 járn og neðst koma 2 K12 járn,þaðan er sökkulskautsjárn tekið að inntaki. K10 járn cc250 lengd 500+500 beygjast inn í plötu.járnbending skal vera í samræmi við ÍST-10 og stálgæði KS- 500. Undirstöður fyrir verönd eru steyptar í hólka radius 125mm hæð 800mm, í hólkana steypist festing fyrir dregara BYG-500. Gólfplata. Sjá teikn. V-1 Gólfplatan er steypt ofaná 100mm plasteinangrun (24kg/m³) og í þar til gert sæti í sökklum 70x 190 mm. Platan er 110mm þykk og steypist 80mm undir sökkulhæð. Plasteinangrun 20x110mmer komið fyrir í sæti milli sökkuls og plötu til að hindra kuldabrú. Steypa skal vera í brotþolsflokkic 25/20, Vstala= < 0,55, hámarkssteinastærð 25mm, loftinnihald = 5-6% og sigmál 60-80mm.Niðurlögn steypunnar og steypuskil skulu vera í samræmi við ÍST-10. Steypu skal titra.halda þarf steypu rakri þar til hún hefur náð 50% af fyrirskrifuðum styrkleika.yfirborð steypu skal pússa og glatta til að mynda nógu slétt yfiborð undir mottur fyrir gólfhitalögn.járnbending í pötu skal vera K10cc250 sem bindast í K10 járn sem beygjast úr sökkli.einnig er heimilt að nota K131 (5mm bendinet með150x150 möskvum). 4
Verönd. Sjá teikn. V-15. Verönd er umhverfis allt húsið. Á þremur hliðum nær hún 2m útfrá húsinu, en á fjórðu hliðinninær hún 4m útfrá húsinu. Grindverk er umhverfis alla veröndina og tröppur eru á austurhlið.veröndin er byggð upp á hefðbundinn hátt, á steyptum súlum. Allt timbur skal vera A-gagnvarið,Allar festingar galvaniseraðar og skrúfur ryðfríar.framhlið er klædd með Viroc sökkulplötum eðasambærilegu efni á timburgrind. Gert er ráð fyrir heitum potti á verönd. Útveggjagrindur. Sjá teikn V-2 til V-8. Útveggjagrindur eru úr 45x95 stoðum í styrktarflokki T1 eða C18 skv. ÍST INSTA 142 og einangraðar með 100mm þéttull. Grindin skal fest saman með BMF 105 vinklum öðru megin bæði að ofan og neðan, og skal negling vera 2x8 stk. með 4,0x40mm BMF saum. Fótreim skal boltuð við sökkul með 12x220mm múrboltum. Lagður skal tjörupappi milli fótreimar og sökkuls. Utan á grindurnar festast 9mm krossviðsplötur og skulu þær límdar á stoðir og negldar með 2 heitgalvaniseruðum saum og skal settur kíttistaumur í öll samskeyti milli platna. Loftunargrind kemur utan á krossviðinn og er hún smíðuð úr 21x45mm timbri c/c600 með músaneti að neðan. Á loftunargrind kemur svo vatnsklæðning úr 20x120mm kúptum liggjandi panil. Innan á grind kemur vatnssperra úr 0,20mm byggingaplasti. Þar næst koma 12mm spónaplötur og utan á þær koma 12mm gipsplötur. Innveggjagrindur. Sjá teikn. V-2 til V-8. Innveggjagrindur eru úr 45x70mm stoðum og eru festar saman með BMF 70 vinklum, einum að ofan og einum að neðan, negling skal vera 2x6 stk. 4,0x40mm BMF saumur. Fótreim skal fest á sama hátt og í útveggjum. Innveggir klæðast með fyrst með 12mm spónaplötum, síðan 12mm gipsplötum og einangrast með 70mm þilull. Gluggar. Sjá teikn. V-18 og V-19. Gluggar eru smíðaðir úr 20/56x115mm karmefni úr furu og opnanleg fög úr 18/53x55mm furu. Gluggar festast í grind með 5,0x100mm ryðfríum A4 tréskrúfum með mest c/c300. Snara skal úr boruðum skrúfugötum í karmi fyrir 15mm sponstappa úr furu sem límist með trélími yfir skrúfu og heflast svo niður að karmi. Gluggar eru einangraðir með ullartroðningi og í innri brún skal sett 12mm þéttipylsa og kítti, kítta skal allan hringinn að innanverðu, en ekki skal kíttað að utanverðu. Að innan kemur svo þykking úr 21x56mm furu sem límist og skrúfast í rauf í gluggakarmi á hliðum og að ofan, milli þykkingar og gips kemur svo 8x65mm gerekt. 24x114mm sólbekkur límist svo í rauf að neðanverðum karmi og skulu spóna- og gipsplötur ná þétt undir sólbekkinn, einnig kemur gerekt undir hann. Að utanverðu skal 9mm krossviðsplata (vindsperran) límast í rauf í gluggakarmi allan hringinn. 33/56x100mm vatnsbretti klætt með blikkflasningu er svo sett bæði undir glugga og yfir. Yfir gluggum og hurðum er einnig sett Isola soft vindsperre sem nær frá þaksperrum og niður yfir flasningar á efri vatnsbrettum. Glerjað skal með tvöföldu Climaplus einangrunargleri, U-gildi 1,6. 5
Þak. Sjá teikn. V-18. Þakið hefur 27 halla. Þaksperrur og togbönd eru smíðuð úr 45x145mm T1 eða C18 styrktarflokkuðu timbri skv. ÍST INSTA 142, c/c600 og fest saman með 100x200mm BMF gataplötum, báðu megin á hver samskeyti eða samtals 6 stk. á hverja sperrueiningu sem hefur togband, annars 2 stk. á þær sperrur sem ekki hafa togband. Negling skal vera 2x8 stk 4,0x40mm BMF saum á hverja gataplötu. Sperrueiningar festast við útveggjagrind með 2 stk. BMF 105 vinklum í hverri sperru eða samtals 4 stk. á hverja sperrueiningu. Negling skal vera 2x8 stk. 4,0x40mm BMF saumur í hvern vinkil. Þak er einangrað með 120mm þakull m/vindpappa, á efri brún á innanverðum þaksperrum koma loftunarlistar úr 25x25mm timbri en efst í mæni og neðst við útvegg koma einnig 3x250x555mm masonitplötur á neðri brún á loftunarlista til að tryggja örugga loftun. Sperrubil við útvegg skal klætt með 9mm krossvið og skal kítta meðfram samskeytum, í hvert sperrubil skulu sett 2 stk. 160mm ø32mm loftunarrör m/rist. Undir þaksperrur er sett 0,2mm byggingaplast sem rakavörn og því næst kemur rafmagnsgrind úr 34x45mm timbri c/c400mm. Á rafmagnsgrind kemur svo 12mm gips. Að ofanverðu eru þaksperrur klæddar með 25x100mm borðaklæðningu, því næst kemur Isola Isokraft 1,8mm þakpappi. Þakið er svo að lokum klætt með 0,6mm galvaniseruðu bárujárni. Efst á mæni kemur svo blikkflasning sem er beygð skv. teikningu í 127. Þakkantur er klæddur að framan með sama panil og er á húsi. Neðan á þakkant kemur skordýranet og er hann síðan klæddur með 16x54 timbri og er bil á milli borða 10mm. Rennubönd festast ofan á borðaklæðningu og undir bárujárn og er þakrennan ø100mm Armat þakrenna. Hitakerfi Húsið er upphitað á tvenna vegu með gólfhita eða ofnakerfi Gólfhiti. Sjá teikn. V-19. Það eru 10 slaufur sem tengjast saman inni á baði við tengigrindina. Rörin í gólfinu eru sett í einangrunarmottur sem svo er flotað yfir með anhydrit. Inni í hverju herbergi er hitastýring fyrir hverja slaufu til að stýra hitanum inni í herberginu. Lagnaefni skal standast kröfur ISO 15875-1:2001. Lagning og meðferð efnisins skal vera í samræmi við ákvæði Byggingarreglugerðar og staðlana sem hún vísar í. Allur frágangur skal vera samkvæmt ákvæði IST 67 og gildandi reglna Áður en lagnir verða huldar með með anhydriti eða sandfloti þá skal þrýstiprófa leiðslur. Kerfið skal vera prófað samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda röra. Ef einhver munur er á lýsingum framleiðanda og eftirfarandi þá skal fara eftir leiðbeiningum framleiðanda. Kerfið skal prófað með stigprófun. Forprófun: Kerfið er sett upp í 15 bör og síðan er bætt inn á það næstu 30 mín á 10 mín fresti. Það svo látið standa í 30 mín og má það ekki falla meira en 0,6 bör. Aðalprófun: Þá er kerfið sett í þrýsting og síðan er það látið standa í 2 tíma og má ekki falla meira en 0,2 bör, skrá þarf alla niðurstöður. Ofnakerfi. Sjá teikn. V-12. Ofnalögnin skiptist í tvennt frá grindinni. Rörin eru lögð utan á veggina, og eru úr stáli með einangrun. Í hverjum ofni er stillité, loftskrúfa og svo er hitastýrður túrloki sem stýrir flæðinu inn á ofninn. 6
Hitaveitugrind. Sjá teikn. V-3. Neysluvatn: Það er neysluvatnsforhitari sem stýrist af AVDQ þrýstistýrðum hitastilli. Neysluvatnsforhitarinn sér til þess að vatnið verði ekki heitara en 60 C. Ofnar: Það er forhitari á ofnunum. Ofnakerfi er fyllt með frostlög og skal hann blandast 30%. Frekari útskýringar skal sjá á teikningum. Gólfhiti: Það er forhitari á gólfhitanum. Gólfhitinn skal vera fylltur með frostlög og skal hann blandast 30%. Það er ECL 200 rafeindastýrð stjórnstöð við forhitarann, sem skynjar hitann úti og inni og stýrir flæðinu á forhitaranum. Við hverja slaufu er mótorloki sem stýrist af hitaskynjara sem er inni i hverju herbergi. Frekari útskýringar skal sjá á teikningum. Frárennsli. Sjá teikn. V-11. Frárennslislögn er lögð úr 100 mm PVC plasti. Lögnin kemur inn í húsið á vesturenda þess og tengist þar í vatnssalerni, vaska, sturtu og þvottavél. Þaðan liggur lögnin í tengibrunn sem er fyrir framan vesturenda hússins. Þaðan liggur lögnin í suðvestur um 10 metra þar sem hún fer í rotþró sem er 3600 lítra. Meðfram norður og suðurhlið húsins liggur 100 mm drenlögn sem tengist í niðurföll og heitapotinn á leiðinni í vestur átt. Rörið er úr 110 mm götuðu PVC plasti. Lögnin tengist í tengibrunn við vesturenda hússins, þaðan liggur það um 8 metra í suðvestur og endar í púkk. Frá hitaveitugrind liggur affall í 32mm PEH röri sem liggur beint í púkkinn. Neysluvatn. Sjá teikn. V-10 Staðsetning inntaks neysluvatns er inni á baði. Frá tengigrindinni er lagt í millivegg sem er á milli eldhússins og baðsins. Svo kemur ein leiðsla í útvegg frá millivegg að þvottavél. Neysluvatnsrör skulu vera úr Ál/plast rörum ( álpexi) frá Oventrop eða efni sem ber sama eiginleika. Efni verður að vera vottuð af Rb. Tengistykki skulu vera af sömu gerð eða henta þeim rörum sem á að nota. Einangra skal öll rör með ádragseinangrun og ber að hafa í huga vandaðan frágang við samskeyti og endastöðvar einangrunarinnar. Eftir að einangrun hefur verið sett á þá skal vefja yfir hana með plasti. Það skal festa öll rör með festingum sem passa við hverja stærð fyrir sig. Mesta bil milli festinga má vera 1,2-1,5 eftir sverleika rörs. En annars þarf að fara eftir uppskrift framleiðanda röranna, og því hverju hann mælir með fyrir sín rör. Kerfið skal prófað samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda röra. Ef einhver munur er á lýsingum framleiðanda og eftirfarandi þá skal fara eftir framleiðanda. Kerfið skal prófað með stigprófun. Forprófun: Kerfið er sett upp í 15 bör og síðan er bætt inn á það næstu 30 mín á 10 min fresti. Það látið standa í 30 mín og má það ekki falla meira en 0,6 bör. Aðalprófun: Þá er kerfið látið standa í 2 tíma og má ekki falla meira en 0,2 bör skrá þarf allar niðurstöður. Rennslistími: Heitavatnið = 1,94 l/sek Kaldavatnið = 2,81 l/sek 7
Allt efni skal vera lagnavottað. Allur frágangur skal vera samkvæmt ákvæði IST 67 og gildandi reglna. Rörin eru í álpex rörum og erum þau einangruð með ádragseinangrun. Frágangur lagna skal vera samkvæmt ákvæði IST 67 og gildandi reglna. Rennslistími heitavatns fundinn: Rennslistími kaldavatns fundinn: 8
Burðarþolsútreikningar Vindálag á stoð: Grunngildi vinds er 1,5kn/m 2 Formstuðull úti = 0,8 Formstuðull inni = 0,3 Formstuðull samtals = 0,8+0,3 = 1,1 Qk = 1,5 x 1,1 = 1,65 KN/m 2 qk =1,65 x 0,8 = 1,32 KN/m qd =1,5 x 1,32 = 1,98 KN/m Brotmörk: M = qd x L 2 / 8 => 1,98 x 3 2 / 8 = 2,23 KNm W = 1/6 x b x h 2 => 1/6 x 45 x 95 2 = 67,7 x 10 3 mm 3 σ = M/W => 2,23 x 10 6 / 67,7 x 10 3 = 32,9 Mpa 1/12x45x95 3 = 3,2x10 6 U max = 5/384 x ql 4 /EI = > 5/384 x 1,32x3000 4 /9000x 3,2 = 48,3 =>48 mm Samkvæmt byggingar reglugerð í flokki B þá er heildarálag L/300 3000/300 = 10 mm I nauðsynlegt = 5/384 x ql 4 /Ex U max = > 5/384 x 1,32x3000 4 /9000x 10 = 15,5 x 10 6 I=1/12 x b x h 3 = > b nauðsynlegt = I /1/12xh 3 => 15,5 x 10 6 /1/12 x 95 3 = 216,9 mm 9
Hitatapsútreikningar heild HERBERGI BYGGINGAHLUTAR HITATAP Nr. Skýring: og loftskipti Breidd/ Ibúð 101 Skýringar K - tala Lengd Hæð Flatarm. Hitamism. Leiðni Loftunar Átt Aukning Heildar Heildar ýringar Lengd Breidd Hæð Flatarm Rúmmál W/m2 C m m m 2 t tap tap á tap loftunartap hitatap m m m m2 (V) m3 frádregin C kxaxdt 0.36xnxVxdt gluggaop W W % W W 237 Heiti Baðherbergi Gólf 0,3 3,18 1,55 4,93 15 22 Loft 0,2 3,18 1,55 4,93 35 35 143 S 0 143 n 1 3,18 1,55 2,3 4,9 11,3 Útveggur 0,4 3,18 1,55 3,13 35 44 Gluggi/Hurð 2,0 0,9 2 1,80 35 126 Loftskipti 0,00 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,0 35 0 Samtals 226 369 Aukaálag v/kaldra flata 9 403 81,7 236 Heiti Eldhús/Borðstofa Gólf 0,3 2,7 3,4 9,18 15 41 Loft 0,2 1,88 2,4 4,51 35 32 259 S 0 259 n 0,8 2,7 3,4 2,8 9,2 25,7 Útveggur 0,4 3,4 2,7 8,82 35 123 Gluggi/hurð 2,0 0,9 0,4 0,36 35 25 Loftskipti 0,00 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,0 0 35 0 Samtals 222 481 Aukaálag v/kaldra flata 9 524 57,1 240 Heiti Stofa Gólf 0,3 3,518 3,914 13,77 15 62 Loft 0,2 1,88 1,81 3,40 35 24 487 S 0 487 n 0,8 3,518 3,914 3,51 13,8 48,4 Útveggur 0,4 3,518 3,914 21,77 35 305 Gluggi 2,0 2,5 3,2 8,00 35 560 Loftskipti 0,00 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,0 0 35 0 Samtals 951 1438 Aukaálag v/kaldra flata 12 1611 117,0 245 Heiti Gangur Gólf 0,3 2,25 1,55 3,49 15 16 Loft 0,2 2,25 1,55 3,49 35 24 81 S 0 81 n 0,8 2,25 1,55 2,3 3,5 8,0 Útveggur 0,4 0 0 0,00 35 0 Gluggi 2,0 0 0 0,00 35 0 Loftskipti 2,0 0,00 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,9 15 0 Samtals 40 121 Aukaálag v/kaldra flata 9 132 37,8 244 Heiti Herbergi 1 Gólf 0,3 2,58 2,1 5,42 15 24 Loft 0,2 2,66 2,1 5,59 35 39 126 S 0 126 n 0,8 2,58 2,1 2,3 5,4 12,5 Útveggur 0,4 2,58 2,3 4,37 35 61 Gluggi 2,0 1,2 1,3 1,56 35 109 Loftskipti 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,9 0 35 0 Samtals 234 360 Aukaálag v/kaldra flata 9 392 72,3 243 Heiti Herbergi 2 Gólf 0,3 2,1 2,1 4,41 15 20 Loft 0,2 2,1 2,1 4,41 35 31 102 S 0 102 n 0,8 2,1 2,1 2,3 4,4 10,1 Útveggur 0,4 2,5 2,3 4,19 35 59 Gluggi 2,0 1,2 1,3 1,56 35 109 Loftskipti 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,9 0 35 0 Samtals 219 321 Aukaálag v/kaldra flata 9 350 79,3 242 Heiti Anddyri Gólf 0,3 1,15 1,55 1,78 15 8 Loft 0,2 1,15 1,55 1,78 35 12 41 S 0 41 n 0,8 1,15 1,55 2,3 1,8 4,1 Útveggur 0,4 1,55 2,3 1,77 35 25 Hurð 2,0 0,9 2 1,80 35 126 Loftskipti 35 0 W/m C lengd Kuldabrú 0,9 0 35 0 Samtals 171 213 Aukaálag v/kaldra flata 6 225 126,4 Samtals 43 120 Samtals flutt hitatap (W) 3636 meðaltal W á m 2 85 meðaltal W á m 3 30 10
Hitatapsútreikningar á gólfi, útvegg og þaki Lamdagildi Steypa 1,7 Gips 0,22 Timbur 0,14 Steinull 0,04 Einangrunarplast 0,04 Gólf: Útveggur: Þak: 11
Verkáætlanir Verkáætlun gerð 20.01.11 12
Verkáætlun uppfærð 08.03.11 13
Verkáætlun uppfærð 07.04.11 14
15
16
Skráningartafla: Snóksdalur 9 Dalabyggð Skrásetjari: Friðrik Guðni Óskarsson Landnúmer: 173940 Kennitala: 120789-4659 Matshlutanúmer: 01 Útgáfa: 4.01b Dags.: 31.3.2011 Uppskipting og lýsing Stærðir D0 D1 D2 D3 D4 D5 D5M D6 D7 D8 D9 D10a D10b D11 D12 D16 D17 Lokun Rými hæð-röð Notkun texti Botnflötur m² Milliflötur m² Stigar m² Op m² Brúttóflötur m² Matshluti 49,0 19,0 1,0 0,4 49,0 157,5 43,0 49,0 221.400 Brúttóflötur sh < 1,8 Salarhæð min Salarhæð max Botn 9,8 A 0101 Sumarhús N 0101 49,0 49,0 2,30 3,85 137,0 43,0 49,0 2,80 120,400 A 0102 Þakrými V 0101 19,0 1,0 0,4 0,0 18,6 0,00 1,15 10,7 C 0103 Verönd U 0101 111,0 111,0 1,00 111,000 Eignarhald Eignarhald Notkun texti Birt flatarmál m² Séreign m³ Skiptarúmmál Séreign og sameign m³ 0101 Sumarhús 49 221.400 221.400 Frárennsli er tengt rotþró og síturlögn, drenlagnir í púkk 0101 Þakrými 19 221.400 221.400 Sorp er sett utan lóðar í sameiginlegan sorpgám fyrir sumarhúsahverfið 0101 Verönd 111 221.400 221.400 Rafmagn og neysluvatn er tengt sumarhúsinu á norður hlið húsnis Brúttó rúmmál m³ Nettóflötur m² Birt flatarmál m² Reiknitala skiptarúmmáls Höfuðflokkun Eignarhald Skiptarúmmál m³ Skráningartafla. 17
Kostnaðaráætlun fyrir viðbyggingu. Efnishluti Magn Einingaverð Verð m/vsk Grindarefni T1 Burðarviður 45x95mm 100 m 506 kr. 50.600 kr. Grindarefni 45x70mm 50 m 499 kr. 24.950 kr. Þilull 11,2 m2 1.030 kr. 11.536 kr. Þéttull 24,3 m2 1.356 kr. 32.951 kr. BMF105 vinklar 80 stk. 299 kr. 23.920 kr. BMF70 vinklar 32 stk. 149 kr. 4.768 kr. 4,0x40mm BMF saumur 2300 stk. 6 kr. 13.800 kr. Múrboltar 12x220mm 32 stk. 499 kr. 15.968 kr. Spónaplötur 12mm 14 stk. 3.800 kr. 53.200 kr. Gipsplötur 12mm 18 stk. 1.849 kr. 33.282 kr. Byggingaplast 0,2mm 1 rúlla 15.175 kr. 15.175 kr. Þykkingarefni f/glugga 21x70mm 8 m 295 kr. 2.360 kr. Gerekt inni 8x65mm 18 m 562 kr. 10.116 kr. Viður f/vatnsbretti 100x100mm 5 m 990 kr. 4.950 kr. Blikk flasning f/vatnsbretti 5 m 3.200 kr. 16.000 kr. Krossviðsplötur 9mm 6 stk. 3.775 kr. 22.650 kr. Músa/skordýranet 8 m 1.299 kr. 10.392 kr. Þéttipylsa 12mm 16 m 52 kr. 832 kr. Kítti Saudaflex 40FC 10 túbur 1.299 kr. 12.990 kr. Klæðning undir þakkant 16x54mm 90 m 159 kr. 14.310 kr. Isola soft vindsperre 1 rúlla 5.550 kr. 5.550 kr. Loftunargrind 21x45mm 50 m 198 kr. 9.900 kr. Panill úti kúptur 20x120mm 153 m 471 kr. 72.063 kr. Gluggaefni hliðar og toppstykki 14 m 1.665 kr. 23.310 kr. Gluggaefni undirstykki 2 m 1.665 kr. 3.330 kr. Gler Climaplus U-1,6 (stærð: 0,5x1,2&1,1x1,2m) 26.143 kr. Þéttiborðar f/glerlista 16 m 139 kr. 2.224 kr. Glerlistar botnstykki 2 m 685 kr. 1.370 kr. Glerlistar hliðar og toppstykki 14 m 593 kr. 8.302 kr. Gerekt úti 21x70mm 18 m 295 kr. 5.310 kr. Sólbekkir 34x114mm 2,5 m 4.500 kr. 11.250 kr. Armat þakrenna ø100mm 10 m 22.070 kr. Armat niðurföll 6 m 9.180 kr. Armat rennubönd 10 stk. 670 kr. 6.700 kr. Bárujárn galvaniserað 0,6mm 14 m2 2.601 kr. 36.414 kr. Borðaklæðning 25x100mm 240 m 275 kr. 66.000 kr. Loftunarrör m/rist ø32mm 28 stk. 229 kr. 6.412 kr. Masonit plata 1200x2600mm 2 stk. 210 kr. 420 kr. Þaksperrur 45x145mm 38 m 759 kr. 28.842 kr. Togbönd 45x95mm 17 m 506 kr. 8.602 kr. 18
Þakpappi Isola Isokraft 1,8mm 12m/rúlla 2 rúllur 9.625 kr. 19.250 kr. BMF Gataplötur 100x200mm 36 stk. 261 kr. 9.396 kr. Blikkflasning á mæni 5 m 3.900 kr. 19.500 kr. Trélím 2 túpur 1.299 kr. 2.598 kr. Gluggahjarir 4 stk. 1.100 kr. 4.400 kr. Stormjárn 2 stk. 3.600 kr. 7.200 kr. Krækjur f/opnanleg fög 4 stk. 800 kr. 3.200 kr. Girði 2x40mm 11 m 700 kr. 7.700 kr. Kambsaumur 4,0x50mm 1000 stk. 6 kr. 6.000 kr. lokun á út og innhornum á útipanil 21x70mm 20 m 295 kr. 5.900 kr. Burðarbitar T1 burðarviður 45x95mm 6 m 506 kr. 3.036 kr. Tréskrúfur A4 5x100mm 50 stk. 45 kr. 2.250 kr. 2" heitgalvaniseraður saumur 500 stk. 6 kr. 3.000 kr. Svalahurð 1 stk. 150.000 kr. 150.000 kr. Járn K10 64kg. 179 kr. 11.456 kr. JárnK12 53kg. 179 kr. 9.487 kr. Steinsteypa C25/30 2,5m³ 20.000 kr. 50.000 kr. Mótaleiga 16m². 600kr 9.600 kr. Plasteinangrun 16kg/m³ 8m². 1.200 kr. 9.600 kr. Plasteinangrun 24kg/m³ 8m². 1.700 kr. 13.600 kr. Festingardílar 32stk. 39 kr. 1.248 kr. Anhydrit flot 0,64m³ 55.000 kr. 35.200 kr. Gólfhiti Pex 18x2 54m 171 kr. 9.234 kr. Takkamotta Gólfhiti 8m². 4.000 kr. 32.000 kr. Álpex 16x2 8m 150 kr. 1.200 kr. Álpex 20x2,5 5m 170 kr. 850 kr. Vegghné 16 8stk 1.153 kr. 9.224 kr. T- 20/16/20 6stk. 1.240 kr. 7.440 kr. Hné 16 2stk. 950 kr. 1.900 kr. Festingar 20stk. 115 kr. 2.300 kr. Þakskrúfur Isola 4,2x35mm 1000 stk. 32 kr. 32.000 kr. Samtals m/vsk 1.207.911 kr. Vinnuhluti Tímafjöldi Einingaverð Verð m/vsk Mótauppsláttur 12 5.020 kr. 60.240 kr. Einangrun og járnalögn í grunn 8 5.020 kr. 40.160 kr. Sökkull og plata 12 5.020 kr. 60.240 kr. Grind 8 5.020 kr. 40.160 kr. Frágangur á veggjum og þaki úti 32 5.020 kr. 160.640 kr. Frágangur á veggjum inni 32 5.020 kr. 160.640 kr. Frágangur á gólfi og lögnum inni 4 5.020 kr. 20.080 kr. Samtals m/vsk 542.160 kr. 19
Heimildaskrá. www.byko.is www.husa.is www.steinull.is www.strongtie.dk www.isola.com www.ifosanitar.com www.armat.se www.reglugerd.is www.timbur.is www.murbudin.is 20