1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út:

Σχετικά έγγραφα
Meðalmánaðardagsumferð 2009

Þriggja fasa útreikningar.

Bústólpi ehf - Nýtt kjarnfóður H K / APRÍL 2014

Reikniverkefni VII. Sævar Öfjörð Magnússon. 22. nóvember Merki og ker Jónína Lilja Pálsdóttir

Guðbjörg Pálsdóttir Guðný Helga Gunnarsdóttir NÁMSGAGNASTOFNUN

Eðlisfræði 1. Dæmi 5.2 (frh.) Dæmi Dæmi (frh.) d) P = W tog. = 0, 47kW. = 9, 4kJ

Ályktanir um hlutföll og tengslatöflur

6. júní 2016 kl. 08:30-11:00

x(t) = T 0 er minnsta mögulega gildi á T

4.01 Maður ekur 700 km. Meðalhraðinn er 60 km/klst fyrstu 250 km og 75 km/klst síðustu 450 km. Hver er meðalhraðinn?

FRÆÐSLUSKRIFSTOFA RAFIÐNAÐARINS

Annar kafli Hraði, hröðun, kraftur og massi

Kaplan Meier og Cox. Aðferðafræði klínískra rannsókna haustið 2010 Fimmtudagur 11 nóvember. Thor Aspelund Hjartavernd og Háskóla Íslands

RAF301G Merki og kerfi Miðmisserispróf, lausn

Líkindi Skilgreining

Iðjuþjálfun LIE0103 Hrefna Óskarsd.

Span og orka í einfaldri segulrás

Menntaskólinn í Reykjavík

Undirstöðuatriði RC-tengds magnara Ólafur Davíð Bjarnason og Valdemar Örn Erlingsson 28. apríl 2009

Vísandi mælitæki (2) Vísandi mælitæki. Vísandi mælitæki (1) Vísandi mælitæki (3)

CHEMISTRY. Eðli orkunnar. Kafli 5 Varmaefnafræði. Hiti-varmi. MR efnafræði í 4. bekk. The Central Science 9th Edition. David P.

PRÓFBÚÐIR Í LÍNULEGRI ALGEBRU VIÐ HR VOR 2014 HERKÚLES

Skrifað út ; 18:59 gk. 6. kafli, dæmi og svör með útreikningum

H 2 S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

CHEMISTRY. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss. Rafeindabygging atóma. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss. Bylgjueðli ljóss

Nokkur valin atriði úr aflfræði

Stillingar loftræsikerfa

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

Kafli 1: Tímastuðull RC liður. Dæmi 1.1 A: 3,3ms B: 7,56V Dæmi 1.2 A: 425µF B: 1s Dæmi 1.3 A: 34,38V B: 48,1V Dæmi 1.4 A: 59,38s

FOUCAULT þrír textar 2014

Tölfræði II Samantekt vor 2010

Lauf_P :26 Page 1 Laufblaðið Gefið út af Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki 2. tölublað 9. árg. 2001

BLDC mótorstýring. Lokaverkefni í rafmagnstæknifræði BSc. Halldór Guðni Sigvaldason

11979 H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum aðild Lýðveldisins Grikklands (Stjtíð. EB L 291, , bls. 17),

H2S mælingar í Norðlingaholti og Hveragerði Skýrsla um mælingar árið 2013 Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur

Veghönnunarreglur 03 Vegferill

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Symbicort mite Turbuhaler 80 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt, Innöndunarduft

HÖNNUN Á STRENGLÖGN 11KV ÞINGVALLASVEIT

Hagrannsóknir II fyrirlestraglósur

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 1228/2014. frá 17. nóvember 2014

C Q T. þessu blaði. 5. tbl. 23. árg. des. 2005

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2014

H2S loftgæðamælingar í Norðlingaholti og í Hveragerði

H 2 S loftgæðamælingar við Hellisheiðarvirkjun og við Nesjavallavirkjun

Landskeppni í eðlisfræði 2014

HÖNNUN BURÐARVIRKIS IÐNAÐARHÚSS SAMANBURÐUR Á MISMUNANDI BYGGINGAREFNUM

Kafli 4 Línulegur kraftur og hreyfing

16 kafli stjórn efnaskipta

Stær fræ i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu. NÁMSGAGNASTOFNUN 15. febrúar 2007

Orkuumbreyting milli raforku og hreyfiorku

Efnisyfirlit INNGANGUR MARKAÐSSETNING / MARKAÐSFÆRSLA, STUTT YFIRLIT Markaðsáherslan... 8

24 sem x stendur fyrir hluta í ppm og M er mólmassi efnisins. Skrifað út ; 19:01 gk. Skrifað út ; 19:01 gk

Skilaverkefni 1. Skil á þriðjudaginn

Þjófavarnarkerfi fyrir bílstöðvar

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g hlaup. kalsípótríól/betametasón

Niðurstöður aurburðarmælinga í Jökulsá í Fljótsdal árið 2003

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

t 2 c2 2 Φ = 0. (2.1)

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. FRAMSELD REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 134/2014. frá 16.

Um flokkun sorps og spilliefna gilda ýmsar innlendar og alþjóðlegar reglur sem Háskóli Íslands hlítir. Í sérhverri bygg-

Viðskipta- og Hagfræðideild Tölfræði II, fyrirlestur 6

FYLGISEÐILL. Dorbene Vet 1 mg/ml stungulyf, lausn fyrir hunda og ketti.

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. FRAMSELD REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 665/2013. frá 3.

Tölfræði II. Lausnahefti við völdum dæmum. Haustönn 2004

Efnasamsetning vatns úr holu ÓS-01, Ósabotnum og útfellingar vegna blöndunar við vatn frá Þorleifskoti. OS-2002/078 Desember 2002

Ákveðið að auka greiðslumark um 8 milljónir lítra samkvæmt tillögu SAM

Skýrsla LV nr: LV Dags: desember Titill: Landbrot á bökkum Hálslóns í Kringilsárrana úttekt 2017

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Fluarix stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu Inflúensubóluefni (veiruhlutar, deyddir)

9 x 2 x 2 x 3 = 19 (9 + 2) 2 3 = 19

Grænt bókahald aflþynnuverksmiðju. Becromal Iceland ehf. Skýrsla ársins 2013

Nr. 28/462 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evróusambandsins. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 547/2012. frá 25.

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Daivobet 50 míkrógrömm/0,5 mg/g smyrsli. kalsípótríól/betametasón

FYLGISEÐILL FYRIR. PHENOLEPTIL 100 mg töflur fyrir hunda

Rafbók. Riðstraumsmótorar. Kennslubók

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth

Samgöngustofa. Skoðunarhandbók ökutækja Skjal: Formáli Útgáfunúmer: 20 Almenn atriði Dags.:

Gagnasafnsfræði Venslaalgebra og bestun fyrirspurna. Hallgrímur H. Gunnarsson

Næring, heilsa og lífsstíll

Borðaskipan í þéttefni

Verkefni 1: Splæsibrúun og jafnhæðarferlar

Veghönnunarreglur 02 Þversnið

ATRIÐASKRÁ OG HEIMILDASKRÁ 211 FORMÚLUR, VAXTATÖFLUR & TÖFLUR UM REGLULEGAN SPARNAÐ

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

Hvað gerist þegar peningamagn er fjórfaldað á 4 árum? Dr. Ásgeir Jónsson

Reglur um skoðun neysluveitna

S t æ r ð f r æ ð i. Kennsluleiðbeiningar. Kennsluleiðbeiningar. 8tíu NÁMSGAGNASTOFNUN. 7. september 2006

Formaður Bændasamtaka Íslands afar ósáttur við blekkingarleik við sölu búvara:

1 Aðdragandi skammtafræðinnar

SKALI STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG KENNARABÓK. Grete Normann Tofteberg Janneke Tangen Ingvill Merete Stedøy-Johansen Bjørnar Alseth

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

Umsögn. Aðferðafræði við framsetningu á arðsemiskröfu R

Fyrir að eða fyrir því að?

Inniheldur mjög hreint og öflugt (1-3), (1-6) betaglúkan. Eykur magn EPA og DHA í líkamanum á öruggan og skilvirkan hátt.

fyrirlestrapunktar vor 2009 Háskóli Íslands Mælingar tengdar í tíma. Kafli 7 (muna 5.5. og k. 1-4)

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 2,0 mg af cýpróterónacetati og 35 míkrógrömm af etinýlestradíóli.

17. tölublað 2016 Fimmtudagur 8. september Blað nr árg. Upplag

Hugtakalisti fyrir 10. bekk. Listinn er ekki tæmandi!!!

Grænt bókhald Sorpurðun Vesturlands hf. Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes. S: Vefpóstur:

Transcript:

Massajöfnunarkerfi Svokölluð jöfnunarkerfi eru notuð til að fylgjast með magni efnis þegar það fer í gegnum ferli. Slík kerfi eru útgáfur af lögmálinu um varðveislu massans. Einfaldasta jöfnunarkerfið er massajöfnunarkerfi. Flest fyrirtæki nota massajöfnunarkerfi í sínu birgðabókhaldi, sem lítur þá gjarnan einhvernvegin svona út: 1) Birgðabreyting = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Rýrnun - Eigin notkun Birgðabreytingin gæti t.d. verið kílógrömm af hveiti í kjörbúð. Kjörbúðareigandinn getur reiknað út birgðabreytingu hvers dags eða mánaðar með því að fylgjast með því hversu mikið selst af hveiti og hversu mikið hann kaupir inn og hversu mikið fer til spillis. Hér er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því, að ekkert hveiti verði til af sjálfu sér eða eyðist af sjálfu sér - rýrnun á sér alltaf eðlilegar orsakir. Með öðrum orðum, jafn mikið hveiti þarf að koma inn í búðina (innkaup, framleiðsla) og fer út úr búðinni (sala, rýrnun) ef birgðir eiga ekki að safnast upp. Þess vegna er þetta kallað massajöfnunarkerfi. Almennari útgáfa af lögmálinu hér fyrir ofan lítur svona út: 2) Uppsöfnun = Inn - Út + Framleiðsla - Notkun Annað dæmi um massajöfnunarkerfi er flæði efnis í gegn um verksmiðju. Vegna þess að í verksmiðju safnast ekki upp neinar birgðir, er vinstri hlið jöfnu 2) núll. Massi sem flæðir inn í verksmiðjuna er hráefnið, og það sem kemur út er fullunnin vara, auk aukaafurða og úrgangs. Massajöfnuður fyrir verksmiðju er því: 3) 0 = Magn hráefnis - Magn söluvöru - Magn aukaafurða - Magn úrgangs Eða: 4) Hráefni = Söluvara + Aukaafurðir + Úrgangur Ég sleppi því að setja "Magn" inn í jöfnu 4), enda liggur það í hlutarins eðli, þegar talað er um massajöfnuð að um sé að ræða magneiningar. Dæmi 1. Massajöfnunarkerfi. Olíufélagið Xtra flytur inn 1216 tonn af dísilolíu á árinu 2013. Fyrir átti félagið 167 tonn af dísilolíu. Á árinu seljast 956 tonn af dísilolíu á bíla og 120 tonn af dísilolíu á tæki. Einnig fóru 3 tonn á flutningabíla fyrirtækisins. Við vörutalningu í lok árs kemur í ljós að birgðir eru 287 tonn. Hver var rýrnunin á árinu? Svar: Ég nota jöfnu 1): Rýrnun = Innkaup - Sala + Framleiðsla - Eigin notkun - Birgðabreyting

Rýrnun = 1216 tonn - 1076 tonn + 0 tonn - 3 tonn - (287 tonn - 167 tonn) = 17 tonn Í reglugerð iðnaðarráðuneytis (og lögum nr. 40/2013) er talað um að nota eigi massajöfnunarkerfi til að tryggja að sjálfbærniviðmið íblöndunarefnis glatist ekki. Tökum dæmi. Dæmi 2. Íblöndun. Olíufélagið Ypsilon flytur inn 2.000 tonn af etanólíblönduðu bensíni. Íblöndunarhlutfallið er 5,0% etanól af rúmmáli. Ypsilon selur 500.000 lítra af bensín- etanólblöndunni í annað en samgöngur á landi, en afgangurinn af bensín- etanólblöndunni er blandaður metanóli þannig að orkuhlutfall blöndunnar sé 4,0% endurnýjanlegt eldsneyti sem er selt á bíla. Hvað þarf Ypsilon að kaupa mikið af metanóli og hvernig setur Ypsilon upp massajöfnuð fyrir þessa sölu? Svar: Samkvæmt reglugerð iðnaðarráðuneytis skal nota orkugildi eldsneytis úr viðauka 1 í reglugerðinni. Þar er m.a. eftirfarandi: Orkuinnihald etanóls: 27MJ/kg eða 21MJ/l Orkuinnihald metanóls: 20MJ/kg eða 16MJ/l Orkuinnihald bensíns: 43 MJ/kg eða 32MJ/l Ég get reiknað eðlisþyngd eldsneytisins (í kg/l) með því að deila seinni töluna með þeirri fyrri, til dæmis er eðlisþyngd etanóls 21/27kg/l eða 0,778kg/l. Þá veit ég bæði orkuinnihald á massa og rúmmál (úr reglugerð) og eðlisþyngd (reiknað): Orkuinnihald Eðlisþyngd MJ/kg MJ/l kg/l Etanól 27 21 0,778 Metanól 20 16 0,800 Bensín 43 32 0,744 Þetta er langt og ruglingslegt dæmi, svo ég brýt svarið niður í hluta. Ég þarf að byrja á því að finna hversu mikið hlutfall af massa eldsneytisins er etanól. Þó að etanólið sé 5% af rúmmáli, er ekki þar með sagt að það sé 5% af massanum. Næsti hluti er að finna orkuhlutfallið, enda er ekki hægt að gera ráð fyrir því að etanólið sé 5% af orku eldsneytisins. Þegar ég veit orkuhlutfallið veit ég hvort Ypsilon þarf að kaupa metanól til að ná orkuhlutfallinu upp, og þarf að reikna hversu mikið metanól þarf. Ég má ekki gleyma að draga 500.000 lítra frá, enda fóru þeir ekki í samgöngur og voru ekki blandaðir með metanóli. Að lokum set ég niðurstöðurnar upp í massajöfnuð.

Ég lendi strax í vandræðum með að finna massahlutfallið vegna þess að ég veit ekki hvert rúmmálið er. En ég get notað mér að massi = eðlismassi * rúmmál og reiknað það út. Rúmmál etanóls + rúmmál bensíns = heildarrúmmál = V Ég veit ekki hvað heildarrúmmálið er, svo ég kalla það bara V. En ég veit að rúmmál etanólsins er 5% af V og rúmmál bensínsins er 95% af V. Það er að segja: og Rúmmál etanóls í blöndunni = 0,05 * V Rúmmál bensíns í blöndunni = 0,95 * V Að auki veit ég að heildarmassinn er 2.000 tonn eða 2.000.000 kg: massi etanóls + massi bensíns = heildarmassi = 2.000.000 kg Eins og ég sagði áðan, er massi = eðlismassi * rúmmál. Þá get ég umritað jöfnuna fyrir ofan svona: eðlismassi etanóls * rúmmál etanóls + eðlismassi bensíns * rúmmál bensíns = 2.000.000 kg Þetta er orðið óþægilega langt, svo ég ætla að kalla eðlismassa etanóls ρetanól og eðlismassa bensíns ρbensín. Svo ætla ég að kalla rúmmál etanóls Vetanól og rúmmál bensíns Vbensín. Þá lítur sama jafna svona út: Hér hef ég kallað heildarmassann M. Ég var búin að finna út að svo ég sting því inn og fæ: Þá get ég tekið V út fyrir sviga: Einangra V: Og set að lokum inn tölur: ρetanól * Vetanól + ρbensín * Vbensín = M Vetanól = 0,05 * V og Vbensín = 0,95 * V ρetanól * 0,05 * V + ρbensín * 0,95 * V = M (ρetanól * 0,05 + ρbensín * 0,95) * V = M V = M / (ρetanól * 0,05 + ρbensín * 0,95) V = 2.000.000kg / (0,778kg/l * 0,05 + 0,744kg/l * 0,95) = 2.681.448 lítrar Það er að segja, heildarrúmmál innkaupanna hjá Ypsilon er 2.681.448 lítrar af etanólíblönduðu bensíni.

Af þessu er bensínið: Og etanólið: Vbensín = 0,95 * V = 0,95 * 2.681.448 lítrar = 2.547.376 lítrar Vetanól = 0,05 * V = 0,05 * 2.681.448 lítrar = 134.072 lítrar Þá get ég reiknað hversu mörg kíló eru af hvoru fyrir sig. Hér er bensínið: Og svo etanólið: Mbensín = ρbensín * Vbensín = 0,744kg/l * 2.547.376 l = 1.895.721 kg Metanól = ρetanól * Vetanól = 0,778kg/l * 134.072 l = 104.279 kg Til að athuga hvort ég hafi reiknað rétt, skoða ég: Mbensín + Metanól = 1.895.721 kg + 104.279 kg = 2.000.000 kg Ég sé að þetta stemmir, svo líkurnar eru þær að ég sé að reikna fyrsta hlutann rétt! En það er rétt að athuga, að massahlutfall etanólsins er ekki nákvæmlega 5%, þó rúmmálshlutfallið sé það: Massahlutfall etanóls = 104.279kg / 2.000.000kg * 100% = 5,21% Áðan sagði ég að fyrsti hlutinn af dæminu væri að reikna massahlutfall etanóls. Það er nú komið. Næsti hluti er orkuhlutfallið. Ég reikna orkugildi hvors hluta fyrir sig, og finn svo hlutfallið. Orkugildi bensínsins er: Orkugildi etanólsins er: Heildarorkan í eldsneytinu er: Ebensín = 1.895.721 kg * 43 MJ/kg = 81.516.023 MJ Eetanól = 104.279 kg * 27 MJ/kg = 2.815.521 MJ E = Ebensín + Eetanól = 81.516.023 MJ + 2.815.521 MJ = 84.331.543 MJ Orkuhlutfall etanólsins í blöndunni er því: Orkuhlutfall etanóls = 2.815.521 MJ / 84.331.543 MJ * 100% = 3,34% Það er vert að staldra aðeins hér við, og taka saman niðurstöðurnar úr hlutfallareikningunum. Rúmmálshlutfallið, massahlutfallið og orkuhlutfallið eru öll mismunandi:

Hlutfall etanóls í blöndunni M.v. rúmmál 5,00 % M.v. massa 5,21 % M.v. orku 3,34 % Það er því algerlega lífsnauðsynlegt að vita hvort um er að ræða hlutfall miðað við rúmmál, massa eða orku þegar talað er um "eldsneyti sem er 5% vistvænt". Ég sé að orkuhlutfallið er 3,34% sem er lægra en 4,0%, svo Ypsilon verður að blanda bensínið meira ef það á að verða 4,0% vistvænt að orkuhlutfalli. En fyrst drögum við 500.000 lítra frá heildarblöndunni. Rúmmál eldsneytis til samgangna = 2.681.448 l - 500.000 l = 2.181.448 lítrar Hlutfallið breytist ekki, þ.e.a.s. etanól er enn 5,0% af því rúmmáli sem er eftir. Því er etanólið sem er eftir: Orkugildi etanólsins er: Rúmmál etanóls = 0,05 * 2.181.448 lítrar = 109.072 lítrar Orkugildi bensínsins sem er eftir er: Eetanól = 109.072 l * 21 MJ/l = 229.051 MJ Ebensín = 2.072.376 l * 32 MJ/l = 66.316.032 MJ Nú þarf ég að stilla af orkugildið með því að blanda meira vistvænu eldsneyti út í blönduna. Markmiðið er að vistvænt eldsneyti sé 4,0% af orkunni í eldsneytinu sem er selt til samgangna. Með öðrum orðum, þá vil ég að Ebensín sé 96% af heildarorkugildi blöndunnar. Því þarf ég: Heildarorkugildi = Ebensín / 0,96 = 69.079.200 MJ Þetta gefur mér heildarorkugildi blöndunnar þegar metanólið er komið út í. En ég veit hvað ég hef mörg MJ af bensíni og ég veit hvað ég hef mörg MJ af etanóli. Þá er auðvelt að finna hvað ég þarf mörg MJ af metanóli til þess að ná upp heildarorkugildinu: Emetanól = heildarorkugildi - Ebensín - Eetanól = 472.656 MJ Þegar ég veit orkugildi metanólsins get ég reiknað rúmmálið og massann: Vmetanól = 472.656 MJ / 16 MJ/l = 29.541 lítrar Mmetanól = 472.656 MJ / 20 MJ/kg = 23.633 kg

Nú, loksins, get ég sett upp massajöfnuð fyrir þetta dæmi: Bensín (kg) Birgðir 1/1 0 Innkaup 1.895.721 Sala til samgangna 1.542.233 Sala, annað 353.488 Framleiðsla 0 Eigin notkun 0 Rýrnun 0 Birgðir 31/12 0 Samtals 1.895.721 1.895.721 Etanól (kg) Birgðir 1/1 0 Innkaup 104.279 Sala til samgangna 84.834 Sala, annað 19.445 Framleiðsla 0 Eigin notkun 0 Rýrnun 0 Birgðir 31/12 0 Samtals 104.279 104.279 Metanól (kg) Birgðir 1/1 0 Innkaup 23.633 Sala til samgangna 23.633 Sala, annað 0 Framleiðsla 0 Eigin notkun 0 Rýrnun 0 Birgðir 31/12 0 Samtals 23.633 23.633 Hér hef ég sleppt allri rýrnun (dæmið er nógu flókið fyrir) og það er auðvitað engin birgðabreyting, þetta átti bara að vera massajöfnuður fyrir þessa einu sölu. Ég get því sett nákvæmlega sama massajöfnuð upp á einfaldari hátt, þar sem allar tegundirnar koma fyrir í einni töflu: Massajöfnuður (kg) Bensín Etanól Metanól Samtals Innkaup 1.895.721 104.279 23.633 2.023.633 Sala til samgangna 1.542.233 84.834 23.633 1.650.700 Sala, annað 353.488 19.445 0 372.933

Í öllum tilfellum er heildarsala jöfn innkaupum. En það er hægt að hugsa sér að setja upp rúmmálsjöfnuð eða orkujöfnuð. Gerum það til gamans: Rúmmálsjöfnuður (lítrar) Bensín Etanól Metanól Samtals Innkaup 2.547.376 134.072 29.541 2.710.989 Sala til samgangna 2.072.376 109.072 29.541 2.210.989 Sala, annað 475.000 25.000 0 500.000 Orkujöfnuður (MJ) Bensín Etanól Metanól Samtals Innkaup 81.516.023 2.815.521 472.656 84.804.199 Sala til samgangna 66.316.032 2.290.512 472.656 69.079.200 Sala, annað 15.199.991 525.009 0 15.724.999 Í öllum tilfellum þurfa jöfnuðirnir að stemma, þ.e. heildarsalan þarf að vera jöfn innkaupunum. En hlutfall vistvæns eldsneytis í blöndunni er mjög misjafnt eftir því hvort miðað er við massa, rúmmál eða orku.

Í reglugerð kemur fram eftirfarandi um massajöfnunarkerfi: "Söluaðilar eldsneytis skulu nota massajöfnunarkerfi fyrir endurnýjanlegt eldsneyti: a) sem gerir kleift að blanda saman sendingum af hráefni eða lífeldsneyti með ólíka sjálfbærnieiginleika, b) sem gerir kröfu um að upplýsingar um sjálfbærnieiginleika og stærð sendinganna, sem um getur í a- lið, fylgi blöndunni áfram og c) sem tryggir að sjálfbærnieiginleikar eldsneytisblöndu tapist ekki þrátt fyrir að eldsneyti með ólíka sjálfbærnieiginleika sé blandað saman eða hluti af eldsneytisblöndu sé tekinn frá. d) Orkustofnun gefur út nánari leiðbeiningar um massajöfnunarkerfi sem söluaðilar geta haft til hliðsjónar." Sýnidæmi 2 tók á liðum a) og c). Ef Ypsilon hefði verið að senda massajöfnuðinn til Orkustofnunar, þá hefði, skv. lið b), þurft að fylgja með upplýsingar um sjálfbærnieiginleika etanólsins og metanólsins. Það hefði verið alveg leyfilegt að senda t.d. upprunavottorð frá viðurkenndum útgefendum upprunavottorða fyrir etanólið en greinargerð frá framleiðanda metanólsins.